Þú getur troðið þessum helvítis tjakki.....
Ég þurfti að skipta yfir á vetrardekk um daginn. Ég var svo heppinn að sjá ódýran ALVÖRU tjakk til sölu í Bilia. Mér leiðast nefnilega óskaplega þessir míni-compact-tjakkar sem fylgja smábílum eins og mínum. Þetta er bara látuns-rusl sem þarf að snúa, stilla og pródúsera eftir kúnstarinnar reglum.
Vandfundin er sorglegri ömurð en að sjá fullorðna manneskju bjástra við að snúa upp látuns-tjakki í nöprum norðangaddi og slyddu. Þetta er eiginlega hámark giftuleysisins.
Ég keypti mér þessvegna almennilegan tjakk. Kostaði bara 200 skr. Hérna eru myndir af helvítis tjakkinum.

1 Comments:
Hei, ég á alveg eins tjakk. Keypti hann í Skövde 2004. Í einhverri skítabúllu, Rusta eða ÖB.
Ég kallaði minn tjakk Lúkas. Ég fór stundum með hann í gönguferðir um hverfið.
Nágrannar mínir þoldu ekki skröltið í honum. Einn daginn þegar ég var ekki heima, brutust þeir inn í bílskúrinn minn tóku Lúkas. Þeir eyðilögðu hann siðan á hrottafenginn hátt og kenndu mér um ódæðið. Fljótlega eftir það logaði allt bloggsamfélagið af árásum í minn garð. Ég fór að fá hótunarsímtöl og bréf. Ég neyddist til að yfirgefa hið ljúfa líf í Svíþjóð í snatri.
Ég bý núna við ömurlegar aðstæður í sóðalegu hverfi í Reykjavík, umkringdur 310.000 fátæklingum og sé ekki fram á að geta snúið til baka til Gautaborgar í bráð.
AH
By
Nafnlaus, At
5. nóvember 2008 21:53
Sendu inn athugasemd
Subscribe to Post Comments [Atom]
<< Heim