
Ég hef verið hálf undrandi á almennir ánægju íslenskra hægrimanna á Söru Palin. Ég skil ekki alveg hype-ið í kringum hana. Hún er ekkert sérstakur ræðumaður og hugmyndir hennar eru ekkert spes. Ekkert óvenjulegar fyrir varaforseta Republikana. Hún hefur vissulega kjörþokka. Hún er hörkusæt og ég held að það sé málið. Bent hefur verið á að hún eigi 5 krakka. Nokkuð sem mér finnst ekkert sérstaklega merkilegt. Samt telst það henni til tekna. Nýjasta barnið hennar er með Down-syndrome og mér þykir það heldur ekkert merkilegt. Mörgum þykir það frábært.
Það sem er uggvænlegt við John og Palin er heimsmyndin sem þau deila. Einhverju sinni voru McCain og Obama spurir sömu spurningarinnar. Spurningin var heimskuleg eins og svo meðal amrískra spyrla. Hvað eigum við (Bandaríkjamenn) að gera við "hið illa". Obama svarði eitthvað á þá leið að við (Bandaríkjamenn) ættum að gera sér grein fyrir "hinu illa"og þ.h. Svo eyddi hann spuringunni eins og stjórmálamanna er siður. McCain var hinsvegar alveg með þetta á hreinu. "We must fight evil".
Sumsé "hið illa" er einhversstaðar í útlöndum og við (Bandaríkin) yrðu að berjast við hið illa.
það er svolítið erfitt að gera sér sjálfum upp svona skoðanir og setja sig í þessi spor. Það er erfitt fyrir sæmilega upplýstan einstakling að gleypa það að til er fólk sem trúir þessu í alvöru. Palin mun vera sköpunarsinni og trúir því að jörðin sé 6000 ára gömul. (fyrir 6000 árum voru til borgir í Afríku og Asíu) þetta er ekki tækifærismennska hjá Palin. -Hún trúir þessu. h'un trúir því líka ásamt McCain að Bandaríkin séu útvöld af guðinum sinum til þess að "frelsa" heiminn frá hinu illa.
-Þetta sætir furðu og uggvænlegt til þess að hugsa að svona fólk með svona klikkaða heimssýn geti stjórnað mesta og aggesívasta herveldi heimsins.
2 comments:
„almennri ánægju íslenskra hægrimanna“ ... hve stórt er úrtakið? Friðjón og Jón Valur og hver annar?
Það er varla neinn hörgull á Íslendingum hægra megin við íslensku miðjuna, sem hryllir við tilhugsuninni um Bandaríkjaforseta (ef þau vinna og McCain fær svo slag) sem kallar Íraksstríðið „a task that is from God.“
Palin gerði útslagið fyrir mig, mér þótti ekkert voðaleg tilhugsun að McCain næði kjöri — en mér þykir það voðaleg tilhugsun núna.
Jah.. Þetta er rétt ábending hjá þér. "Almenna ánægjan" er kannski full mikið. Þó eru nokkrir sem eru ekki eins klikkaðir og Jón Valur sem hafa mært Palin.
Var ekki Hermaurinn að dást af henni?
-Þetta er skuggalegt lið...
Sendu inn athugasemd