EIMREIÐIN - veður í gegnum (moð)reykinn

þriðjudagur, 2. september 2008

Einkabílstjóri forseta

Ekki vissi ég að forseti borgarstjórnar væri með einkabílstjóra. Reynir Traustason ritstjóri DV greinir frá þessu í framhjáhlaupi í ágætum leiðara í DV í gær.

Nú loksins skil ég eftirsóknina í þennan bittling.

Ég fatta reyndar ekki þessa djúpstæðu þrá opinberra þjóna að hafa einkabílstjóra. Ávextir valdsins eru margir hverjir sérstakir. Ætli það kosti ekki 500 - 600 þúsund á mánuði af skattpeningum Reykvíkinga að halda úti einum einkabíl. Þessir einkabílstjórar og bílanna sem þeir skutlast með fína fólkið kostar þá í kringum eina og hálfa kúlu á mánuði.

Almenn sátt og þverpólitísk virðist ríkja um þetta rugl.

0 Comments:

Sendu inn athugasemd

Subscribe to Post Comments [Atom]



<< Heim