Fórnardauði Jesúsar..
Nýlega opnaði ríkiskirkjan einskonar "efnisveitu" fyrir námsefni handa sunnudagaskólum. Ég kíkti á þetta af gamni og í fyrsta skjalinu sem ég opnaði kom þetta í ljós:
Hérna er á ferðinni klassísk útskýring á fórnardauða Jesúsar. En ég fjallaði um hana í grein sem ég reit á bloggið mitt undir titlinum "trúlausi guðfræðingurinn". Nokkrum dögum síðar birtist þessi bloggfærsla í Fréttablaðinu.
Bjarni Karlson prestur sá ástæðu til þess að svara grein minni og notaði meginpart af svarinu til að hnýta útskýringa mínar um fórnardauða Jesúsar. Hann bjó reyndar til afar sérstaka túlkun á fórnardauðanum sem kalla má "guð við eldhúsborðið".
Bjarna til upplýsingar má segja að útskýring mín á fórnardauða Jesúsar er sú sama og kennd er í sunnudagaskólum landsins.
Hérna er svo útskýring séra Bjarna á fórnardauðanum.
Ég er ennþá að brjóta heilann um hvað Bjarni á við. Þetta er allavega ekki hefðbundinn útskýring á fórn. Bjarni snýr við fórnarhugtakinu. Hann segir að [við erum í sífellu að færa fórnir hvort sem þær birtast í kynþáttahatri, kynjamisrétti, barnaþrælkun, mansali, samkynhneigðarhatri, andúð á náttúrunni eða hverri annarri mynd]. Hugtakið "fórn" í þessum skilningi Bjarna er ekki sú sama og flestir skilja og nota. "Fórn" felur í sér að minni hagsmunum sé fórnað fyrir meiri hagsmuni (í flestum tilfellum). Markmaður ákveður t.d að láta sjálfan sig vaða á stöngina (vitandi að hann meiðir sig ellegar slasast) til að forða frá marki. Foreldri fórnar vinnuframa á kostnað þess að börnin sín séu heima við. Í tilfelli kristindómsins fórnar Jesús lífinu fyrir allar manneskjur þvi hann tekur syndir mannkynsins með sér í dauðann. Fórn er aldrei það sama og slæmt ástand (eins og Bjarni tekur dæmi af). Bjarni segir að við séum alltaf að færa fórnir á borð við kynþáttahatur, kynjamisrétti osfr. Hvaða fórn er það? Hvernig virkar sú fórn að hafa eða eyða kynþáttamisrétti? Hvaða meiri hagsmuni felur kynjamisrétti í sér sem er fórnað. Ég á virkilega erfitt að skilja Bjarna Karlson eins ágætur og hann er.
Það væri gaman að heyra í Bjarna hvað þetta varðar.
Einu sinni var ekkert til,
nema Guð. Hann hafði alltaf
verið til og nú langaði hann
til þess að skapa fallegan
heim. Hann skapaði himininn
og jörðina, öll dýrin
og mennina. Fyrsta fólkið
sem hann skapaði voru
Adam og Eva.
Adam og Eva bjuggu í fallegum garði sem hét Eden. Þar leið þeim mjög vel, þar
til einn daginn. Guð hafði sagt þeim að þau ættu borða af öllum trjánum í garðinum
nema af skilningstré góðs og ills. Adam og Eva freistuðust til þess að fá sér
bita af ávexti trésins. Þar með höfðu þau óhlýðnast Guði. Þau urðu frek og eigingjörn
og gerðu margt sem var ekki gott. Börnin þeirra gerðu líka margt sem
ekki var gott og barnabörnin þeirra líka og barna, barna börnin þeirra. Guð var
leiður yfir því.
Hann horfði yfir jörðina og hugsaði um það hvað
hann ætti til bragðs að taka. – Ég verð að frelsa
mennina frá syndum þeirra – en það er allt það illa
sem mennirnir geta látið sér detta í hug að gera.
Og Guð ákvað að senda son sinn Jesú til að hjálpa
þeim.
Fyrst var Jesú bara
lítið barn. Þið þekkið
kannski söguna um
litla Jesúbarnið.
Hér skulum við setja mynd af honum.
En Jesús var ekki alltaf lítið barn. Hann stækkaði
og varð fullorðinn maður. En mennirnir krossfestu
hann. Þá sagði Jesús við Guð föður sinn á himnum:
Faðir, fyrirgef þeim því þeir vita ekki hvað þeir gera.
Hann tók alla sök mannanna á sig og ákvað að deyja
fyrir þá alla.
Jesús reis aftur upp frá dauðum. Hann sigraði bæði
dauðann og syndina. Jesús fyrirgefur okkur allt sem
við gerum rangt. Þegar Jesús fór til himna sagði hann:
Ég verð alltaf hjá ykkur. Svo sagði hann líka annað:
Alltaf þegar þið hittist til þess að tala um mig eða biðja
til mín þá er ég hjá ykkur.
Hérna er á ferðinni klassísk útskýring á fórnardauða Jesúsar. En ég fjallaði um hana í grein sem ég reit á bloggið mitt undir titlinum "trúlausi guðfræðingurinn". Nokkrum dögum síðar birtist þessi bloggfærsla í Fréttablaðinu.
Bjarni Karlson prestur sá ástæðu til þess að svara grein minni og notaði meginpart af svarinu til að hnýta útskýringa mínar um fórnardauða Jesúsar. Hann bjó reyndar til afar sérstaka túlkun á fórnardauðanum sem kalla má "guð við eldhúsborðið".
Bjarna til upplýsingar má segja að útskýring mín á fórnardauða Jesúsar er sú sama og kennd er í sunnudagaskólum landsins.
Hérna er svo útskýring séra Bjarna á fórnardauðanum.
Mér þykir gott að skilja fórnardauða Jesú með þeirri hugsun að hann hafi breytt fórnaraltarinu í eldhúsborð. Kristindómur er í mínum huga samfélag um eldhúsborðið þar sem fjölskyldan deilir kjörum. Í stað þess að hringa sig um fórnaraltarið sem á öllum öldum stendur í mannfélaginu miðju, þar sem við erum í sífellu að færa fórnir hvort sem þær birtast í kynþáttahatri, kynjamisrétti, barnaþrælkun, mansali, samkynhneigðarhatri, andúð á náttúrunni eða hverri annarri mynd þvingunarvaldsins, - í stað þessarar sífelldu fórnariðkunar sem ætíð hefur fylgt mannkyni virðast mér nýir lífsmöguleikar blasa við í Jesú Kristi. „Takið og etið" segir hann þar sem við sameinumst við elhúsborðið, altarið. „Látið mig vera síðasta eineltisbarnið. Borðið mig! Látið mig vera síðasta þrælinn, síðasta nauðgunartilfellið, síðasta hommann sem er svívirtur vegna kynhneigðar sinnar, síðustu konuna eða útlendinginn sem ekki fær notið mannréttinda vegna kynferðis eða kynþáttar. Borðið mig! Auðmýkið ykkur með því að neyta mín og játið þannig að þið hafið brotinn vilja sem vill neyta lífsins í stað þess að þjóna því."
Ég er ennþá að brjóta heilann um hvað Bjarni á við. Þetta er allavega ekki hefðbundinn útskýring á fórn. Bjarni snýr við fórnarhugtakinu. Hann segir að [við erum í sífellu að færa fórnir hvort sem þær birtast í kynþáttahatri, kynjamisrétti, barnaþrælkun, mansali, samkynhneigðarhatri, andúð á náttúrunni eða hverri annarri mynd]. Hugtakið "fórn" í þessum skilningi Bjarna er ekki sú sama og flestir skilja og nota. "Fórn" felur í sér að minni hagsmunum sé fórnað fyrir meiri hagsmuni (í flestum tilfellum). Markmaður ákveður t.d að láta sjálfan sig vaða á stöngina (vitandi að hann meiðir sig ellegar slasast) til að forða frá marki. Foreldri fórnar vinnuframa á kostnað þess að börnin sín séu heima við. Í tilfelli kristindómsins fórnar Jesús lífinu fyrir allar manneskjur þvi hann tekur syndir mannkynsins með sér í dauðann. Fórn er aldrei það sama og slæmt ástand (eins og Bjarni tekur dæmi af). Bjarni segir að við séum alltaf að færa fórnir á borð við kynþáttahatur, kynjamisrétti osfr. Hvaða fórn er það? Hvernig virkar sú fórn að hafa eða eyða kynþáttamisrétti? Hvaða meiri hagsmuni felur kynjamisrétti í sér sem er fórnað. Ég á virkilega erfitt að skilja Bjarna Karlson eins ágætur og hann er.
Það væri gaman að heyra í Bjarna hvað þetta varðar.


0 Comments:
Sendu inn athugasemd
Subscribe to Post Comments [Atom]
<< Heim