þriðjudagur, 23. september 2008

Hollvinir Háskóla Íslands.


Undanfarin ár hefur trúleysingjafélagið Vantrú, aðstoðað fólk við að leiðrétta trúfélagaskráningu sína. Nú er það svo að flestir vita ósköp lítið um trúfélagaskráningu, sóknargjald og hvernig þetta virkar allt. Við í Vantrú höfum s.s bent fólki á þann órétt sem felst í því að trúlausir þurfa að greiða sóknargjald. Í stuttu máli er dæmið svona:

10.500 krónur eru teknar í skatt af hverjum vinnandi manni á ári. Þetta fé rennur svo til þess trúfélags sem viðkomandi er skráður í. Ef viðkomandi er ekki í neinu trúfélagi rennur féð til Háskóla Íslands.

Er þetta bara ekki í lagi, kemur einhver til með að hugsa. Svarið er eitt stórt NEI.
  • Það er óréttlæti fólgið í því að trúfélög láti ríkið innheimta félagsgjöldin sín.
  • Það er óréttur að trúlausir þurfi að greiða til Háskóla Íslands.
  • Það er óréttur gagnvart öðrum skólum á háskólastigi að Háskóli Íslands hljóti einn þennan skatt.
Fólki munar um þennan 10.500 kall og á sjálft fá að ráða því hvernig þessu fé er ráðstafað. Sumir vildu eflaust frekar greiða til Barnaheilla, Unicef eða Kattholts. Eða bara fara eina ferð í Bónus. Kaupa sér tölvuleik eða hvað sem er.

Í tilfelli ríkiskirkjunnar þá fer þetta fé bara í rekstur stofnunarinnar (laun starfsmanna, húsnæði osfr) og allar kirkjulegar athafnir kosta samt sem áður peninga. Það hefur s.s engin áhrif á það hvort fólk muni gifta sig, jarða ástvini eða skíra börnin sín þótt að viðkomandi standi utan ríkiskirkjunnar. Alla þjónustu er hægt að fá burt séð frá trúfélagaskráningu þess.

Þessu er reyndar öðru vísi farið í Fríkirkjunni í Reykjavík en þar er öll þjónusta innifalin í sóknargjaldinu. Það kostar ekkert aukalega að gifta sig, skíra eða þvíumlíkt. -Flott hjá Fríkirkunni!

Á liðnum árum hefur Vantrú aðstoðað 666 manns (mú-ha-ha-ha) við að leiðrétta trúfélagaskráningu sína. langflestir hafa skráð sig úr ríkiskirjunni. Flestir skrá sig utan trúfélaga og allmargir í Fríkirkjuna í Reykjavík, Ásatrúarfélagið eða Fríkirkuna í Hafnarfirði. Þeir sem hafa skráð sig utan trúfélaga styrkja með því Háskóla Íslands um sem nemur 10.500 árlega!. Ég tók niður að gamni tölur í kringum þessa staðreynd.

600 manns skrá sig utan trúfélaga þýðir að Háskóli Íslands fær 6.3 miljónir ÁRLEGA. þetta samsvarar sennilega einni prófessorsstöðu við þá ágætu stofnun.

-Með smá leikfimi má segja að Vantrú séu mestu hollvinir Háskólans.


Auðvitað sjá allir að svona styrkjakerfi er út í hött. Ef að ríkið vill endilega taka 10 þúsund kall í skatt frá hverjum borgara ætti borgarinn sjálfur að ráða þvi hvert þessi peningur fer. Ef að forsjárhyggjan er á þetta háu stigi þá á amk að auka möguleika skattgreiðenda á því að velja hvar þessir peningar enda. Ég vildi t.d styrkja SÁÁ með 10 þúsund kalli árlega. Eða skipta niður milli SÁÁ og Amnesty. Lausnin á þessu gæti verið að á skattskýslu hvers og eins er hægt að haka við það félag sem maður vill að sóknargjaldið renni til. Þetta er að vísu forsjárhyggja dauðans en mikið skárri en núverandi kerfi þar sem fólk er bundið við að velja á milli mis-gáfulegra trúfélaga ellegar Háskóla Íslands.

0 comments: