EIMREIÐIN - veður í gegnum (moð)reykinn

föstudagur, 7. nóvember 2008

Búin að kaupa miða.

Ég ætla að sinna borgarlegri skyldu minni sem Íslendings. Ég ætla að koma heim til Íslands þess að vera viðstaddur mótmælin á laugardaginn.

Ég er ekkert alltof sammála aðstandendum þessa framtaks en það er bara allt í lagi. Það er málefnið sem skiptir máli. Þó að við séum ólík og lífsskoðanir okkar séu jafnvel gerólíkar, þá erum við allavega sammála um að það þurfi breytingar á Íslensku samfélgi. Bankatopparnir í félagi við Sjálfstæðisflokkinn eru búin að rústa samfélaginu okkar. Þetta verðum við að hindra með öllum ráðum tiltækum. Ég ætla ekki að láta það flækjast fyrir mér þótt sumir aðstandenda þessa átaks fari í taugarnar á mér. Taugarnar á mér geta bara átt sig. Málefnið er það sem semeinar.

Ég og Halli Heimdallur eigum að geta gengið í takt. Ég og Palli Punk eigum að geta gengið í takt. Meir að segja get ég gengið í takt við hann Ástþór Magnússon. Mér er það þvert um geð en fokkit. Ég ætla ekki að láta það eyðileggja fyrir mér að vera sammála þessum kjána.

Auðvitað er leiðinlegt þegar tappar eins og Ástþór eru eins og að "stela glæpnum" á þessari reiðibylgju, en svona tappar skjóta alltaf upp kollinum við svona aðstæður. Aðalatriðið er að þeir skipta ekki máli! Málefnið skiptir máli en ekki kjánar á borð við Ástþór og trukkavitleysingurinn.



Ég held að laugardagurinn verði sögulegur. -Ég er viss um það.

10 Comments:

  • Muna ad taka med sér nesti í vélina.

    By Anonymous Nafnlaus, At 7. nóvember 2008 08:34  

  • Fyrst á OPINN BORGARAfund í Iðnó kl. 13, svo beint á Austurvöll kl. 15. Komdu fagnandi. Það er rosalegt framundan: matarskortur, fólk veit það ekki. Fólk treystir lyginni í ríkisstjórninni sem skrúfar frá kjaftavaðli um það sem er að gerast í dag, en getur ekki sagt frá nánustu framtíð því engin stefnumörkun er. Algjör vanhæfni en það er ekkert betra sem getur tekið við.
    Allir ferlar eru ónýtir, hafa alltaf verið.
    Það eina sem dugar er gjörbreyting á öllu. Nýtt þjóðskipulag.

    Rósa
    http://okurvextir.blogspot.com

    By Anonymous Nafnlaus, At 7. nóvember 2008 08:35  

  • Á ég þá ekki að koma bókinni til þín á laugardaginn?

    By Anonymous Óli Gneisti, At 7. nóvember 2008 08:47  

  • Ég á fulla frystikistu af frosinni ýsu. Hún er því miður óflökuð. Má ég afþýða hana núna í trausti þess að þú munir flaka og roðflétta þetta fyrir mig?

    Simbi Sjóðmaður

    By Anonymous Nafnlaus, At 7. nóvember 2008 10:33  

  • Ég er orðinn leiður á að vera fórnarlamb annarra.

    AH

    By Anonymous Nafnlaus, At 7. nóvember 2008 11:28  

  • Tek ofan fyrir þér.

    By Anonymous baldur mcqueen, At 7. nóvember 2008 13:07  

  • Teitur minn, þér er hollast að standa við yfirlýsingarnar varpandi heimkomu þína annars ertu ekki mikið marktækari en Lárus Logsuða sem þú kallar lygamörð. Vona að lesendur þínir geti tekið þig trúarlegan og komi til með að geta tekið hressilega í spaðann á þér í mótmælunum sem þú segist og fullyrðir að þú sért að fara að taka þátt í með okkur hinum, annars værir þú væntanlega ekki búinn að fjárfesta í flugmiða eins og þú segist vera búinn að gera. Hlakka til að sjá þig og vona að þú hafir ekki verið að fremja skrökvulygi eins og fólk sem þú fordæmir í þínum færslum.

    Guð blessi Ísland,

    GA

    By Anonymous Nafnlaus, At 8. nóvember 2008 02:30  

  • Furðulegasta athugasemd ég ég hef séð. Lárus Logsuða?

    By Blogger Teitur Atlason, At 8. nóvember 2008 08:52  

  • Welding=logsuða

    By Anonymous Nafnlaus, At 8. nóvember 2008 10:10  

  • Ha ha ha. Þetta er kostulegt viðurnefni.

    Neibbs. Ég er lasinn og í vondu skapi. Ekkert hefði glatt mig meira en að komast til að púa á skítapakkið.

    By Blogger Teitur Atlason, At 8. nóvember 2008 11:51  

Sendu inn athugasemd

Subscribe to Post Comments [Atom]



<< Heim