fimmtudagur, 23. október 2008

10 miljón króna jeppi

Útrásin, peningatryllingurinn og stöðutáknageðveikin nær inn á flest svið mannlífsins. Meir að segja þau svið sem hafa það að inntaki að boða hófemi í hvívetna.

Þetta er nýji jeppinn hans Pálma Matthíasarsonar ríkiskirkjuprests. Hann fær mánaðarlega um eina miljón á mánuði frá okkur skattborgurunum. Sá kann svo að velja sér bíl við hæfi. Reyndar setir þessi smá strik í reikninginn meðal "umhverfis-guðfræðinga" en það er önnur saga. Þetta er s.s M.Benz GL og kostar á bilinu 10 - 14 miljónir eftir aukabúnaði. Töluverð umræða átti sér stað í Svíþjóð þar sem ég bý um hvort leyfa ætti svona bíla á götunum vegna þess hve bíllin mengar mikið. Prestar eru hálaunastétt sem eru fá helmingi hærri laun er t.d framhaldsskólakennarar þótt engum dylist að kennarar gera 100 sinnum meira gagn. Þessi óréttur er einn af þeim sem við Íslendingar þurfum að kippa í lag við uppbyggingu landsins.


Ég mæli sterklega með grein Brynjólfs Þorvarðarsonar á Vantrúarvefnum í dag. Sú grein er skyldulesning.

0 comments: