Innanlandsflug til Keflavíkur
Ég hef löngum undrast yfir því að það sér andstaða við að flytja innanlandsflugið til KEF. Keflavíkurflugvöllur er aðeins 30 - 40 mínútur í burtu frá RVK (eftir því hvar maður býr). Með því móti þarf ekki að byggja nýjan flugvöll. Peningana sem sparast við það ætti fremur að nota í að bæta samgöngur milli höfuðborgarsvæðisins og Reykjanesbæjar. Sumir hafa talað fyrir lestarsamgöngum og ekki að ástæðulausu. Það liggur einhvernvegin kylliflatt að hafa lest á milli Reykjavíkur og Keflavíkur. Lest sem færi þessa vegalengd á 20 mínútum eða jafnvel skemur. Fólk gæti þá jafnvel beðið á biðstofu eftir flugi í Reykjavík, hoppað upp í lest og flogið út í buskann. Sama kerfi má notast við í millilandaflugi. Biðstofan er beinlínis í Reykjavík þótt flugvöllurinn sé í KEF.
Ég hef farið ansi oft til Keflavíkur. Þar sem ég bjó á Ásvallagötu tók það mig oft drjúgan tíma að komast suðrí Hafnarfjörð og á hraðbrautina. Þessi spotti tók svona 1/3 af heildartímanum út í KEF.
Það væri stórkostlegt að geta keyrt upp í Mjódd, lagt bílnum og hoppað með ferðatöskuna upp í lest. Lesti myndi svo stoppa inn í flugstöðinni og innritun væri á sama stað. Svona er þetta á Kastrup. Lestin stoppar inn í flugstöðinni.
Úrtölufólk segir að innanlandsflugið verði að vera í Reykjavík miðri því oft er hætt við flug á síðustu stundu. Þetta mun ekki breyta neinu. Sama hlyti að gilda um flug frá KEF. Annars koma þessi tilfelli svo sjaldan upp að fáránlegt væri að nota þetta sem rök fyrir áframhaldandi veru flugallar í Reykjavík.
Auðvitað ættu sveitarfélögin á Suðurnesjum að knýja á um að þessi leið verði farinn. Það eru miklir hagsmunir í húfi og svona lest myndi sameina þessi atvinnusvæði ennfrekar. það væri t.d mun auðveldara að búa í KEF og ástunda vinnu í R-vík. 2o mínútur í lest og svo bíltík eða strætó.

1 Comments:
Ég er svo sem sammála þér með það að líkast til mun innanlandsflugið flytjast til Keflavíkur - og að fólk verður ansi fljótt að venjast því þegar að því kemur.
En ekki reyna að segja fólki sem er vant því að fljúga til Ísafjarðar eða Vestmannaeyja að sú staða komi "sjaldan upp" að flugi þangað sé frestað.
Allir sem hafa eitthvað þurft að fljúga á þessa staði hafa upplifað daga þar sem flugi er frestað um hálftíma til klukkutíma í senn og svo verið að kanna aftur með það allan daginn.
...önnur hver verslunarmannahelgi í Eyjum er nákvæmlega þannig.
By
SP, At
4. september 2008 08:33
Sendu inn athugasemd
Subscribe to Post Comments [Atom]
<< Heim