EIMREIÐIN - veður í gegnum (moð)reykinn

föstudagur, 31. október 2008

Skrílkratar

Pabbi minn er mér endalaus uppspretta heilabrota. Hann á það til að nota nokkuð snúin hugtök á afar sjálfsagðan hátt. Eitt sinn var hann að lýsa einhverjum sögufrægum manni fyrir mér og romsaði upp úr sér forvitnilegustu skilgreiningum og inn á milli skaut hann því að að viðkomandi hefði í raun verið ósköp venjulegur "balkanjúði". Nú ber að staldra við.

Fyrir utnan hláturskastið sem ég fékk þegar ég heyrði þetta orð, þá vakti þessi skilgreining nokkrar athyglisverðar spurningar. Þessi skilgreining krefst þess af áheyrandanum að viðkomandi hafi nokkuð góða þekkingu á demógrafíu Balkansskagans og geri því greinarmun á gyðingum frá því svæði og annarstaðar. Einnig er gefið til kynna í samhengi samtalsins að um menntaðan mann sé að ræða og þá verður skilgreiningin ennþá þrengri. Orði balkanjúði gefur því einhverskonar fyrirheit um að viðkomandi sé hluti af skilgreindri heild sem hafi sín sérkenni, styrkleika, lesti og kosti. Hugtakið er því allt í senn illskiljanlegt en jafnframt auðskiljanlegt.

En þetta orð er ekki tilfefni til frekari hugleiðinga heldur annað orð sem mér er hugleikið. Það er orðið "Skrílkrati" en það orð notar viss einstaklingur þegar honum blöskrar eigin flokksmenn. Ég bjó einu sinni til orðið "mengunarkrati" og átti við þá Össur og Björgvin en þá voru þeir að svíkja kosningaloforð um að ekki fleiri álver yrðu byggð. Nóg um það. Orðið "skrílkrati" hef ég aldrei skilið fyrr en nú.

Skrílkrati er frábrugðin öðrum krötum á þann hátt að öll hans breytni miðast við hann sjálfan og persónu hans sjálfs. Stefnan skiptir minna máli en sá sem boðar téða stefnu. Þetta þýðir að skrílkratinn telur skipta meira máli að vera í sviðsljósinu heldur en að koma góðum málum í gegn. Skríkratinn getur ekki aftengt persónu sína frá stjórmálunum, er oft sjarmerandi og á meira skilt við leikara heldur en stjórmálamann.

Um helmingur þingmanna Samfylkingarinnar eru skrílkratar. þetta fólk er ónýtt þegar á hólminn er komið og ætti ekki að flækjast fyrir þegar mikið liggur við. Það er nefnilega svo að á ögurstundu kemur í ljós hverjir eru sauðirnir og hverjir eru hafrarnir. Samfylkinin þarf að hreinsa til í sínum ranni rétt eins og aðrir flokkar þegar storminn lægir. Það verður ekki gert nema með skýrum skilaboðum almennra flokksmanna.

Skrílkratar taka pláss frá almennilegu fólki og eru dagbítar á stefnu Samfylkingarinnar

0 Comments:

Sendu inn athugasemd

Subscribe to Post Comments [Atom]



<< Heim