Lárus Welding er lygari.
Nú þegar gruggið er aðeins farið að setja á þá ömurlegu atburðarás sem leiddi til gjalþrots bankanna kemur ýmislegt ógeðslegt í ljós.
Sama liðið sem brenndi af okkur húsin, eru nú að róta í rústunum eftir verðmætum. Það er siðferðisleg nauðsyn að við Íslendingar losum okkur við brennuvargana úr bönkunum. Ef við gerum það ekki munu komandi kynslóðir dæma okkur sem rag-geitur og aumingja.
- Hrunið var fyrirséð af öllum bönkunum.
- Stjórnvöldum var kunnugt um aðvífandi hrun
- VR var innvinklað inn í svikavef Kaupþings. Formaðurinn hefur afhjúpast sem gangster.
- Þjóðin er eins gjaldþrota og hugsast getur. Útilokað er að greiða skuldir bankanna þótt við værum öll af vilja gerð.
Sama liðið sem brenndi af okkur húsin, eru nú að róta í rústunum eftir verðmætum. Það er siðferðisleg nauðsyn að við Íslendingar losum okkur við brennuvargana úr bönkunum. Ef við gerum það ekki munu komandi kynslóðir dæma okkur sem rag-geitur og aumingja.


1 Comments:
Lárus Welding, Viðskiptablaðið 21. september 2008:
"Aðspurður um fréttir vikunnar af erlendum bönkum sem hafa hrunið og riða til falls sagði Lárus íslensku bankana nokkuð vana því umhverfi sem erlendir bankar þurfa nú að búa við, þ.e. að vera með hátt skuldatryggingaálag.
„Við erum að sjá það aftur og aftur að sveigjanleikinn í kerfinu hjá okkur og hvernig við höfum undirbúið okkur er að skapa okkur verulega sterka stöðu. Helsta vandamálið í mörgum erlendum bönkum er að þeir eru mjög háðir einum eignaflokki, þ.e. fasteignaveðlánum. Íslensku bönkunum hefur hins vegar tekist að dreifa eignunum mjög vel og þeir eru ekki mjög tengdir fasteignum,“ sagði Lárus.
Aðspurður hvort það sé eitthvað til í því að íslensku bankarnir setji gengi krónunnar niður viljandi þegar kemur að því að skila árshlutauppgjöri sagði Lárus svo ekki vera. „Við höfum ekki lagt neina áherslu á að horfa á hvernig gengishagnaður okkar þróast. Til lengri tíma litið er það ekki banka í hag að krónan sveiflist eða sé veik. Hagsmunir íslenska fjármálakerfisins eru fyrst og fremst stöðugleiki og hann viljum við sýna.“
http://www.m5.is/?gluggi=frett&id=44028
By
Nafnlaus, At
7. nóvember 2008 13:31
Sendu inn athugasemd
Subscribe to Post Comments [Atom]
<< Heim