
Ósvífinni ritskoðun hefur verið beitt á vef Alþingis. Ræða Guðna Ágústssonar hefur verið "fegruð".
Matthías Ásgeirsson benti á þetta í blogginu sínu. Óli Gneisti tekur undir. Ég hvet ykkur lesendur góðir að kynna ykkur þetta mál.
Eru fleiri en Guðni búnir að "leiðrétta" það sem sagt var í raun og veru? Eru þetta vinnubrögð sem eru einstök eða almennur háttur alþingismanna? Óteljandi spurningar vakna.
Getur virkilega verið að Guðni Ágústsson hafi vísvitandi breytt ræðu sinni á Alþingisvefnum? Ef svo er, hversvegna gerði hann það? Skammaðist hann sín fyrir ræðuna sína?
Er ekki alvarlegt að breyta opinberum gögnum á borð við ræðum Alþingismanna?
0 comments:
Sendu inn athugasemd