mánudagur, 22. september 2008

Rugl.

Sama fólkið og keyrði fjármálamarkaðinum í klessu er nú að ráðleggja okkur um hvernig eigi að komast út úr krísunni...

Þetta er álíka og ef fjölskylda sem svindlað hefur verið á í viðskiptum við fasteignasala, leiti ráða hjá þeim sama til þess að bæta skaðann af svindlinu.

-Þetta er rugl.

1 comments:

Nafnlaus sagði...

Erfitt að benda á einhverja sökudólga. Við erum flest sek um að hafa tekið þátt í fylleríinu. Það skapaðist nk. múghystería, neysluæði. Venjulegu fólki fannst það vera misheppnað ef það átti ekki lúxusjeppa og nýja eldhúsinnréttingu.