
Farsinn heldur áfram. Ólafur F er gengin aftur í Frjálslynda flokkinn. Áður hafði hann verið í Íslandshreyfingunni. Þar áður í Frjálslynda flokknum og þar áður í Sjálfstæðisflokknum.
Ólafur Flokkaflakkari hefur því farið kollhnýs afturábak og með skrúfu og twisti inn í Frjálslynda flokkinn. Reykvíkingar sem hélt að dellunni færi að ljúka verða að bíða um sinn. Það er alger óskhyggja og þess sennilega að vænta að Ólafur Flokkaflakkari finni sér annan flokk til að flakka í áður en farsanun lýkur.
Í frétt af kollnhýs Ólafs flokkaflakkara inn í Frjálslyndaflokkinn segir:
Ólafur F. Magnússon borgarfulltrúi boðaði til blaðamannafundar klukkan 11:00 í Ráðhúsi Reykjavíkur í morgun. Þar tilkynnti Ólafur að hann hygðist ganga í Frjálslynda flokkinn og bjóða fram undir merkjum hans í næstu kosningum.
Ólafur sagðist hafa rætt við Guðjón Arnar Kristjánsson, formann flokksins, sem styður ákvörðun Ólafs. Á fundinum vitnaði Ólafur einnig í minnisblað sem samið var á fjármálaskrifstofu borgarinnar en þar er gert ráð fyrir því að launakostnaður borgarinnar dragist saman um átta prósent auk þess sem dregið verði úr yfirvinnu.
Var ekki allt í sómanum þegar Ólafur var borgarstjóri. Svo var amk að heyra. Er skyndilega allt komið í kaldakol? Hvurskonar rugl er þetta?
Að sögn Ólafs eru þessar hugmyndir enn í vinnslu en að þær sýni glögglega þá slæmu stöðu sem uppi er í fjármálum borgarinnar. Ólafur segist standa fyrir trausta og ábyrga fjármálastjórn, og til þess að unnt sé að koma í veg fyrir að þessar humgyndir verði að veruleika, þurfi menn að hætta við „milljarða gæluverkefni" sem borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins hafi sýnt áhuga á. Aðspurður hvaða verkefni hann ætti við nefndi hann hugmyndir um stokk frá Geirsgötu og út í Ánanaust sem dæmi.
Einn borgarfulltrúi Sjálfstæðisfllokks sammála Ólafi í Laugavegsmálinu
Á fundinum fór Ólafur í löngu máli yfir baráttumál sín og stefnu auk þess sem hann ræddi samskipti sín við sjálfstæðismenn í meirihlutanum. Hann sagði að samstarfsmenn sínir í meirihlutanum hefðu í mörgum málum viðhaft óvönduð vinnubrögð við ákvarðanatöku og nefndi hann sérstaklega kaupin á húsunum við Laugaveg 4-6 í því samhengi.
Hvað varð um samstöðuna og þann góða anda sem Ólafur var alltaf að básuna um þegar hann var borgarstjóri? Var Ólafur bara að plata?
Hann tiltók sérstaklega að einn borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins hefði verið sammála borgarstjóra að í því máli hafi verið farið of geist. Þegar blaðamenn gengu á hann og spurðu hvaða borgafulltrúa hann ætti við neitaði hann að gefa það upp. Hann sagði þó að borgastjórnarflokkur Sjálfstæðisflokksins væri svo margklofinn að hann væri í raun óstarfhæfur.
Hví segir Ólafur ekki hvaða borgarfulltrúa hann á við? Er það leyndó. Reykvíkingar eiga heimtingu á því að vita þetta. Var meirihlutinn F og D lista virkilega svona morkinn? Þvert á það sem Ólafur hélt fram?
Ólafur sagði einnig afskaplega mikilvægt að þau mál sem hann stendur fyrir eigi sér málsvara í næstu kosningum, annars sé hætta á að „ungir og óreyndir" stjórnmálamenn taki til dæmis upp á því að flytja flugvöllinn úr Vatnsmýrinni.
Er Ólafur að tala um alla borgarfulltrúa nema sjálfan sig? Á virkilega að reyna að höfða til þeirra sem vilja flugvöllin kjurt til þess að halda honum sjálfum inni fyrir næstu kosnningar?
-o-o-o-
Ef það er til stjórmálamaður sem misst hefur trúverðugleika þá er það Ólafur flokkaflakkari. það er hreinlega ekkert að marka neitt sem hann segir.
0 comments:
Sendu inn athugasemd