Skömmu síðar kom sakleysisleg athugasemd frá Óla Gneista. Þar vitnar hann í orð Karl Sigurbjörnssonar biskups og spyr:
Hver elur hér á tortryggni í garð Íslams?
Hver er framtíð kristni? Hvað um niðja okkar, börn okkar og afkomendur? Hver verður þeirra trú? Mun Islam leggja álfuna undir sig? Kristni hopar í Evrópu. Fyrir Islam og fyrir guðleysi og tómhyggju. Hvað þarf til að snúa þeirri þróun við? Eða er okkur alveg sama? Ég vona ekki.
Nú fór Svavar að verja orð biskups og sagði þau ekki tengjast efni bloggsins. Sagði að þetta væru spurningar sem margir spyrðu sig og svörin við þeim væru áhyggjuefni.
Ég hvet lesendur til að tékka á þessari færslu Svavars og viðbrögðunum við þeim.
Annars eru múslimar í sama vanda og kristnir. Báðir hóparnir eru að burðast með heimsmynd sem er á skjön við eðlilegt siðferði. Allar breytingar til hins betra í túlkunum á Bibliunni og Kóraninum eru komnar frá veraldlegum hugmyndakerfum. Ekki innanfrá eins og oft er haldið fram.
Gneistinn er frábær... :)
0 comments:
Sendu inn athugasemd