EIMREIÐIN - veður í gegnum (moð)reykinn

fimmtudagur, 4. september 2008

Hjólið "mitt"

Þetta er hjólið sem ég er á þessa stundina. Ég fékk það lánað hjá Oddi öðlingi. Þetta er 17 ára DBS hjól, framleitt í Noregi. Ég man eftir þessum hjólum þar sem þau voru til sölu í Fálkanum á Suðurlandsbraut fyrir alltof mörgum árum. Þetta voru dýrir gripir (ekki þó dýrgripir) og kostuðu á það sama og 2 eða 3 hefðbundin hjól.

Þegar ég fékk það voru gírarnir í ólagi. Ég skrúfaði gírana í sundur og það eina
sem var að var að olían sem smyr gíranna var orðin svo þykk að eitthvað hak sem smellti gírunum á sinn stað færðist ekki boffs. Ég sprautaði smá ryðolíu á þykkildið og viti menn: Gírarnir virka sem aldrei fyrr.


DBS hjólin voru sannkallaðir Rollsar reiðhjólanna. Þau eru ennþá framleidd þótt ég sé alveg hættur að sjá þau á götunni. Ódýr Bónus eða Hagkaups-hjól eru núna út um allt. það er synd. Þetta eru druslur sem verið er að pranga innan á fólk. Fólk ætti að fara í REIÐHJÓLAVERSLANIR til að kaupa sér hjól. Ekki í Hagkaup. Ég keypt hjól í Markinu og fékk flotta þjónustu. Eiginlega alveg frábæra.

0 Comments:

Sendu inn athugasemd

Subscribe to Post Comments [Atom]



<< Heim