Persneskar þokkagyðjur

Ég tek alltaf almenningsvagna í vinnuna þessa dagana. Ingunn er að vinna í Mölndal og fær því bílinn. Ég vakna því alltaf klukkan 05:40 og næ strætó klukkan 06:04. Mættur í vinnuna klukkan 06:50. Gæti ekki verið betra.
Á leiðinni heim eru vagnarnir alltaf pakk fullir og það vakti athygli mína að viss menningarkimi er áberandi í sporvögnum Gautaborgar milli klukkan 17 og 18. Það eru unglinsstúlkur af persneskum meiði. Þær eru afkomendur Íranskra innflytjenda sem komu hingað til borgarinnar við byltinguna í Íran 1979. Þessar stúlkur eru margar ferlega líkar og mér finnst stundum að ég sé alltaf að hitta sömu stelpuna.
Margar hverjar eru afar glæsilegar. Nokkuð smávaxnar, stórbeinóttar, hörundið mokkabrúnt og hárið tinnusvart. Hnýtt í tagl ofarlega við höfðuð þannig að sést í grannann hálsinn. Stór augu og brún. Augnabrúnir eru skarpar og hvassar. Munnurinn lítill, tennurnar hvítar og varir þykkar. Þessar persnesku stúlkur eru mikið málaðar með dökkum augnalit og varalitaðar með fölbleiku. Oft er á höfðinu skræpótt derhúfa og taglið látið í gegnum húfubandið. Íþróttajakki, 4 númerum of stór. Spariskór, þröngar gallabuxur. -Alltaf að mála sig.
Ferlega gaman að heyra það þær tala saman á skánsku dauðans


5 Comments:
Tala þær skánsku?
By
ÞG, At
5. nóvember 2008 16:14
Þú ert nú ljóti perrakallinn.
Greinilegt að þú hefur mænt vesalings stúlkurnar í spað.
By
Nafnlaus, At
5. nóvember 2008 16:30
Ekki er laust við þessi athugasemd eigi við rök að styðjast.
By
Teitur Atlason, At
5. nóvember 2008 16:33
Hummm, hafðu endilega augu og eyru áfram sperrt.
Ef þú heyrir einhverja þeirra tala fjálglega um að hana dreymi um að flytjast í lítið sjávarþorp á austurströnd Íslands til að ala upp börn með bláeygum, skolhærðum og vasklegum íslendingi máttu hafa mig í huga ;)
Siggi Óla
By
Nafnlaus, At
5. nóvember 2008 22:47
Siggi:
Talaðu við sænsku lögregluna. Það er fullt af pstúlkum á skrá hjá þeim sem vilja flýja að heiman og fá nýtt identity.
By
Nafnlaus, At
6. nóvember 2008 15:47
Sendu inn athugasemd
<< Heim