miðvikudagur, 10. september 2008

Eimreiðin riðar til falls

Eftir óvænta lokun á vefsvæði Eimreiðarinnar vegna skulda, hefur náðst samkomulag við skuldunauta félagsins og vefurinn opnað að nýju. Aðal lánadrottinn Eimreiðarinnar var ISNIC sem lokað vefsíðunni í kjölfar ítrekaðra viðvaranna.

Nýjir hluthafar hafa komið að félaginu og er það móðir mín og stjúpi. Þau lánuðu mér 5000 kall. Ég hef strítt við langvarandi blankheit undanfarna 2 mánuði enda verið tekjulaus. Sænska ríkið hefur dregið á langinn foreldrapeninga sem ég hef rétt á. Það er ólýsanleg tilfinning að komast á sósialinn í fyrirmyndarríkinu og opnar óvæntar dyr. Ég er tilbúin að deila mér lesendum Eimreiðarinnar öllum trixunum í bókinni til þess að komast hjá því að sjá sjálfum sér farborða og lifa eins og padda á velferðarkerfinu.

Nú er bjartara yfir og Eimreiðin mun fara á fulla ferð á næstu klukkustundum með svæsnum afhjúpunum úr ógeðfeldustu skúmaskotum íslensks og sænsks samfélags. Einnig verður fjallaði ýtarlega um VOLVO-museum og gripina þar sem fyrir augun ber.

2 comments:

Nafnlaus sagði...

Gott að þú skulir vera byrjaður aftur.

Annars ættirðu að íhuga .eu .info uzw lén, færð þau fyrir eh hundraðkalla á ári, hýsing innifalin.

Þinn vinur,
Hannes H., ríkisstarfsmaður.

Henry H. sagði...

Ég myndi aldrei leigja .is þó ég væri milli. Kæmi ekki til greina.