EIMREIÐIN - veður í gegnum (moð)reykinn

fimmtudagur, 30. október 2008

"Nýja Ísland" Nei takk !

Mér líkar illa þegar talað er um "Nýja Ísland". Ólafur Ragnar notaði þetta hugtak yfir Ísland þeirra ofurríku. Nýja Ísland fór á hliðina og datt yfir alla landsmenn.

Það boðar ekki gott að skeyta við orðinu "nýja" fyrir framan grónar hugmyndir. Nýi miðbær Sjálfstæðisflokksins reyndist vera einhver mesti steinsteypuhryllingur í samanlagðri byggingarsögunni. "Nýi miðbærinn" er bókstaflega ógeðslegur og ég hef heyrt átakanlegar sögur af gyðingi sem lifði af helförina. Sá var í heimsókn í Reykjavík og ók fyrir framan bilastæðið á Kringunni, fyrir framan gömlu "nýju Moggahöllina". þar trylltist gamli maðurinn því hann fékk ofsalegt flassbakk frá tímanum í Buchenwald.

Allir muna hvernig fór fyrir "Nýja Bíó".

-Það brann.

0 Comments:

Sendu inn athugasemd

Subscribe to Post Comments [Atom]



<< Heim