EIMREIÐIN - veður í gegnum (moð)reykinn

föstudagur, 31. október 2008

Óskhyggja Guðmundar.

Guðmundur Gunnarson verkalýðsleiðtogi kemur með tímabæra sparnaðartillögu í visi.is í dag. Hann leggur til að Alþingismönnnum verði fækkað um helming og spara þannig á fjórða miljarð. Þessi tillaga er svo augljós og liggur svo kylliflöt fyrir að undrum sætir.

Eins góð og þessi tillaga er, þá er það því miður svo að hún verður ALDREI samþykkt, né skoðuð af neinni alvöru. Flokkshagsmunir hafa ALLTAF vegið þyngra en þjóðarhagsmunir.

Hinsvegar er líklegt að alþingismenn reyni að telja þjóðinni trú um að nauðsynlegt sé að fjölga þingmönnum verulega. Spuni verður settur fram að sú tilhögun sé í rauninni hið besta sparnaðar-ráð.

1 Comments:

  • Sammála Guðmundi. Það þarf að fækka alþingismönnum og gera Alþingi skilvirkara.

    Fjöldi alþingismanna á lýðveldistímanum.

    Ár:fjöldi alþm/fjöldi Íslendinga 1. jan./Íslendingar á hvern alþmann

    1946:54/130.356/2.414
    1963:60/183.991/3.066
    1987:63/244.157/3.876
    1.jan2008:63/313.376/4.974

    Alþingismenn ættu að vera um 130 nú, ef jafn margir Íslendingar stæðu á bak við hvern einstakan og árið 1946.

    Heimild: http://www.hagstofa.is/


    AH

    By Anonymous Nafnlaus, At 31. október 2008 21:02  

Sendu inn athugasemd

Subscribe to Post Comments [Atom]



<< Heim