Haukur Leósson þáverandi stjórnaformaður OR fær "gefins" nokkrar stangir í dýrustu laxveiðiá landsins frá Baugi. Haukur býður síðan Vilhjálmi Þ Vilhjálmssyni (borgarstjóra), Birni Inga Hrafnssyni (þáverandi varaformanni stjórnar Orkuveitunnar og RE), Guðlaugi Þór Þórðarsyni (Fyrrverandi stjórnarformanni OR) í lax. verðmæti þessarar gjafar er um 550.000 fyrir hvern þeirra þriggja.
Mánuði síðar er gerð tilraun til þess frá Baugi ( í gegnum FL-Group) að sölsa undir sig Orkuveitu Reykjavíkur.
-o-o-o-o-
Guðlaugur Þór segist hafa endurgreitt sinn hluta enda vandur að virðingu sinni. Væri þá ekki ráð að fara fram á að Guðlaugur sýndi fram á það með einhverjum hætti? Hann gæti t.d sýnt fram á millifærslu eða þvíumlíkt. Það er bara faglegt og eykur traust.
Hugsanlega hefur Guðlaugur þó greitt Hauki Leósyni í reiðufé og erfitt að sýna með beinum hætti fram á það að Gulli hafi greitt Hauki. Ágætu lesendur. Hvað er að þessari mynd!
Guðlaugur Þór heilbrigðisráðherra og fyrrverandi stjórnarmaður í OR lætur Hauk Leósson fá umslag með 550 þúsund.
- - Smá hush-hush en enginn glæpur..
0 comments:
Sendu inn athugasemd