Komið hefur í ljós að veiðiferðin i boði Baugs mun hafa kostað Hauk Leósson um hálfa miljón í stað 1,8 miljóna sem er raunverð. Hann mun því hafa fengið þessar stangir á sannkölluðum Bónuskjörum.
Mér finnst þetta vera alltsaman hið grunsamlegasta mál. Hvaða sannanir eru fyrir því að Haukur hafi í raun greitt fyrir stangirnar? Hvaða sannanir eru fyrir því að Guðlaugur Þór hafi endurgreitt Hauki? Ef að rétt reynist, að Guðlaugur hafi í raun endurgreitt Hauki sinn hluta, hvað gerði Haukur við féð? Hirti hann það ellegar lét hann Baug fá það aftur?
Það þarf engann spesíalista til þess að fatta að svona boðsferðir eru ígildi beinharðra peninga eins og sannast í þessu dæmi.
Það er með algerum ólíkindum að svona mútur tíðkist. Það er einnig með ólíkindum að fulltrúar almennings skuli vera svo einfaldir að sjá ekki tilganginn með svona laxveiðiferðum. Það er ljóst að ekki er hægt að treysta á siðferðiskennd kjörinna fulltrúa og það verður því að setja skýrar reglur og lög um svona múturferðir.
Hugsanlega líta kjörnir fulltrúar almennings á svona boðs eða mútuferðir sem hluta af ávöxtum valdsins og telja það eðlilegt að "njóta dagsins". það viðhorf var allavega ríkjandi fyrir ekki svo mörgum áratugum. Þessu tímabili er lokið. Því miður fyrir marga. Aðgangsharka fjölmiðla, virkt bloggsafélag og upplýstur almenningur krefst þess að mútur til handa stjórmálamönnum tilheyri fortíðinni en ekki nútiðinni.
Fyrir nú utan það smekkleysi þeirra sem völdin hafa hverju sinni að finnast það eftirsóknarvert að vera í ölvunarástandi út í fagurri á, búnir að míga bjórnum í vöðlurnar.
0 comments:
Sendu inn athugasemd