miðvikudagur, 20. ágúst 2008

Lúxusgildran

Það eru ferlega skemmtilegir þættir á stöðu 3 í sænska sjónvarpinu. Þættirnir heita Lyxfällan og eru einskonar raunveruleikasjónvarp. Tveir fjármálaráðgjafar fá til sín fólk sem er með allt niðurm sig fjárhagslega. Vandinn er skoðaður, greindur og lagaður. Allar skuldir viðkomandi eru settar saman, mánaðarleg útgjöld og tekjur viðkomandi. Síðan er komið með tillögu að sparnaði og jafnvel farið með viðkomandi í bankann og samið um skuldbreytingu.

Þetta eru þættir sem allir ættu að tengja við á einhvern hátt og oft og tíðum liggur vandamálið ljóst fyrir. Svíjar eru reyndar ekki með yfirdráttarskuldir og skulda því sennilega minna en Íslendingar. Kreditkortanotkun er vandamál í Svíþjóð eins og á Íslandi og margir hafa farið flatt á plastinu.

Hérna er dæmi um efnistök Lyxfallan. Sniðugur þáttagerðamaður ætti að kópía þennan þátt upp á íslensku. Svona þáttur gæti skipt sköpum fyrir marga og vakið fólk til umhugsunar um eyðsluna sína.

0 comments: