EIMREIÐIN - veður í gegnum (moð)reykinn

þriðjudagur, 2. september 2008

Athyglisverður samanburður.

Einkabílstjórar borgarstjóra og forseta borgarstjórnar kosta Reykvíkinga á bilinu 1 - 1.5 miljónir á mánuði. (12 -18 miljónir á ári). Sé þetta fé skoðað í samhengi við aðra útgjaldaliði borgarinnar renna á mann tvær grímur, ef ekki þrjár.

Fyrir þetta fé er hægt að fjölga stöðugildum á leikskóla eða frístundaheimili. Sé svo skoðaður sá mikli ávinningur sem felst í auknum skattekjum vegna þess að tveir Reykvíkingar borga jú hærri skatt en einn má með sanni segja að þessu fé sé betur varið heldur en í rekstur bíla og bílstjóra fyrir toppana í starfsliði Reykjavíkurborgar.

Þetta fé mætti líka nota til þess að auka löggæslu, setja í forvarnir gegn fíkniefnum eða hreinlega spara þá. Setja inn á bók og láta féð ávaxtast. Það hlýtur að vera hægt að eyða þessu fé á annan hátt en í svona (óverðskuldað) pjatt.

Í staðinn telja borgarfulltrúar Reykvíkinga það vera meira knýjandi að hafa bílstjóra og bíl til þess að skutlast með borgarstjóra og forseta borgarstjórnar.

Hugleiðingin sem kveikti þessa bloggfærslu var þessi: Hvað ætli bílstjórinn skutlist mikið með borgarstjóra og forseta borgarstjórnar? Er það bara til og frá vinnu? Eru stöðugir fundir út um allan bæ hjá þessu fólki? Getur það ekki brúkað sinn eign bíl til þess arna? hvað er svona hræðilegt að keyra í 10 minútur á fund, leggja í stæði og borga í stöðumæli. Við gerum þetta jú öll því fæst okkar hafa einkabílstjóra í vinnu. Ætli það sé mikið vinnuálag hjá þessum bílstjórum? Mig langar til að vita hvað þessir bílar og bílstjórar kosta Reykvíkinga á mánuði. Mig langar líka að vita hvað þessir lúxusþjónusta sé mikið notuð. Getur verið að þessir bílstjórar geri ekkert annað en að skutla borgarstjóra og forseta borgarstjórna til og frá vinnu? -Hvað segir VG um þetta bruðl?

En eins og oft þegar svona hluti ber á góma er okkur talin trú (frá yfirvöldum) um að þetta sé bráðnauðsynlegt og beinlínis peningasparandi.

-Einmitt..

0 Comments:

Sendu inn athugasemd

Subscribe to Post Comments [Atom]



<< Heim