mánudagur, 20. október 2008

Baldur McQueen

Bloggarinn geðfeldi Baldur McQueen er hættur að blogga. Hann gafst upp. Hann fékk nóg. Í lokafærslu sagðist hann ekki nenna þessu lengur. Vitleysingarnir og íslensk retórík gerðu út af við hann.

Mér finnst þetta hálfgerð synd því að Baldur var öflugur bloggari og naskur á fleti sem oft og tíðum rötuði inn á önnur blogg og í aðra fjölmiðla. Baldur var t.d sá sem benti á lygaþvæluna í Davíð Oddsyni þegar hann sagðist aldrei hafa "hampað þessum útrásarmönnum". Baldur googlaði í 5 mínútur og fann 2 lofræður sem DO hafði þulið upp þar sem útrásin var lofsömuð í hvívetna.

það sem ég er svekktastur yfir að Baldur hefur ekki fattað að einn bloggari breytir ekki heiminum. Einn bloggari getur samt hæglega lagt sitt lóð á vogarskálina til þess að gera samfélagið bærilegra. Blogg er nefnilega baul. Lítið mark er takandi á einu bauli en ef margir baula þá heyra það allir. Ég hef tekið eftir því þegar ég baula þá hefur baulið í mér oft náð inn í hefðbunda fjölmiðla eins og dagblöð og sjónvarp. Ekki það að ég sé nafngreindur eða þvíumlíkt, heldur finnst mér stundum að hugmyndin mín eða einhver vinkill skili sér inn í þjóðmálaumræðuna. Þannig er tilganginum náð.

Ég er t.d þess fullviss að ítrekuð varnaðarorð Jónasar Kristjánssonar um IMF á blogginu sínu hefur valdið því að fólk er farið að spyrja sig í alvöru út á hvað þetta fyrirbæri gengur eiginlega. Aðrir blaðamenn lesa greinilega bloggið hans Jónasar og það skilar sér.

Í blogginu gildir að baula sem mest og halda sig við efnið.

0 comments: