miðvikudagur, 27. ágúst 2008

Samgöngumálanefnd Alþingis

Samgöngumálanefnd Alþingis kynnti sér á dögunum vegamál í Reykjavík. Það heyrði til nýlundu að nefndin færi ekki neitt út á land heldur væri þar sem umferðin er mest og því. Venju samkvæmt var samt ákveðið að taka á leigu lúxushótel í Reykjavík fyrir nefndarmenn þrátt fyrir að allir nema einn byggi á höfðuborgarsvæðinu.

Hérna er listi yfir nefndarmenn sem gistu á lúxushótelinu og hvar þeir búa.

Árni Johnsen býr í Rituhólum 5 í Reykjavík
Árni Þór Sigurðsson býr á Tómas arhaga 17 í Reykjavík
Guðjón A Kristjánsson býr í Reykjabyggð 20 í Mosfellsbæ
Herdís Þórðardóttir býr að Bjarkargrund 8 Akranesi
Karl V. Matthíasson býr að Flúðaseli 72 Reykjavík
Ólöf Nordal býr á Reynimel 44 í Reykjavík

Það sem er hrollvekjandi við þessa lúxushótels-gistingu er ekki endilega sú heimska og fordæmalaus fjárjóstur sem felst í þessum gerningi, heldur sjálftöku-hugsunarhátturinn.

"Gerum-þetta-bara-Ríkið-borgar-hugsunarhátturinn" er að því er virðist vera þessu fólki inngróinn. Þau gleyma öll að þau eru þjónarnir okkar, kosnir af almenningi til 4 ára til að fara með ákveðið vald. Meðlimir samgöngumálanefndar líta ekki svo á. Þau líta sem svo að þau hafi valdið til eignar og geti því gert það sem þeim dettur í hug.

-Þjónarnir okkar eru að ræna okkur.


0 comments: