laugardagur, 30. ágúst 2008

Skammaður.

Gunnar Örn Heimisson skammar mig á blogginu sínu. Hann segir mig vera lélegan í stafsetningu, taglhnýting Jónasar Kristjánssonar og umrita mitt eigin blogg. -Þetta er allt rétt hjá Gunnari.

Ég er frekar slappur í stafsetningu og skrifa frekar hratt á lyklaborðið, því slæðast inn meinlegar villur. Einhverra hluta vegna skrifa ég alltaf "fynnst" en ekki "finnst". Þetta er meinloka.

Ég er líka hrifinn af skrifum Jónasar Kristjánssonar þessa stundina. Sennilega vegna þess að ég er að lesa Chomsky.

Það er bara eitt sem ég er ósáttur við palladóm Gunnars. Ég er ekki "wannabe" intelektúal. Ég er intelektúal. Ekkert "wannabe" í því dæmi. Þessi skoðun, að það sé eitthvað slæmt við að vera intelektúal er í rauninni rannsóknarefni. Það er hálfgert tabú að vera intelektúal og viðurkenna það. En hinu er ekki að neita að það er sjaldan að fólk sé beinlínis bríkslað um að vera intelektúal en það segir hinsvegar mikið um bríkslarann og almenningsálitið sem mótar bríkslarann.

Þessi almenna skoðunn samfélagsins að "itelektúal" sé skammaryrði er ugglaust ein af þeim rótum sem hafa haldið aftur að almennilegri þjóðfélagsumræðu á Íslandi. Ég hef bloggað um hinn sára skort á því að besta fólkið okkar skipti sér að þjóðfélagsmálum og hafi látið stjórmálamönnum eftir að móta þjóðfélagsumræðuna. Sú staðreynd hefur skilað sér í því spillta og súra samfélagi sem við upplifum á hverjum degi. Meir að segja þingmaður VG sem stærir sig af því að vera með hreinar hendur í allir stjórnsýslu finnst eðlilegt að stela frá skattborgurunum.



Auðvitað er alltaf gaman að fá gagnrýni á sjálfan sig og enn skemmtilegra að fá gagnrýni frá Gunna sem birti mynd af typpinu á sjálfum sér á blogginu. :)

- (auðvitað er þetta ekki spottinn á Gunnari Erni, en ég bara varð...)

5 comments:

Gunni sagði...

Sæll Teitur.

Gaman að sjá að þú tekur gagnrýninni svona vel. Ég skrifaði "wannabe" bara til að pirra þig aðeins og fá smá umræðu um meinta intellektúala í bloggsamfélaginu. Svo er ég sammála þér um myndina af typpinu -hún er stórkostleg.

P.s.

Maður skrifar brigsl en ekki bríksl.

Teitur Atlason sagði...

Maður verður að hafa gaman að þessu.... :)

Annars kemur ekki fram á blogginu þinu hvað þú heitir fullu nafni. Ég vil endilega breyta "einhver Gunnar" í "Gunnar Einhversson"...

Gunni sagði...

Ég heiti Gunnar Örn Heimisson.

P.s.

Maður hefur ´gaman af´ hlutum en ekki ´gaman að´ þeim... :)

Teitur Atlason sagði...

Hættu...

Gunni sagði...

Sorrý. Ég átti nú samt smá inni vegna typpamyndarinnar. :)