fimmtudagur, 11. september 2008

Félag gegn einhverju.

Ég er meðlimur í Vantrú sem er félag gegn hindurvitnum (þ.m.t trúarbrögðum) og bætti um betur og gekk í félag gegn Stefáni Friðriki endursegjanda á moggablogginu. Mér þykir þetta bara svo fyndið. Ég þekki þennan Stefán ekki neitt, les sjaldan bloggið hans (þvi hann umorðar bara fréttir sem hafa þegar verið birtar) og hef aldrei séð manninn.

Þetta er samt óborganlegt. Að hópur fólks taki sig saman og stofni FÉLAG gegn manni. -Brillíant.

Ég er því meðlimur í tveimur félögum sem er beint gegn ákveðnum öflum í samfélaginu. Hindurvitnum og Stefáni Friðrik.

2 comments:

Gunnlaugur sagði...

Þetta er sami hlutur í mínum huga, því að ég legg engan trúnað á að þessi Stefán Friðrik sé til. Ég kalla Poeslögmál á Stefán Friðrik. Sköpunarverk Hnakkusar, býst ég við.

Nafnlaus sagði...

Mér finnst afskaplega ósmekklegt af fólki að vera að leggja mongólíta í einelti.