EIMREIÐIN - veður í gegnum (moð)reykinn

föstudagur, 15. ágúst 2008

Rifrildi á blogginu


Hressandi rifrildi á blogginu hefur geysað síðustu klukkustundir. Stebbi Valdi er að hneykslast á Dröfn Ösp Snorradóttur. Aðallega fyrir málfar. Honum þykir Eyjan.is setja niður við að hafa DD-Unit (Dröfn) sem bloggara þar á bæ. Don Pedró nokkur tekur upp hanskann fyrir Dröfn sem og Bobbí Breiðholt. mér sýnist athugasemdakerfn hjá öllum þeim lengjast í veldisfalli.

Bobbý Breiðholt þessi gerir mikið úr því að Stebbi Valdi sé sextugur og telur aldur hans skipt höfðumáli í umræðunni.

Stebbi Valdi er skemmtilegur penni og það gladdi mitt anarkíska hjarta að sjá virðulegan prófessor kalla andstæðing sinn heilalausan. -Slíkt gerist allt of sjaldan.

Auðvitað er það svo að sumt blogg fer í taugarnar á mér. Ég sleppi þessvegna bara að lesa slíkt blogg. Mér þykir ekkert sniðugt eða fyndið að láta meint aukasjálf blogga eins og Dröfn geri og les þessvegna ekki bloggið hennar. Mér sýnist Dröfn vera að herma eftir Katrínu bloggdrottningu. Það er Katrínu sjálfsagt til vegsauka.

Það sem Stebbi Valdi verður að hafa í huga er að vitleysingar þurfa að drepa tímann eins og aðrir. En skemmtanir fyrir neðstu lög samfélagsins eru allt frá fegurðarsamkeppnum, bowling og yfir í að lesa kjánablogg á borð við það sem Dröfn fæst við.

11 Comments:

  • Sæll Teitur, og velkominn í umræðuna.

    Þú hefur einhvernveginn náð að mistúlka þetta með aldurinn þótt greinin mín sé stutt. Hvergi kem ég að aldri krumpuprumpans í minni færslu.

    Ætli það sé ekki best að ég skrifi hægar næst.

    Pétur Jónsson
    Vitleysingur

    By Anonymous Don Pedro, At 15. ágúst 2008 11:16  

  • Úbbs! Búin að laga. Ég ruglaðist á Don Pedró og Bobbý Breiðholt.

    Takk fyrir ábendinguna Vitleysingur.

    By Blogger Teitur Atlason, At 15. ágúst 2008 11:26  

  • vei vei meira ...

    Katrín er æðislegur bloggari og við erum netvinir og ég hef aldrei aldrei hermt eftir henni enda engin þörf á það er nóg rými á ritvellinum fyrir alla litina í litakassanum

    það geta ekki allir gert trúleysingjum með gráðu í guðfræði til geðs það er víst ábyggilegt

    hahah allar þessar gráður og samt sandkassamálflutningur og asna-tal

    fer fólki aftur í þroska því lengur sem það situr á skólabekk eða hvernig er það?

    en ég þakka kærlega fyrir að þú farir ekki að bloggið mitt þannig á það bara að vera enda eins og margoft hefur komið fram er ekki verið að neyða neinn til að lesa það

    dd-unit og líklega jú Vitleysingur ...

    By Blogger d-unit, At 15. ágúst 2008 11:27  

  • Hvernig væri að svara efnislega og hætta að röfla eins og vitleysingur?

    Stebbi Valdi gagnrýndi málfarið á blogginu þínu.

    Hvað kallar þú fólk sem skrifar eins og kjánar? Eru það ekki bara kjánar?

    Svaraðu nú eins og almennnileg manneskja með háskólagráðu en ekki eins og 13 ára unglingur.

    By Blogger Teitur Atlason, At 15. ágúst 2008 11:37  

  • Vá hvað þetta er súr færsla. "... neðstu lög samfélagsins"?!

    Hver er að röfla?

    Einnig er þessi málfarsfasismi sem þið félagar bjóðið upp á engum til góðs.

    By Anonymous Valdi í Vesturbæ, At 15. ágúst 2008 11:51  

  • Dröfn fárast yfir því að ég kalla bloggið hennar kjánablogg. Hún spyr sjálfan sig eins og í andvarpi þess sem veit betur.

    "hahah allar þessar gráður og samt sandkassamálflutningur og asna-tal"

    Ég las svarfærslu Drafnar á vefnum hjá Stebba Valda. Eftirfarandi er dæmi um ekki-sandkassamálflutning er þar að finna:


    -hvað næst ætlaru að kasta þér í gólfið í súpermarkaði með mömmu þinni af því þú mátt ekki fá Kókópuffs


    -þú hlýtur að þjást af einhverjum súrefnisskorti þarna á toppnum


    -í aumkunarverðri nauðvörn þinni


    -þú er svo búinn að skíta upp á bak


    -og já ég segi það kúka upp á bak með röksemdir þínar

    Svona á að gera þetta! Kvarta undan sandkassaumræðu og viðhafa hana á sama tíma.

    By Blogger Teitur Atlason, At 15. ágúst 2008 11:55  

  • Háskólagráða kemur greind ákaflega lítið við samkvæmt minni reynslu.

    Mikið óskaplega er líka hallærislegt þegar fólk er að flíka því að það sé með einhvers konar gráðu (kannski frá bréfdúfuskóla í Rússlandi?) og að aðrir þeim allsendis ólíkir hljóti nú að vera eitthvurt ómenntað hyski.

    By Anonymous Anna, At 15. ágúst 2008 19:58  

  • hvar kemur fram að háskólagráða sé ígildi góðra gáfna?

    Þetta sendur hvergi á bloggnu mínu.

    Mig minnir að Dröfn hafi sagt í svari við Stefán að hún sé líka með háskólagráðu (eins og hann). Bloggið hennar gefur það sannarlega ekki til skyn. Það er eins og skrifað af fábjána.

    By Blogger Teitur Atlason, At 15. ágúst 2008 20:06  

  • Hvað þýðir eiginlega aukasjálf. Hef aldrei notað þetta né séð það notað áður.
    Hvernig er bloggmanneskja sem bloggar með aukasjálfinu? hmmm
    Forvitin.

    By Anonymous María, At 20. ágúst 2008 22:20  

  • Dröfn notar einskonar aukasjálf þegar hún bloggar. Hún mun vera prýðilega máli farinn en kýs að tjá sig eins og 13 ára stelpa.

    By Blogger Teitur Atlason, At 21. ágúst 2008 06:08  

  • Skil, takk fyrir útskýringuna.

    Mér finnst einmitt þreytandi til lengdar þegar fólk talar alltaf um sig sem einhvern karakter. Oftar en ekki til að gera sig áhugaverðara á annan hátt en þeir eru vanalega. Meðan mig langar mest að lesa um fólkið eins og það er. :).

    Gott samt að ekki séu öll blogg eins.

    By Anonymous María Guðbjörg, At 21. ágúst 2008 20:18  

Sendu inn athugasemd

Subscribe to Post Comments [Atom]



<< Heim