þriðjudagur, 21. október 2008

101 smekkleysi


Ég varð fyrir ónotartilfinningu þegar ég sá nafnið á lúxus-skútu Jóns Ásgeirs og Ingibjargar konu hans. 101-skútan eitthvað í þá áttina. -Hundrað og einn skútan.

Nú er ég 101 maður og þekki vel hvað fyrirbærið stendur fyrir. Ég ástundaði Kaffibarinn í all-mörg ár og þekki allar rotturnar í 101. Ég fullyrði að skútan þeirra skútu-hjúa á EKKERT skylt við 101 stemninguna.

101 stendur fyrir frumleika, þor, lífsgleði, auðmýkt og meir að segja smekkvísi. Bóhemar í bland við skemmtilegt fólk. Ég á ógleymanlegar stundir (og margar gleymanlegar) frá Kaffibarnum og hitti allt frá Steingrími Njálssyni, Damon Albarn, og Uffe Elleman Jensen utanríkisráðherra Danmerkur á djamminu á þeim frábæra stað. Ég það kvöld fór ég meir að segja á trúnó með Jóni Baldvini þáerandi utanríkis. Kaffibarinn og 101 stemningin er óðurinn til gleðinnar, enda voru allir óðir af gleði þarna inni.

Ekkert að þessu er að sjá í þessu 101 konsepti hjá þeim Jóni og Ingibjörgu. Þetta er bara eitt risastórt K I T C H. Miljón, triljón dollara kitch. Burstað stálklósett með kjósettsetu úr tannlæknastáli. Platinum sturtuhengi með ljósfíberum. Hvítbæsuð eik með með svörtum stálarni. Inn í arninum logar einn gaslogi. Blár, einmanna, kaldur logi. Þetta er eins og í tómu fiskabúri. Andlaust, skammlaust og mannlaust.

101 þeirra Baugshjóna er ógeð sem vekur velgju hjá smekkvísu fólki. Sérstaklega dapurlegt í því ljósi að Ingibjörg þessi mun vera lærð í einhverskonar smekkvísi.

En lengi má manninn reyna. Við lifum á tímum þar sem er nóg að segjast vera listamaður til að vera álitinn slíkur. það er nóg að hafa hafa áhuga á hönnun til að verða "hönnður" og það er nóg (eins og dæminn sanna) að skulda triljónir til þess að vera álitinn ríkur.

Þessi hundrað og einn snekkja þeirra hjóna stendur í raun alveg sem listaverk eftir Damien Hirst. Listaverk um klikkun, smekkleysi, jarðtengingarskort, mannhatur og síðast en ekki síst, heimsku.

5 comments:

Steinar Ólafsson sagði...

Ég er nokkuð viss um að hún sé ekki að reyna endurspegla líf kaffisötrandi menningar og viskubrunnana úr miðbænum.

Hún er væntanlega bara að endurspegla sitt helsta trademark sem er hótelið hennar sem stendur á horni Ingólfsstrætis og Hverfisgötu.

Og yfirhverju er að sakast? Hótelið hennar hlýtur að falla undir eina af hinum ,,nýju" stoðum sem Íslendingar eru að reyna byggja á núna, ferðamennskunni.

Ég held að þegar uppi var staðið langaði þig bara að rasa út um hana og eiginmann hennar. Einfaldlega vegna þess að þau fara í taugarnar á þér.

Segðu það bara hreint út. Í staðinn fyrir að setja út á hönnun þeirra því við vitum báðir að slæm hönnun er samt sem áður hönnun.

Nafnlaus sagði...

Þetta er nú reyndar ekki skúta heldur snekkja. Ég er "skútu maður" og vil ekki að þessi viðbjóður sé kallaður skúta frekar en þú vilt að Ingibjörg kenni hann við 101.

Teitur Atlason sagði...

Afsakid. Audvidad er thetta snekkja, ekki skuta.

-o-o-o-
Jon Asgeir og konan hans fara ekkert i taugarnar a mer. Eg thekki thau ekki neitt. Mer thykir leidinlegt ad thad se verid ad tappa inn a frabaera ymind med thessu ogedi.

-Vantar alla somatilfinningu.

Teitur.

Gardar Ey sagði...

Kitch hefur nu reyndar verid mjog vinsaelt seinustu arin.

En tessi skuta er einfaldlega ekki kitch. Kikjid a Marcel Wanders og moooi ef tid viljid sja goda nutima notkun a ordinu kitch.

Mer synist tessi skuta adalega endurspegla tad andleysi sem hefur einkennt islenska honnun seinasta aratug. Rikmannlegt, andlaust, sterilt og leidinlegt...

Eg veit ekki hversu menntud tessi blessada kona er, en honnudur er hun ekki...

Árni Snævarr sagði...

Rosalega vel mælt segir einn gamall af Kaffibarnum, kv, Árni Snævarr