Mótmæli í gíslingu
Ég fæ reglulega tilkynningar á Facebook um hvað sé á döfinni varðandi mótmæli til ráðamanna frá félaginu Nýjir tímar. Ég hef fylgst með mótmælunum frá Svíþjóð og stundum í fréttum á vefnum og umræðunni á blogginu. Hnakkus hitti naglann á höfðuðið í sinni greiningu á mótmælunum og aðstandendum þeirra. Ég hvet fólk til að lesa þessa færslu.
Ég vil þó bæta við orð Hnakkusar. Auðvitað er það sérkennilegt að horfa uppá að sumir virðast líta á þetta hörmungarástand sem persónulegt tækifæri til að vekja athygli á sjálfum sér! En sannast nú amhið fornkveðna að erfiðir tímar kalla fram það versta og það besta í okkur. Viðvera vinar míns Snorra Ásmundarsonar er mér gersamlega óskiljanleg. Hann setur öll þessi mótmæli í í paródískt ljós. Hann er ein stór paródía og vinnur i list sinni með svona gys. Býður sjálfan sig fram sem borgarstjóra, fer í forsetaframboð og núna: Stýrir mótmælum á mestu hörmungartímum lýðveldisins. Snorri ætti að draga sig úr þessum hópi ef honum er annt um að fjölga mótmælendum. Sama ætti Kolfinna að gera, mamma hennar og pabbi. -Þetta er komið gott. Þið eruð ekki aðal. -Get over it.
Ég held samt að þaðesé þörf á einhverskonar mótmælum á hverjum laugardegi. Ég held að krafan um kosningar sé réttmæt. Leyniþjónustan mín segir mér að um leið og um hægist muni Samfylkingin slíta þessu stjórnarsamstarfi enda er Sjálfstæðisflokkurinn ábyrgur fyrir bankahruninu og því ömurðarástandi sem hrjáir landið okkar. Ég vona að sem flestir mæti. Það myndi ég gera. Ég myndi flestur mæta.
Brennuvargargarnir eiga ekki að vera í slökkvuliðinu. Ekki nóg að þeir lufsist við að skökkva eldana sem brenna, heldur eru þeir beinlínis að skemma fyrir. Meint rannsókn Björns Bjarnasonar á bankahruninu er bara grátlegt yfirklór þar sem rannsóknaraðilar eru látnir rannsaka misgjörðir sona sinna. Það sér það hver maður að niðurstaðan úr svona "rannsókn" verður alltaf í skötulíki. En skötulíki eður ei, þá mun þessi rannsókn drepa málinu á dreif, þyrla upp ryki og gefa þeim seku að eyðileggja sönnunargögn.

1 Comments:
George Carlin tilvitnun dagsins á iGoogle er:
Think of how stupid the average person is, and realize half of them are stupider than that.
Tengist kannski ekki beint færslunni ....en samt....:-)
By
Nafnlaus, At
31. október 2008 14:32
Sendu inn athugasemd
Subscribe to Post Comments [Atom]
<< Heim