mánudagur, 13. október 2008

1.875 .000.- krónur á hvern Íslending.

Lesandi Eimreiðarinnar póstaði þessu á mig.

Innlent | Morgunblaðið | 13.10.2008 | 06:00
Ábyrgjumst 600 milljarða
Ábyrgð Íslands á greiðslum til eigenda Icesave-reikninga Landsbankans í Bretlandi og Hollandi kostar samtals fjóra milljarða evra eða rúma 600 milljarða króna.


Þetta gera 1.875.000 krónur á hvern Íslending, eða 3,5 milljónir á hvern fullorðinn skattgreiðanda á vinnumarkaðnum.
Einhverjar eignir gætu komið á móti þessum ábyrgðum, en það er óvíst.
Sexhundundruð milljarðar eru svolítið ógnvekjandi tala þegar maður sér hana skrifaða: 600.000.000.000
Hvernig í ósköpunum gat þetta gerst og enginn virðist bera nokkra ábyrgð?

0 comments: