miðvikudagur, 17. september 2008

Sérkennilegt

Það vekur alltaf mikla athygli og ánægju þegar ráðherrar velja hæfasta fólkið í laus störf hjá hinu opinbera. Það kemur risastórt "hjúkk-viðbragð". Fólk hugsar með sér: "Sko, hann valdi hæfustu manneskjuna en ekki vin sinn úr flokknum".

Þetta er sérkennilegt. Ráðherrar fá klapp á bakið frá almenningi þegar þeir spilling er ekki í spilinu. Það sætir furðu að viðbrögðin skulu vera þessi.

Sennilega erum við Íslendingar orðin svo vön spillingu að eðlileg stjórsýsla kemur okkur spánst fyrir sjónir.

0 comments: