EIMREIÐIN - veður í gegnum (moð)reykinn

föstudagur, 5. september 2008

Frábær bloggfærsla

Maurildis bræður eru merkilegir bloggarar. Þeir eru í miklu uppáhaldi hjá mér og ég les alltaf bloggið þeirra. Stundum hitta þeir naglann þvílíkt á höfuðið eins og með þessari færslu. Það er alltaf gaman að sjá vitrænar greiningar á málum sem eru í deiglunni hverju sinni. Þeim tekst það furðu oft.

Ég sjálfur hneykslaðist á færslum Matthíasar en sé nú ljósið. Auðvitað er kallinn að gera upp lífið sitt. Hann gerir það meir að segja á heiðarlegan hátt. Nokkuð sem sætir algerum undrum. Hann er ekki að smíða sér glansmynd. Hann segir bara eins og er. Kjaftasögur, hugleiðingar, ljóð og hvernig samfélaginu var stýrt á mektardögum Morgunblaðsins.

Ég sé þessar dagbókarfæslur sem einhverskonar yfirbótarvinnu áður en myrkrið skellur á.

Mér dettur bara eitt í hug.


0 Comments:

Sendu inn athugasemd

Subscribe to Post Comments [Atom]



<< Heim