
Ég var að tékka á Ipodinum mínum og sá fídus sem ég hef ekki tekið eftir. 25 mest spiluðu lögin.
Mest spilaða lagið mitt er lag sem heitir Toca me með Fragma. Ég keypti það á Beatport fyrir nokkru síðan og hef greinilega svona gaman af því. Lagið er 8 mínutur í klúbb útgáfu og byrjar eins og venjulega eftir 1 mín. Byrjunin er bara notað sem tími fyrir DJ að stilla sig af. Ég hvet lesendur Eimreiðarinnar að tékka á þessu lagi. Þetta er með því besta í electróinu í dag. Annars er Kanadabúinn Deadmau5 í algeru uppáhaldi hjá mér þessa stundina. Hann er snillingur og ferlegt að hafa misst af honum á Íslandi.
Útvarpsútgáfan er af Toca me er svo hérna. Töluvert síðara satt best að segja. Svona er þetta oft. Ef listamenn ætla að falla massanum í geð þá er það á kostnað gæðanna.
0 comments:
Sendu inn athugasemd