French Kiss.
Ég man þegar ég heyrði house tónlist í fyrsta skiptið. Það var á Hótel Borg í árið 1989. Ég varð fyrir hnaski ef svo má að orði komast. Acid House. :)
Eftir það var ekki snúið og ég hef aldrei getað losnað við elektróið síðan. Ég hef fylgst nokkuð vel með og reyni að ná mér í nýjasta stöffið frá Beatport. Sú vefsíða er plötubúðin mín. Ég var að fara í gegnum nokkur eftirminnileg lög um daginn og ég fann eftirminnilegasta lagið. French Kiss með Lil Louis. Geðveikt lag sem hefur verið notaði í 1000 skipti í allskonar útgáfum. Ótrúlega frumlegt lag þrátt fyrir endalausa lúppu. Takturinn í laginu minnkar í miðbikið (4 mín og 6 sek) og fer niður í ekki neitt (5 mín og 6 sek). Svo heldur lagið áfram. Það er eitthvað furðulega seiðandi við þetta lag. Sú flökkusaga gengur um tilurð lagsins að höfundurinn var nýbúin að heyra svona minimal stefnu og fannst hún frekar ómerkileg og ákvað að gera eitt minimal house til að stríða vinum sínum. Afraksturinn er ett eftirminnilegasta house lag í al-heiminum. Hérna er French Kiss.

0 Comments:
Sendu inn athugasemd
Subscribe to Post Comments [Atom]
<< Heim