Landsbankinn látin borga
Leyniþjónusta Eimreiðarinnar hafði samband við mig og kom á framfæri lítilli bombu. Hún er þessi.Í vikunni eftir að Sigurjóni digra Landsbankastjóra var vikið frá störfum fékk vefdeild og hönnunardeild Landsbankans verkefni.
Verkefnið var fólgið í því að búa til vefsíðu og lógó fyrir nýja ráðgjafafyrirtækið hans Sigurjóns. Nýja lógóið mun hafa hangið út um allt á markaðsdeildinni og vefhönnuðir unnu hörðum höndum að setja upp heimasíðu fyrir Sigurjón digra. Athugði að á þessum tíma var Landsbankinn orðin að ríkisfyrirtæki og kraftar ríkistarfsmanna voru notaðir til þessa að Sigurjón digri þyrfti ekki að kaupa þessa þjónustu út í bæ.
Hér með er línan gefin fyrir fyrirtæki og einstaklinga sem þurfa á ókeypis vefhönnun og nýju lógói að halda. Farið bara í Landsbankann. Þar fáið þið þetta frítt.


9 Comments:
Af tveimur ástæðum getur þetta ekki staðist:
1. Sigurjón getur ekki verið svona óforskammaður.
2. Stjórnendur bankans létu svona ekki viðgangast.
eða hvað?
By
Nafnlaus, At
10. nóvember 2008 13:30
Víst getur þetta staðist. Þetta stendur. Eitt símtal til LB myndi staðfesta þetta.
Sigurjón ER svona óforskammaður og stjórnendur bankans láta svona viðgangast!
By
Teitur Atlason, At
10. nóvember 2008 19:24
haha.. Sigurjón með ráðgjafarfyrirtæki...þvílíkur brandari. Hann ætti frekar að gefa út bókina: "How to get bankrupt in only 6 years, for Dummies".
By
Das Auto, At
11. nóvember 2008 13:17
Og þetta er að sjálfsögðu lygi. Eins og flest allar svona sögur sem fljúga hér um.
By
Nafnlaus, At
11. nóvember 2008 13:20
hvernig er það - er Nýji Landsbankinn ekki með neina viðskiptasiðfræðinga innanborðs? Það ætti að vera lágmarkskrafa í hinum nýju ríkisbönkum og í raun stórum fyrirtækjum yfir höfuð - ekki síst í ljósi reynslunnar?
By
Nafnlaus, At
11. nóvember 2008 14:35
Já, auðvitað. Afþví að viðskiptafræði gráða gerir þig svo fjárgáfaðan?
mv /sand/head /reality/
By
Freyr Guðjónsson, At
11. nóvember 2008 16:16
Freyr, hann sagði viðskiptasiðfræðingur ekki viðskiptafræðingur. Þess má geta að Sigurjón Árnason er verkfræðingur að mennt án þess að það skipti nokkru máli. :-)
By
Nafnlaus, At
11. nóvember 2008 17:34
ef satt er að þetta hafi verið unnið hjá nýja landsbankanum, þá er það slæmt.
En samt kommon, þetta eru örfáir þúsundkallar miðað við það sem þessir menn eru búnir að steypa okkur útí í formi Icesave ábyrgðar o.fl.
Gísli
By
Nafnlaus, At
11. nóvember 2008 23:11
Sem lítill landsbankamaður þá trúi ég þessu vel, Sigurjón er móður eða föður bróðir yfirmanns markaðs og vefdeildar. Töluvert meira af frændgarði hans er í landsbankanum og þeim hafa allar dyr staðið opnar.
Síðan stendur gamla búnaðarbankaklíkan innan landsbankans þétt saman, enda eiga þau eflaust mörg leyndarmál saman ...
By
Nafnlaus, At
18. nóvember 2008 22:49
Sendu inn athugasemd
<< Heim