föstudagur, 15. ágúst 2008

Íslensk intelígensía

Prófessorar og lektorar hafa ekki áhuga á samfélagsmálum. Besta fólkið neitar að hafa skoðun. Mér skilst að einu hitamálin í intellígensíunni sé rifrildi um skrifstofur í Háskólanum. Þetta er miður. Besta fólkið á að sjálfsögðu að tjá sig um mál sem eru í deiglunni hverju sinni. Af hverju skrifa læknar ekki um kuklara sem hafa fé af veiku fólki?

Af hverju skrifa sálfræðingar ekki um þá fjárplógsstarfsemi sem þrífst í kringum fólk sem orðið hefu fyrir áfalli. Af hverju tjá viðskiptafræðingar eða hagfæðingar sig ekki um kosti og galla þess að taka upp evru. Af hverju eru heimsspekingar ekki meira áberandi í þjóðfélagsumræðunni. Þeir sem einmitt ættu að hafa sem hæst. Intelígensían hefur afar mikilvægu hlutverki að gegna fyrir almennilegt samfélag. Hún að leiða og útskýra þjóðfélagsumræðuna hverju sinni.

Við höfum látið stjórnmálamönnum eftir að leiða umræðuna í samfélagnu. það er miður. Þeir eiga að vera hluti af henni en það er fasískt einkenni ef stjórmálamenn leiða umræðuna.

Nú fyrir skömmu bloggaði heimsspekingurinnn Stefán Valdimar um málfar á tiltekinni bloggsíðu og eins og gefur að skilja túlkuðu vitleysingar internetsins á þann hátt að hann vildi BANNA sumar bloggsíður. Augljóst er að við suma verður ekki tjónkað. Mér þykir framtak Stefáns vera frábært. Þarna er hann að skipta sér af málum sem eru í deiglunni í stað þess að sitja spekingslegur og spekúlera hvaða skrifstofuherbergi hann girnist mest. Sigríður Þorgeirsdóttir lektor var einnig áberandi í umræðunni um stjóriðjumál.

Besta fólkið okkar á að skipta sér af. Við getum ekki látið vitleysingunum eftir að leiða þjóðfélagsumræðuna. Heimskan hefur verið færð upp á stall og heimskudýrkun þykir ekkert merkileg. Er orðin að normal ástandi. Orð Dr. Kings koma í hugann:

"Yet our best trained, best educated, best equipped, best prepared troops refuse to fight! Matter of fact, it's safe to say that they would rather switch than fight!"

0 comments: