Leikkonan Linda Hamilton, sem er 51 árs gömul, varð heimsfræg þegar hún lék Söruh Connor í kvikmyndinni Terminator 2: Judgement Day.
Arnold Schwarzenegger, sem lék tortímandann, á vinsælustu setningu kvikmyndasögunnar sem flestir nota við hversdagslegar aðstæður samkvæmt könnun sem bresk vefsíða kvikmyndastofnunar gerði meðal 2000 áhugamanna um kvikmyndir.
Í myndinni lofar Arnold að snúa aftur þegar hann segir: „I'll be back."
Það sem vekur hinsvegar athygli fjölmiðla vestan hafs er að Linda hefur látið í minni pokann fyrir ellikerlingu eins og sést á meðfylgjandi mynd.
Eru blaðamenn Vísis drukknir í vinnunni? Hvaða rugl er þetta eiginlega? Þessi frétt er ekki bara efnislega hæpin (Linda Hamilton sló í gegn í Terminator nr 1.) heldur er málfarið i fréttinni svo asnalegt að blaðamaðurinn sem skrifaði hana hlýtur að vera í ölvunarástandi.
Skál!.
2 comments:
Ég geri athugasemd við að kona sé fréttaefni fyrir það eitt að eldast eðlilega.
-Nákvæmlega! Hvar er fréttin?
Sendu inn athugasemd