EIMREIÐIN - veður í gegnum (moð)reykinn

mánudagur, 1. september 2008

Ákæra

Nýlega kom í fréttum að ökuníðingur hafi verið kærður fyrir 16 umferðarlagabrot. Hérna er kæran í heild sinni.


I. Fyrir eftirtalin umferðarlagabrot, með því að hafa:

1. Að kvöldi mánudagsins 30. júlí 2006 ekið bifreiðinni TF-606 án skráningarmerkja að framan, án þess að hafa aðalljós tendruð og með 114 km hraða á klst. vestur Vesturlandsveg í Reykjavík, á vegarkafla í Ártúnsbrekku við Esso, þar sem leyfður hámarkshraði var 80 km á klst. og ekki haft ökuskírteini meðferðis við aksturinn.
M. 010-2006-36658.
Telst þetta varða við 1. mgr. 32. gr., 1., sbr. 3., mgr. 37. gr., 1. mgr. 48. gr. og 60, og 64. gr. umferðarlaga nr. 50/1987, sbr. 1. mgr. 19. gr. reglugerðar nr. 751/2003 um skráningu ökutækja.


2. Aðfaranótt fimmtudagsins 12. október 2006 ekið bifreiðinni SH-259 með 97 km hraða á klst. norður Hafnarfjarðarveg í Garðabæ, á vegarkafla að Kópavogi, þar sem leyfður hámarkshraði var 70 km á klst. og ekki haft ökuskírteini meðferðis við aksturinn.
M. 010-2006-51289.
Telst þetta varða við 1. sbr. 3. mgr. 37. gr. og 1. mgr. 48. gr. nefndra umferðarlaga.

3. Þriðjudaginn 26. desember 2006 ekið sömu bifreið með 106 km hraða á klst. austur Vesturlandsveg í Reykjavík á vegarkafla í Ártúnsbrekku, þar sem leyfður hámarkshraði var 80 km á klst.
M. 010-2006-64938.
Telst þetta varða við sömu ákvæði og liður 2.

4. Að kvöldi þriðjudagsins 6. mars 2007 ekið bifreiðinni RK-340 með 90 km hraða á klst. suður Víkurveg í Reykjavík, á vegarkafla við Hallsveg, þar sem leyfður hámarkshraði var 50 km á klst.
M. 007-2007-16005.
Telst þetta varða við 1. mgr. 37. gr. nefndra umferðarlaga.

5. Föstudaginn 13. júlí 2007 ekið bifreiðinni YR-999 með 122 km hraða á klst. suður Reykjanesbraut í Hafnarfirði, á vegarkafla sunnan við IKEA, þar sem leyfður hámarkshraði var 70 km á klst.
M. 007-2007-53593.
Telst þetta varða við 1. sbr. 3. mgr. 37. gr. nefndra umferðarlaga.

6. Aðfaranótt mánudagsins 13. ágúst ekið bifreiðinni LP-660, sem er 3995 kg að heildarþyngd og skráð sem vörubifreið, án þes að hafa til þess ökuréttindi um Miklubraut Reykjavík.
M. 007-2007-61560.
Telst þetta varða við 1. mgr. 50. gr. nefndra umferðarlaga, sbr. 4. gr. laga nr. 138/1996, sbr. 7. gr. reglugerðar nr. 501/1997 um ökuskírteini.

7. Að morgni sunnudagsins 26. ágúst 2007 ekið bifreiðinni RK-340 undir áhrifum áfengis (vínandamagn í blóði 0,86 ‰) vestur Hringbraut í Reykjavík og gegn rauðu ljósi á gatnamótum Framnesvegar og áfram vestur Hringbraut, síðan vestur Eiðsgranda og inn Keilugranda, þar sem lögregla hafði afskipti af honum.
M. 007-2007-64997.
Telst þetta varða við 1. mgr. 5. gr. og 1. mgr., sbr. 2. mgr. 45. gr., nefndra umferðalaga, sbr. 1. gr. laga nr. 48/1997.

8. Að kvöldi þriðjudagsins 16. október 2007 ekið bifreiðinni YR-999 ótryggðri og án þess að hafa ökuskírteini meðferðis um Ánanaust í Reykjavík.
M. 007-2007-79451.
Telst þetta varða við 1. mgr. 48. gr. og 93. gr. nefndra umferðarlaga.

9. Aðfaranótt föstudagsins 19. október 2007 ekið bifreiðinni NL-706 með 120 km hraða á klst. austur Miklubraut í Reykjavík, á vegarkafla í Ártúnsbrekku þar sem leyfður hámarkshraði var 80 km á klst.
M. 007-2007-80283.
Telst þetta varða við 1. sbr. 3. mgr. 37. gr. nefndra umferðarlaga.

10. Aðfaranótt föstudagsins 7. desember 2007 ekið bifreiðinni TK-141 undir áhrifum áfengis (vínandamagn í blóði 1,21 ‰) og óhæfur til þess að aka vegna áhrifa fíkniefna um Reykjanesbraut í Garðabæ uns lögregla stöðvaði aksturinn skammt sunnan Vífilsstaðavegar.
M. 007-2007-94263.
Telst þetta varða við 1. mgr., sbr. 3. mgr. 45. gr. og 1. og 2. mgr. 45. gr. a nefndra umferðarlaga, sbr. 1. gr. laga nr. 48/1997, sbr. 5. gr. laga nr. 66/2006.

11. Að kvöldi miðvikudagsins 6. janúar 2008 ekið bifreiðinni MH-J58 suður Lágmúla í Reykjavík og ekki virt stöðvunarskyldu á gatnamótum Háleitisbrautar heldur ekið viðstöðulaust um gatnamótin og síðan af Háleitisbraut norður Kringlumýrarbraut og til vinstri vestur Laugaveg og þar áfram yfir almennum hraðamörkum uns lögregla stövaði aksturinn við gatnamót Nóatúns.
M. 007-2008-1901.
Telst þetta varða við 1. mgr. 5. gr. og 1. mgr. 37. gr. nefndra umferðarlaga.

12. Þriðjudaginn 8. janúar 2008 ekið bifreiðinni MH-J58 með 114 km hraða á klst. suður Kringlumýrarbraut í Reykjavík, á vegarkafla við Nesti í Fossvogi, þar sem leyfður hámarkshraði var 80 km á klst.
M. 007-2008-3694.
Telst þetta varða við 1. sbr. 3. mgr. 37. gr. nefndra umferðarlaga.

13. Að kvöldi miðvikudagsins 23. janúar 2008 ekið bifreiðinni MH-J58 með 77 km hraða á klst. norður Reykjanesbraut í Reykjavík, á vegarkafla að Sæbraut, þar sem leyfður hámarkshraði var 60 km á klst.

M. 007-2008-5842.
Telst þetta varða við 1. sbr. 3. mgr. 37. gr. nefndra umferðarlaga.

14. Aðfaranótt fimmtudagsins 31. janúar 2008 ekki haft ökuskírteini meðferðis við akstur bifreiðarinnar ND-432 um Hverfisgötu í Reykjavík.
M. 007-2008-7483.
Telst þetta varða við 1. mgr. 48. gr. nefndra umferðarlaga.

15. Miðvikudaginn 23. apríl 2008 ekið bifreiðinni EN-958 án skráningarmerkja að framan um Breiðuvík á Reykjavík.
M. 007-2007-29300.
Telst þetta varða við 60. og 64. gr. nefndra umferðarlaga, sbr. 1. mgr. 19. gr. reglugerðar nr. 751/2003 um skráningu ökutækja.

16. Aðfaranótt laugardagsins 26. apríl 2008 ekið bifreiðinni EN-958 með 130 km hraða á klst. austur suðurlandsveg í Árnessýslu, á vegarkafla við Kögunarhól, þar sem leyfður hámarkshraði var 90 km á klst.
M. 033-2008-2866.
Telst þetta varða við 2. mgr. 37. gr. og allt framangreint, sbr. 1. mgr. 100. gr., nefndra umferðarlaga.

-o-o-o-

II. Vopnalagabrot með því að hafa aðfaranótt laugardagsins 27. október 2007 haft í vörslum sínum eftirlíkingu af 9 mm Walter P99 skammbyssu og verið með hana á almannafæri við Bolholt 6 í Reykjavík.
M. 007-2007-82884.
Telst þetta varða við 1. mgr. 12. gr. og 1. mgr. 21. gr., sbr. 1. mgr. 36. gr. vopnalaga nr. 16/1998.

0 Comments:

Sendu inn athugasemd

Subscribe to Post Comments [Atom]



<< Heim