EIMREIÐIN - veður í gegnum (moð)reykinn

sunnudagur, 30. nóvember 2008

Snorri Ásmunds buffar Kolfinnu ! ! ! !




Snorri Ásmundsson fyrrv. forsetaframbjóðandi réðst á Kolfinnu Baldvinsdóttur í fyrradag. Ljósmyndir náðust af þessari árás.



















.




















Reyndar var þetta gerningur sem fór fram í listasafni...

Alltaf gaman að Snorra. Klikkaðri maður er vandfundinn.

laugardagur, 29. nóvember 2008

Nú er ég hættur að skilja....

Jörð, vindur og eldur

Ég hef stundum sett best-of plötu með Earth Wind and Fire í Ipodinn. Þvílík grúppa! Maður minn góður! Brassið er á SVO réttum stöðum... Flestir kannast lög á borð við Boogie Wonderland, September og Fantasy. En þetta hérna leyndist inn á milli.

-Þvílíkt og annað eins! Jemundur minn á gulu skónum hvað þetta er flott lag. Getaway.

Bylting í loftinu

Það eru merkilegir tímar sem Ísland er að ganga í gegnum. Fólk hefur misst allt traust á "kerfinu". Máttlausar tilraunir stjórnvalda til að auka traustið eru dæmdar til að misheppnast. Það sem mér þykir merkilegast að ég hef á tilfinningunni að Bubbi hafi rétt fyrir sér þegar hann segir að bylting liggi í loftinu.

Ég sé ekkert að því að hópur valinkunnra einstaklinga, án tenglsa við hin spilltu stjórmálaöfl, stýri landinu í gegnum þann stórsjó sem bylur á okkur. Stjórn sem situr í 6 - 12 mánuði og segir síðan af sér þegar kosið er.

Ég held að slík stjórn myndi njóta trausts.

föstudagur, 28. nóvember 2008

Heykvísl

"það eina sem maður þarf að gera er að skreppa út í BYKO og kaupa sér heikvísl" sagði félagi minn mér þegar ég spurði hann út í efnahagsástandið.

-Ha, hvað ætlar þú að gera við heikvísl sagði ég.

Félagi minn hélt áfram "Þegar lögfræðingarnir og rukkararnir koma upp stigaganginn heima ætla ég að mæta þeim með heikvíslinni og flæma þá út úr húsinu".



-Mér þykir þetta bara nokkuð sniðug aðferð.

Óþverralegt námsefni í 7 ára bekk

Ég hvet lesendur til að kíkja á vantrúargrein dagsins.

-Sumum er ekki við-bjargandi.

Dr.Dómsdagur

Maður að nafni Peter Shiff er kallaður Dr. Dómsdagur. Hann er bandarískur viðskiptafræðingur sem hefur frá árninu 2006 varað við fjármálakreppunni. Það er nánast óhuggulegt að horfa á þessa samantekt frá YouTube þar sem hlegið er að varnaðarorðum hans. Grunnpunktur Peters er sá að neytendur geta ekki tekið fleiri lán. Þeir eru skuldum vafnir og ráða ekki við fleiri raðgreiðslur, bílalán eða hvaðeina. Bankar geta því ekki "selt" vöruna sína lengur. -Kerfið hrynur.

Hérna er þessi samantekt sem ég hvet ykkur til að horfa á.

Brotlending Sjálfstæðisflokksins

Undanfarnar vikur hefur fólk fundið allskonar sökudólga fyrir hruninu. Stjórmálamenn, Auðmenn, Davíð Oddson, klíkusamfélagið, samtryggingin osfr.

Lítið hefur verið minnst á brotlendingu Sjálfstæðisflokksins. Ætlar Siggi Kári og Gibbi Bármans að væla um "frelsið" og "hinar íþyngjarndi reglur sem verður að afnema", "hina ósýnilegu hönd" og alla hina frasana sem fara nú á ruslahauga sögunnar.

2. lýðveldið.

Móðir mín impraði á athyglisverðri hugmynd. Í ljósi hrunsins þrufum við Íslendingar að leggja niður lýðveldið og stofna annað á Þingvöllum. 2. lýðveldið.

Byrjum upp á nýtt og búum til betra Ísland.

fimmtudagur, 27. nóvember 2008

Meinleg stafetningarvilla.

Ég eyddu bloggfærslu áðan. það þvældist inn meinleg stafsetningarvilla. Ég við hlutaðeigandi innilegrar afsökunar en af færslunni mátti ráða að R-ið í nafni Ómars R. Valdimarssonar spunakarls stæði fyrir "rasisti".

Vissulega átti ég við rassisti.

Þetta var gys sem kann að hafa misskilist og mér þykir það afar miður.

Ógeðslegur hlustandi

Ég hlusta alltaf á Mix Megapol á morgnanna. Í gær morgun var einn þáttastjórnandi með ógeðfeldan drykk sem hann hafði keypt í asíu. Það var gosdrykkur sem var með hreiður-bragði. Hreiður munu vera töluvert algeng fæða í asíu. Þáttastjórnandinn er hálfgert flón eins og oft fylgir því að vera með morgunþáttinn og er oft ferlega fyndinn. Eftir að hafa bragðað á hreiðurs-drykkinum bað hann fólk um að hringja inn sögur af ógeðfeldum drykkjum. Ekki stóð á viðbrögðum. Einn hringdi og sagðist hafa drukkið sjampó. Annar sagðist hafa drukkið drullupoll.

-Svo hringdi unglinsstrákur inn og sagði sænsku þjóðinni frá því að bróðir sinn hefið mjólkað hvolpafulla tík og drukkið af bestu lyst. við þessar upplýsingar þurfti að gera hlé á útsendingunni því útvarpsflónið hló svo mikið að hann féll í móðurkvið.

-Varð eins og ómálga barn.

Borgarafundurinn í Háskólabíói


Ég var að horfa á borgarafundinn í Háskólabíói nú rétt í þessu. Fínt framtak hjá þessum Gunnari leikstjóra en mikið djöfull er hann slappur fundarstjóri.

Hann er dóni og hann kann sig ekki. Ég saup hveljur þegar hann kynnti upp í pontu mann sem komin var alla leið frá Akureyri. Gunnar fundarstjóri gat ekki setið á strák sínum og gerði hálfgert gys að því að ræðumaðurinn væri að norðan. (reyndar var þessi ræðumaður algerlega frábær).

Svo var frummælendakerfið afar furðulegt. Allir að tala á móti ríkisstjórninni, með skömmum og tilheyrandi. Þetta minnti mig svolítð á sögur úr menningarbyltingunni í Kína. Upp á svið voru þeim seku stillt upp og síðan teknir til vitnisburðir um hve mikil ómenni þeir voru. Þessu fylgdu svo gjarnan pyntingar

Þetta þarf að laga fyrir næsta fund, annars verður enginn fundur. Þessi Gunnar leikstjóri hefur fengið sínar 15 mínútur....

-og klúðraði þeim.

-o-o-o

p.s
Annars var ég sammála flestum ræðumönnum og er þeirrar skoðunar að Samfylkingin ætti að slíta þessu samstarfi við glæpónana í Sjálfstæðisflokknum.

miðvikudagur, 26. nóvember 2008

Orð yfir typpi og píku!

Ég glugga stundum í íslensku samheita orðabókina mína þegar ég hef ekkert að gera. Ég er komin að pé-inu og rakst á orð sem er afar víðfemt. Orðið "pausi" sem þýðir það sama og "poki".

Hérna eru samheiti orðisins pausi

Pausi Paufi, pjási, pokaskaufi, pokaskjatti, pokasnigill, pokataddi, poki, posi, +púsi, skaufi, skjatti, skjóða, skuddi, smápoki, snigill, +tadda, taddi, tussi


Orðið pausi merkir það sama og skaufi og tussi....

100 þúsund kall á dag.

Gerið þið ykkur grein fyrir ágætu lesendur að Davíð Oddson kostar skattgreiðendur 100 þúsund kall á hverjum degi sem hann mætir í vinnuna.

100.000 krónur á mánudögum
100.000 krónur á þriðjudögum
100.000 krónur á miðvikudögum
100.000 krónur á fimmtudögum
100.000 krónur á föstudögum

Mér þykir þessu fé vera illa varið.

Kristjaníuhippi í fæðingarorlofi

Ég var að rifja upp í gær tímann þegar ég var í fæðingarorlofi í sumar. Tíminn setur oft hlutina í óvænt samhengi. þannig er mál með vexti að synir mínir eru all-baldnir, sérstaklega sá eldri (2 ára). Þannig vildi til að á einum hlýindadeginum voru samankomnar nokkar mæður úr hverfinu með börnin sín. Þær virtust vera í einhverskonar keppni um hver ætti prúðasta barnið því börnin þeirra voru klippt út úr Polarn og Pyret-bæklingnum. Öll með húfur í stíl við axlaböndin og mokkasíurnar.

Afar stílhrein börn satt best að segja og stungu í stúf við yngri son minn sem lék sér á bleyjunni í sandkassanum. Fínu börnin undu sér við gullin sín meðan sonur minn át sand. Ég gluggaði í bók og reyndi að fylgjast með þeim eldri sem var að leika sér í litlum læk sem rennur þarna framhjá. Ekki var laust við að ég fann fyrir ákveðnum fordómum fyrir hriðuleysið gagnvart ljóshærðu sandætunni frá fínu mömmunum. Þegar ég sé þær stinga saman nefjum og varfærnislegar bendingar á mig þar sem ég las í bókinni góðu, heyrast drunur frá læknum. Mömmurnar hættu að pukra og litu óttaslengnar á börnin sín og hvor aðra.

Er þá sá eldri búin að leika sér í læknum og fullur af eldmóði þess sem vill fá eitthvað annað að gera. Lækurinn rennur í litlu gili og sést ekki frá leikvellinum. Hinsvegar sást mikil grein færast nær og nær. Þegar greinin kom í ljós sást stóri bróðir sandætunnar í öðrum enda priksins í gríðargóðu skapi þar sem hann rumdi frá sér óhljóðum á inn og útsoginu. Ber að ofan og í einu stígveli og rennblautur frá hvirfli til ilja. Fínu börnin fóru öll að gráta sáran í Polarn og Pyret gallana sína.

Við þessa sjón ákvað ég að nóg væri komið og dreif mig heim með drengina áður en ég væri kærður fyrir vanrækslu.

Ég held stundum að nágrannar okkar hjóna líti á okkur sem "pakkið frá Íslandi".... En bara þegar hlutirnir fara alveg úr böndunum.

:)

Annars er þetta hið vænsta fólk og vinir okkar.

Næsta föstudagsdúsa

Stjórnvöld hafa reglubundið sett fram "umbótatillögur" degi áður en laugardagsfundirnir á Austuvelli farði fram. Síðast voru það meintar launalækkanir þingmanna. Mig rennur í grun að næsta dúsa verði djúsí.

Ég spáið því að Davíð verði látin fjúka.

þriðjudagur, 25. nóvember 2008

Óþolandi - Algerlega óþolandi.

Það er óþolandi tilhugsun að enginn skuli bera ábyrgð á hruninu.

-Ekki Sjálfstæðisflokkurinn og náhirðin í kringum Davíð Oddson. Samkvæmt þeim var stefnan rétt.

-Ekki ráðherrarnir sem gerðu ekkert þrátt fyrir að vita um hrunið handan við hornið

-Ekki seðlabankastjóri sem með orðum sínum felldi alla bankana á einu bretti og efnahagskerfi landsins, flekaði orðstý Íslands um ókomna tíð.

-Ekki verkalýðsforrustan sem tók virkan þátt í sukkinu.

-Ekki fréttamenn sem töldu hag sínum betur borgið að sinna hagsmunum eigenda sinna frekar en lesenda sinna.


Það er komin tími á að sína manndóm og heiðarleika.

Það sem Ingibjörg skilur ekki.

Krafan um kosningar er grundvölluð á kröfunni um að einhverjir verði látnis sæta ábyrgð á bankahruninu (aðallega stjórar Seðlabankans og FME)

Fólk veit vel að Sjálfstæðisflokkur mun ekki gera það. -Brennuvörgunum verður ekki fórnað.

Ábyrgðin hefur því fluttst yfir á Samfylkinguna. Hún VERÐUR að gera eitthvað. Samfylkingin verður að gefa okkur von sem bundum svo miklar vonir við þennan flokk.

-Ekki gera ekki neitt!

Samfylkingin á með opinberum hætti að setja Sjálfstæðisflokknum stólinn fyrir dyrnar og hóta að sprengja stjórnina ef Davíð og FME verði ekki látið fjúka. Verði þetta gert, munu mótmælin hætta og fólk mun öðlast (smávegis)traust á stjörnvöldum.

Ingibjörg, Ingibjörg, Ingibjörg!.
Hlustaðu á fólkið, hlustaðu á staðreyndir málsins. Ekki láta Sjálfstæðisflokkin og glæpahyskið sem þrífst í kringum hann ráða ferðinni.

Hvítir hanskar.

Mér þykir alltaf traustvekjandi tákn þegar lögreglumenn eru með hvíta hanska. Hanskar þessir munu vera hluti af búníngasetti lögreglumanna en eru alltof sjaldan notaðir.

Hvítir hanskar eru nefnilega ákaflega sterkt tákn. Tákn um þjóninn í lögregluþjóninum. Tákn um hreinar hendur. Tákn um að óþrifnaður sést á hvítum hönskunum. Tákn um hreinleika.

Ég vildi gjarnan oftar sjá löggur með hvíta hanska.

Orðspor Íslendinga í Svíþjóð.

Í haust átti ég erindi í bókabúð hér í nágreninu. þegar kom að því að greiða fyrir vörurnar sem ég hafði valið mér kom upp sú staða að ég otaði kortinu mínu að afgreiðslukonunni. Hún horfði á mig tortryggnum augum og bað um frekari skilríki (kortasvindl eru algeng hér í fyrirmyndarríkinu og sérstök skilríki þarf venjulega til þess að staðfesta debet eða kreditkort) ég spurði afgreiðslukonuna hvaða skilríki hún vildi og bauð henni kreditkort með mynd eða ökuskírteinið mitt. Hún dæsti og leit á ökuskírteinið mitt. "Ertu Íslendingur" spurði hún eftir að hafa skimað yfir ökuskírteinið mitt. Já hváði ég.

"Þá þarf ég ekkert skírteini" sagði hún hálf brosandi og nánast ýtti ökuskírteininu mínu aftur ofan í veskið mitt. Augljóst var að sú staðreynd að ég væri íslenskur var nógu gott skírteini í huga þessarar ágætu afgreiðslukonu.

Þetta er að breytast. Núna er mér mætt með tortryggni þegar fólk sér að ég er Íslendingur.

Sighvatur Björgvinsson og kjósendafíflin

Það var svolítið sérkennilegt að lesa grein eftir þingmanninn og ráðherrann fyrrverandi, Sighvat Björgvinsson þar sem hann var að skammast út í þjóðina fyrir að skammast út í Alþingismenn.

Grein Sighvats sérkennileg að því leiti að hann hendir gysi að þeim sem gagnrýnt hafa yfirvöld s.l 40 ár. Í rauninni er röksemdafærsla Sighvats þessi. "Hey! Þið kusuð okkur!"

Gott og vel. Þetta er ágætis punktur. -En þið brugðust okkur. Enginn ætlaðist til þess að flokkarnir eitruðu samfélagið með samtryggingu og mannaráðningasvindi þar sem flokkskírteini voru tekin fram yfir prófskírteini. Enginn vildi fá gegnumspillt embættismannakerfi þar sem allir eru tengdir á einn eða annan hátt inn á aðalskrifstofur stjórmálaflokkanna.

Eins fyndið og það er þá er Sighvatur þessi einmitt fyrirtaksdæmi um það sem við vildum ekki. Uppgjafastjórmálamaður sem fékk heila stofnun undir sig. Þrátt fyrir enga menntun, vafasamt orðspor sem stjórnandi en í "réttum" flokki.

Flokksdindlar eins og Sighvatur eru ráðnir í lykilstöður meðan almennilegt fólk fær aldrei tækifæri.

Þegar Sigurður Guðmundsson fyrrverandi landæknir skoðaði verkefni stofnunarinnar sem Sighvatur stjórnar, var niðurstaða hans afar skýr. Stofnunin er gagnslaus og verkefni hennar til þróunaraðstoðar eru peningasóun.

sunnudagur, 23. nóvember 2008

V-A-K-N-A-Ð-U Ingibjörg Sólrún !

Slíttu þessu stjórnarsamstarfi!

Enginn hefur verið látin sæta ábyrgð vegna bankahrunsins.

Það er óþolandi tilhugsun að Sjálfstæðisflokkurinn skuli ennþá vera við stjórn eftir brotlendingu sjálfstæðis-stefnunnar og þjóðargjaldþroti.

-Þessvegna er fólk að kasta eggjum í Alþingishúsið.

Vaknaðu! það þarf að kjósa hið fyrsta til þess að hinum ábyrgu sé smúlað af dekkinu því augljóst er að Sjálfstæðisflokkurinn mun ekki gera það.

föstudagur, 21. nóvember 2008

ERUÐ ÞIÐ EKKI AÐ GRÍNAST.............

Eimreiðin er ekki bara fyrst með fréttirnar. Hún mótar þær.

Þessa færslu skrifaði ég þann 19. nóv.

Augljóst er að Geir Hilmar og Ingibjörg Sólrún eru dyggir lesendur. -Svo ekki sé minnst á Ólaf Ragnar og Dorrit.

Lúðu-eldi

Í vinnunni minni eru skorin svona 500 kíló af lúðu á hverjum degi. Bosníumaðurinn Marrek sér um það enda mikill snillingur. Ég var að forvitnast um lúðuna og komst það því að hún er ræktuð í Noregi. Þetta er einhver dýrasti fiskur sem til er og er afar eftirsóttur.

Það sem er svo frábært við þetta dæmi að lúðueldi er landbúnaður. Engin rányrkja þar á ferðinni. Hægt er að slátra þegar kúnninn vill og fá þannig heppilegustu stærðina þegar þurfa þykir. Lúðan er reyndar svo ótrúlegt kvikyndi að undrum sætir. Hún getur orðið gríðarlega stór og er ekkert verri matfiskur fyrir vikið. Smálúður eru gómsætar og mikið keyptar af veitingahúsum.

Hví ástunda Íslendingar ekki lúðueldi í stórum stíl? Við höfum viðskiptasamböndin og sölukerfið. Væri ekki traust fyrir sjávarútvegsfyrirtæki að geta treyst á stöðugt framboð af fiski allt árið um kring. Hugsið ykkur ef t.d væri hægt að slátra 10 tonnum af lúðu eða þorski á viku allt árið um kring og selja samliða hefðbundum afla.

Hið opinbera er tilbúið að setja miljarðatugi í eiturspúandi álver og risastíflur sem öllu eyða en láta ekki krónu í rannsóknir eða tilraunir á lúðueldi eða þorskeldi.

-Furðuleg forgangsröðun.

Eftirlauna-ósóminn

Ég man að ein röksemdin fyrir eftirlaunaósómanum var sú að fólk sem setið hafi á þingi og ekki komist aftur inn, ætti í erfiðleikum með að finna "sambærileg" störf eftir þingsetuna.

Þetta er sérdeilis gott dæmi um þá fyrringu sem einkennir stjórnvöld. Í hvaða öðru starfi er hægt að gera þessa kröfu. Maður sem er í góðri stöðu í fyrirtæki á ekkert sjálfkrafa rétt á sambærilegu starfi missi hann starfið. Hann á bara að leita að vinnu eins og annað fólk og um hann eiga að gilda sömu lögmál í atvinnuleitinni eins og annað fólk. Mér þykir reyndar helvíti flott að hafa alþingismanninn á CV-inu og seta þar ætti einmitt að auðvelda viðkomandi að fá eitthvað gott starf.

Ef ekki, ef að fyrrverandi alþingismaður fær ekki "sambærilega" vinnu, þá það. -Tough luck.

Eftirlaunaósómanum verður að sópa burt. Sjálfstæðismenn segja reyndar að það sé útilokað því málið sé svo flókið. Ekki trúa svoleiðis moði. -Það er vel hægt. Neyðarlög til þess að eyða þessum ólögum eru t.d vel möguleg.

fimmtudagur, 20. nóvember 2008

Skammaður fyrir orðaval.

Ég hef að undanförnu verið skammaður fyrir hvassyrta orðræðu um menn og málefni. Þessi gagnrýni hefur komið frá allskonar fólki vinum mínum ellegar fólki sem ég kann engin deili á.

Því er til að svara að þessi orðræða sem ég hef tamið mér kemur afar náttúrulega ef svo má að orði komast. Svona tala ég. Svona vil ég að Eimreiðin sé.

Ég vil ekki verða eins og Þorsteinn Pálsson ritsjóri Fréttablaðsins sem skrifar svo geldan stíl að það eru orðin hálfgerð vísindi að ráða í leiðara Fréttablaðsins. Mér skilst að oft og tíðum hafa mætir menn farið með afrit af pistlum Þorsteins upp í Árnastofnun til að fá botn í það sem Þorsteinn var að segja.

Skoðun á að vera hægt að varpa fram í nokkrum setningum.

Mér leiðist ósegjanlega moð-skoðanirí upphöfnun kanselí-stíl. Þessi moð-stíll er skaðlegur því hann hefur þá virkni og tilgang að deyða umræðuna. Gera hana fjarlæga og fráhrindandi. Ég ætla ekki að taka þátt í þessu moði.

miðvikudagur, 19. nóvember 2008

Drullastu í vinnuna Gísli Marteinn !

Mikið er ömurlegt að heyra baulið í Gísla Marteini á blogginu. Hann á bara að drulla sér í vinnuna eins og allur almenningur. Mér er algerega sama hvort hann mærir gular, grænar eða bleikar samgöngustefnur frá Edinborg.

Hann mun vera á ofurlaunum (ekki á námslánum eins og annað fólk) frá Reykvíkingum í þessu námi sínu og viðhefur þá einu vörn að Ingibjörg Sólrún hafi líka verið á oflurlaunum í sínu námi.

Kæri Gísli, ef þú lest þetta. Það skiptir ekki máli þótt einhver annar hafi sukkað á kostnað Reykvíkinga!. Þú átt ekki að taka þér svoleiðis til fyrirmyndar!

Frasinn: "Svo skal böl bæta með að benda á annað", á svo sannarlega vel við í þessu samhengi.

Sparnaðar-ráð til ríkisstjórnarinnar

Hversvegna eru laun og eftiraun æðstu manna ríkisins ekki lækkuð um svo sem 30%?

Það eru hundruðir manna sem þiggja um það bil eina miljón á MÁNUÐI frá ríkinu. Mér þætti t.d fyrir algerrar fyrirmyndar að þingmenn og ráðherrar myndu lækka launin sín.

það væri ótrúlega sterkt og sýndi og sannnaði að þessu fólki sé alvara. Svona aðgerð myndi vekja traust.

þriðjudagur, 18. nóvember 2008

Trúlaus þrusugella.

Ég rakst á þetta frábæra trúeysingja-vídeó-blogg á YouTube. það sem er svo frábært við þetta er að þessi stelpa (hún heitir Laci...) rúllar upp allskonar fordómum. Fæstir búast jú við að svona gella skuli vera hárbeittur trúleysingi.

Endilega spilið þetta frábæra innlegg. Frábær stelpa þessi Laci. Maður fyllist bjartsýni fyrir hönd mannkynsins við að hlusta á þessa vakyrju. -Bravó!

mánudagur, 17. nóvember 2008

Uggvekjandi samstarfsmaður

Hann Shamir vinnufélagi minn og fjótasti flakari í Svíþjóð vekur hjá mér ugg. Ekki það að hann sé neitt sérstaklega óhuggulegur í útliti. Shamir er smávaxin og grannur líkt og norður-afríkubúar. Það eru bókmenntirnar sem hann les sem vekja hjá mér hroll. Fyrir nokkrum dögum tjáði hann mér aðdáum sína á Frurstanum eftir Maciavelli. Ég játti því og við ræddum lítilega um bókina. Skömmu síðar kom hann til mín og sagðst oft lesa Mein Kampf eftir A. Hitler. Ég hváði og spurði hvort hún væri til á sænsku. Jú hann hélt það nú og mærði í hvívetna inntak þessarar forboðnu bókar.

Mig setti hljóðan um stund.

Í morgun sagðist Shamir hafa lesið 200 blaðsíðna doðrant um helgina. "The Art of War" eftir Sun Tzu. Kaldur hrollurinn skreið upp eftir frystihúsgólfinu, innundir svuntuna mína og ofan í hálsmálið á 66 gráður Norður peysunni minni.

Ég vona bara að Shamir fari nú ekki að grugga í Kóraninum því þá verður fjandinn laus.

sunnudagur, 16. nóvember 2008

Nýr vefur í bígerð.

Í þeirri vakningaröldu sem skokið hefur samfélagið í kjölfar bankahrunsins finnst mér athyglisvert hve landar mínir eru sammála mér um meinsemd pólitískra stöðuveitinga. Þegar fólkið hrópar "Spillingarliðið burt" er í stórum dráttum vísað í þessa meinsemd.

Nú er það svo að allir stjórnmálaflokkar landsins eru ofnir inn í þennan spillingarvef og enginn stikkfrí nema skyldi þeir sem ekki enn hafa komist að kjötkötlunum. Engum dylst þó hugur um að ef t.d Frjálsyndiflokkurinn myndni pottþétt ástunda þennan ljóta leik. Jú eða VG.

Inntak íslenskra stjórmála hefur í raun verið að "koma sínu fólki að". Málefnin eru í rauninni yfirvarp til þess að rugla fólk í rýminu. Ég held að forystufólk stjórmálaflokkanna líti öðrum augum á samfélagið og virkni þess heldur en allur almenningur. Það telur að leið til í góðar opinberar stöður í samfélaginu sé einungis fær í gegnum refskák stjórmálanna. Flokkskírteini eru s.s alltaf mikilvægari en prófskírteini. Gott dæmi um þetta er ráðning Ingu Jónu Þórardóttur í embætti formanns stjórna listahátíða hjá Reykjavíkurborg. Engum dylst hugur um að heill haugur af betri kandídötum voru til staðar. Nám sem útskrifar fólk í menningarstjórnun hefur t.d verið við lýði um alllangt skeið. En auðvitað var Sjálfstæðismaðurinn ráðinn, enda Sjálfstæðismenn við stjórn í Reykjavík. (svo er hún náttúrulega eiginkona forsætis, en það skiptir náttúrulega engu máli. Hún var valin á eigin forsendum....-eða þannig)

Fyrir venjulegt fólk er það nokkuð snúið að hugsa á þessum pólitísku nótum. Það krefst eiginlega núllstillngar á heilbrigðu siðferði og yfirkeyrslu á siðferði hinnar flokkpólitísku refskákar. Sá farvegur sem pólitískar mannaráðningar hafa farið eftir er jafngamall lýðveldinu og ákveðnar umgengnisreglur hafa myndast í kringum þær. Samtrygging stjórmálaflokkana hefur valdið því að sumar stöður eru eyrnamerktar vissum stofnunum. Kratar hafa t.d alltaf "átt" forstjóra Tryggingastofnunar. Þetta eru nokkuð skýrar leikreglur en sumar stofnanir eru eins og í limbói. Starf yfirmanns Veðurstofu Íslands er t.d ekki "eign" neins stjórmálaflokks og þessvegna er alltaf skipt um þennan yfirmann eftir því hvaða stjórmálaflokkar eru í stjórn hverju sinni. Dæmin eru óteljandi og sum hver alveg ótrúleg. Fyrirlitning stjórmálaflokkanna á leikreglum lýðræðisins og heilbrigðri stjórnsýslu er með ólíkindum. Alltaf er þjóðarhagur settur skörinni lægra en hagur stjórmálaflokkanna.

Jón Steinsson lektor við Colombia háskóla benti á í frábærri grein að við Íslendingar höfum einfaldlega ekki efni á þessari spillingu. Það er of dýrt fyrir okkur að láta flokksskírteini hafa meira vægi en prófskírteini.

Hin slæma hliðarverkun af meinsemd pólitískra ráðninga er að allar ráðningar verða settar undir grun um pólitíska spillingu. Jafnvel þótt hið ótrúlega gerist, að prófskírteini sé metið hærra en flokksskírteini.

Ég fór að hugsa um hvað ég gæti gert í tengslum við eþssa meinsemd. Ég er meðlimur í Samflylkingunni og ætla að skrifa eitthvað á vefinn hjá þeim. Senda formanninum nokkrar línur og þessháttar. Ég er ekki í minnihluta Samflylkingarfólks í þessu máli. Spillingarliðið er í minnihluta. Samfylkingarfólk vill EKKI svona vinnubrögð.

En ég ætla að gera meira. Ég ætla að taka DR. Gunna mér til fyrirmyndar og koma á fót vefsíðu þar sem spillingarmálum verður haldið til haga. Gömlum sem nýjum. Annars er ég opin fyrir öllum tillögum hvað varðar uppsetningu og innihald en möguleikarnir eru ansi margir. Það má t.d hafa hverja skýrslu á stöðluðu formi eður ei. Aðalatriðið er að hafa þessar upplýsingar aðgengilegar fyrir hvern þann sem vill fá þær. Með þessu móti má kortleggja samtrygginguna og sjá t.d hvaða flokkar eru verstir eða hvaða stjórnmálamenn eru svæsnastir í pólitískum stöðuveitingum. Svo óska ég eftir nafni á þessa vefsíðu og er gal-opin fyrir öllum tillögum varðandi uppsetningu og svo að sjálfssögðu dæmum um pólitískar stöðuveitingar.

laugardagur, 15. nóvember 2008

Frábær greining hjá Jóni Steinssyni

Jón Steinsson skrifar bestu greiningu á hinum niðurgrafna vanda íslensks samfélags sem ég hef séð.

Meinsemdina um að flokksskírteini eru alltaf tekin fram fyrir prófskírteini

Hérna er greinin:

Höfum við efni á pólitískum stöðuveitingum?

Í síðustu viku voru ný bankaráð skipuð yfir nýju ríkisbönkunum. Svo virðist sem nýju bankaráðin hafi verið skipuð á pólitískum en ekki faglegum forsendum. Með fullri virðingu fyrir því fólki sem er í þessum nýju bankaráðum þá held ég að enginn telji að þarna fari þegar á heildina er litið þeir aðilar sem eru best til þess fallnir að gæta þeirra gríðarlegu hagsmuna sem skattgreiðendur hafa af rekstri nýju bankanna. Margt af þessu fólki virðist ekki hafa nokkra einustu reynslu af bankastarfsemi.

Það er vitaskuld engin nýlunda á Íslandi að fagleg sjónarmið víki fyrir flokkspólitík þegar ráðið er í stöður hjá ríkinu. Á undanförnum vikum höfum við byrjað að súpa seyðið af þessu svo um munar. Er nema von að allt sé að fara til fjandans á Íslandi þegar trekk í trekk er gengið fram hjá hæfasta fólki landsins og afdankaðir stjórnmálamenn, skyldmenni þeirra og aðrir flokkshestar eru ráðnir í margar helstu stöður innan ríkisins.

Ráðning Davíðs Oddssonar í stöðu Seðlabankastjóra er gott dæmi. Aðgerðir hans og ummæli á síðustu vikum og mánuðum hafa gert það að verkum að fjöldi erlendra stórblaða hefur birt greinar sem hæðast að honum og hæðast í leiðinni að íslensku þjóðinni.

Við þurfum að lifa með afleiðingum pólitískra ráðninga ekki bara í Seðlabankanum heldur einnig í dómskerfinu, lögreglunni, utanríkisþjónustunni, heilbrigðiskerfinu, ráðuneytunum, ríkisstofnunum, ríkisfyrirtækjum og víða annars staðar. Við líðum öll fyrir þessar ráðningar á hverjum degi þótt það sé ekki augljóst nema þegar allt ef komið í óefni.

Annað sem við höfum ekki efni á lengur er að þeir sem standa sig ekki í starfi komist hjá því að segja af sér eða vera settir af. Það er nánast engin hefð fyrir því að embættismenn og stjórnmálamenn segi af sér á Íslandi. Einu dæmin um slíkt hafa með smámál að gera eins og bílakaup, laxveiði og nú síðast að reyna að koma höggi á samherja. En þegar hundruð milljóna tapast og nú í seinni tíð hundruð milljarða gerist ekkert. Meira að segja George Bush þurfti á endanum að láta Donald Rumsfeld, Michael Brown og Alberto Gonzales fara. Á Íslandi hefðu þessir menn setið sem fastast.

Við erum fámenn þjóð og því kemur oft upp sú staða að langhæfasti aðilinn til einhvers verks er í röngum flokki. Við þurfum nauðsynlega hugarfarsbreytingu í þessum efnum. Við höfum ekki efni á því að ganga fram hjá hæfasta fólkinu þegar kemur að stjórn mikilvægustu stofnana landsins.

Brúna stjarnan

Mér þykir áhugavert þegar góðgerðarmál eru "brönduð" eins hver önnur neysuvara. Festir þekkja jú bleika borðann til styrktar rannsóknum á brjóstakrabba.

Ég ætla að koma hér með alveg ókeypis tilögu að áþekkri lausn fyrir rannnsóknir á krabbameini í blöðruhálskirtli (sem er eiginlega svar karlkynsins við brjóstakrabbanum)

-Brúna Stjarnan.

Frábært væri að sjá alla fréttaþuli með Brúnu stjörnuna, alla stjórnmálamenn og lykilfólk í viðskiptalífinu.

föstudagur, 14. nóvember 2008

Einu sinni...

Fannst mér þetta lag vera gersamlega frábært...



Fyndið. :)

fimmtudagur, 13. nóvember 2008

Stoltur af VR.

Verkalýðsfélagið mitt VR er í umbrota-ham. Þetta sterka og stóra félag hefur þjáðst fyrir óhæfan og spiltan formann undanfarin ár og nú hafa félagsmenn fengið nóg og reyna að fella formanninn. Ofurlaunaformaðurinn og skuldaafskrifari miljónamæringanna verður að fara.

Ég hef á tilfinningunni að ef það tekst þá er skapast vonarglæta um að hlutirnir geti batnað. Að breytingar geti orðið, að eining sé ekki bara orð sem notað er á tyllidögum, að gangverk samfélagsins, reglur þess og réttlæti fái notið sín.

Ef þetta tekst ekki er úti um allt. Þessi fundur er Stalingrad. Hér verða vatnaskilin.

-Spillingin út og réttlætið inn.

Islands president till attack

Ummæli Ólafs Ragnars um hinar sviksömu nágranna sína fóru ekki framhjá neinum í gær og í dag. Öll sænsku blöðin fjalla um málið. Umfjöllunin er öll á sömu leið. Svíar eru bara hissa. Þetta er í öllum blöðum og netmiðlum viðkomandi blaða.

Metro

Expressen

STV

E24

Illugi Gunnarsson með 347 þúsund?


Ég var að garfa í tekjublaðinu vegna þess að mig langaði til að sá hvað Illugi Gunnarsson hafi fengið fyrir að passa upp á peninga landsmanna vegna Sjóðs 9. Ég ætlaði s.s að draga þingmannskaupið frá heildartekjum og fá út mismuninn sem hlýtur að vera nálægt þeim tekjum sem Glitnir borgaði Illuga Gunnarssyni fyrir að passa upp á sjóð 9.

-Nokkuð sem þingmanninum færðist hraklega úr hendi.

En viti menn. Illugi er skráður í Tekjublaðinu með 347 þúsund krónur á mánuði!. Hverju sætir þetta? hvað er hér á ferðinnni? Þetta eru ekki einu sinni þingmannslaun. Frjáls Verlsun hljóta að hafa farið mannavillt.

Hvað fékk Illugi borgað fyrir að vinna ekki vinnuna sína frá Glitni? Mér þykir þetta lykilatriði og gæti skýrt hva hvar smánarlega honum vannst þetta verk úr hendi.

Olíufundur við Ísland

Ef að olía finnst við Drekasvæðið eins og ýmislegt bendir til.

-Þá munu 3 til4 vinir hans Davíðs fá afnotin af henni.

-Það er eins pottþétt og ég lem á þetta lyklaborð.

Óalgeng fiskheiti.

Ekki er algengt að fiskaheiti hafi forskeytið "-fjalla" sbr. Fjallaýsa eða fjallasíld. Þó er slíkt til en afar fátítt. Fjallabúri er stundum flækingur við Ísland. Fuglar eru reyndar oft kenndir við hafið sbr haf-tyrðill en það er pínulítill fugl sem unir sér helst í frosti.

Þegar ég var í sveít í Húnavatnssýslu man ég vel eftir "fjár-silungi" sem var notur eins og fjárhundur. þaðan er nafnið komið. Þetta var silungur sem á einhvern hátt gat andað lofti og hlaupið á sporðinum. Silungurinn hændist að bóndanum og tók loks stöðu tíkarinnar á bænum. Fjársilungurinn er því miður dauður en hann féll milli fjala á brú og drukknaði.

Hans er saknað.

miðvikudagur, 12. nóvember 2008

Ummæli Ólaf Ragnars á TV4 í Svíþjóð.


Mig rak í rogastanz þegar ég horfði á fréttirnar áðan. Fréttamaðurinn sagði Ólaf Ragnar hafa hellt sér yfir sænska embættismenn og hótað því að láta Rússum í té afnot af Keflavíkurflugvelli. -Úff!

Hann skammaði Svía fyri að hjálpa ekki Íslendingum. En afhverju ættu Svíar að hjálpa? Baldur McQueen benti á í blogginu sínu að ekkert hefði í raun breyst. Hví á að lána fólki sem vill ekki breyta hegðan sinni og vill ekki taka ábyrgð á gerðum sínum.

Í tilfelli bankanna eru t.d allir topparnir ennþá að vinna þar fyrir utan efsta lagið. Allir stjónendur og millistjórnendur eru enn við störf. Hver getur t.d tekið Landsbankann alvarlega þegar tveir voru reknir eftir hrunið! Sigurjón bankastjóri mun ennþá vera að sniglast í Landsbankanum. Bankamaður sem er í leyniþjónustu Eimreiðarinnar segir að erlendir bankar hunsi algerlega íslensku bankana af vegna þess að þar hefur ekki verið hreinsað til. Það er ekki nóg að reka 2 kalla úr hverjum banka og halda bæta svo orðinu "Nýji" fyri framan gamla heitið.

Um leið og íslensk stjórnvöld taka til í sínum ranni mun hjálpin berast. Því ætti einhver að hjálpa fullum drykkjumanni sem á ekki bót fyrir boruna á sér? Látum þann fulla hætta að drekka, fá sér smá vinnu og fara í bað áður en honum er lánað fé.

Þarf virkilega að segja þetta við stjórnvöld? Liggur þetta ekki í augum uppi?-

Sonur minn


Þessa mynd tók ég af eldri syni mínum eftir fyrstu frostnóttina.

Viðbrögð formanns VR við gagnrýni

Eftir að formaður VR fékk á sig holskeflu bréfa frá reiðum meðlimum VR (í kjölfar afskrifa hundruða miljóna toppanna hjá Kaupþingi) svarði Gunnar Páll aðsendum pósti með þessu staðlaða bréfi.

Ég virði afstöðu þína, en vill reyna að útskýra afstöðu mína í nokkrum orðum. Sennilega gerði ég mistök en á þeim tíma virtist ákvörðunin rétt.

Ég tók afstöðu mína út frá stöðunni í september og þá var enginn vafi í mínum huga að bankinn væri sterkur og myndi standa af sér óveðrið. Ég sendi með yfirlýsingu mína um aðdraganda og forsendur fyrir ákvörðun minni. Ég vona að yfirlýsingin [sjá neðar] skýri afstöðu mína.
Kveðja
Gunnar Páll

Í þessari yfirlýsingu Gunnars Páls felst klassísk leið til þess að firra sig ábyrgð. Hann segir í rauninni að "þegar ákvörðinin var tekin var hún rétt". En lesendur góðir! Flest mistök heimsins eru einmitt undir þessa sök sett! Fæstir gera jú mistök í góðri trú. Það er einmitt vegna þess að Gunnar Páll taldi þessa ákvörðun vera rétta á sínum tíma, að hann á að sæta ábyrgð.

Þetta er eins og að hlusta á ökumann bifreiðar sem er nýbúin að keyra á vegfarenda segja "Ég taldi það á þeim tíma að enginn væri á götunni í þessu myrkri þannig að ég hægði ekki á mér við biðskildumerkið".

-Það er einmitt þessvegna að ökumanninum á að refsa!

Yfirlýsingu Gunnars Páls sem hann vitnar í í upphafi þessarar færslu má lesa hérfyrir neðan.

Yfirlýsing vegna Kaupþings banka

Gunnar Páll Pálsson, formaður VR

Eins og fram hefur komið í fréttum samþykkti stjórn Kaupþings að fella niður persónulegar

ábyrgðir starfsmanna bankans vegna lána sem tekin voru vegna kaupréttarsamninga.

Sem stjórnarmaður í Kaupþingi var það skylda mín að verja hagsmuni hluthafanna. Þegar

fjallað var um það á stjórnarfundi bankans að heimila forstjóranum að fella niður persónulegar ábyrgðir starfsmanna var mér efst í huga sú skylda að tryggja hag bankans og umbjóðenda

minna.Engin teikn voru á lofti um að bankar landsins yrðu fljótlega ríkiseign, allra síst

Kaupþing sem að allra mati var afar stöndugur banki með alla burði til þess að standa af sér

þrengingar í bankakerfinu. Á þeim tíma var verðmæti hinna veðsettu hlutabréfa starfsmanna bankans meira en fjárhaeð eftirstöðva skulda. Ég tók því ákvörðun eftir minni bestu samvisku og í ljósi þeirrar sterku stöðu sem bankinn var í. Við stóðum frami fyrir tveimur kostum:

a. Að segja við lykilstarfsmenn að selja hlutabréfin og greiða upp lánin. Sala lykilstjórnenda á

hlutabréfum er tilkynningarskyld til Kauphallarinnar og því hefði sala bréfanna væntanlega

leitt til ofsaótta á markaðinum og að öllum líkindum verulegs söluþrýstings frá öðrum aðilum.

Öll rök benda til að slíkt ferli hefði leitt til þess að hlutabréf í bankanum hefðu fallið eins og steinn og hugsanlega leitt bankann í þrot af þeim sökum.

b. Að líta svo á að bankinn væri traustur og að hann myndi komast í gegnum erfiðleikana.

Hugsanlega maetti þó búast við að hlutabréfaverð félli um 10-20% í viðbót í vetur en þegar

rofaði til aftur, risi hlutabréfaverðið og veð bankans gagnvart umræddum skuldum yrðu

fullnægjandi á ný. Ég leit svo á að við værum því ekki að samþykkja að fella niður skuldir

heldur að víkja tímabundið frá skilmálum um veðtryggingar. Markmiðið var að verja bankann frá falli. Því miður breyttist staðan og eftir á að hyggja var sú ákvörðun byggð á röngum

forsendum.

Þegar ég fer yfir stöðuna aftur nú í ljósi þess sem gerðist eftir stjórnarfundinn í september á égenn erfitt með að sjá að við hefðum getað tekið aðra ákvörðun. Ef við hefðum valið þá leið að segja starfsmönnum að selja hlutabréfin og greiða upp lánin saeti fyrri stjórn bankans

væntanlega undir ekki síður harkalegri gagnrýni um að hafa hyglt stjórnendum, að stjórn hafi séð fyrirþað sem varð og heimilað starfsmönnum að selja á undan öðrum til þess að þeir gaetu greittupp skuldir. Væntanlega sætum við einnig undir gagnrýni að sú aðgerð hefði leitt til

falls bankans.

Ég tel að þessa stöðu bankans, varðandi hlutabréfakaup starfsmanna, megi rekja til þess að

farið var of geyst í að tengja hagsmuni bankans við hagsmuni starfsmanna. Sú leið að

“árangurstenga laun” er hugsanlega góð á uppgangstímum en sýnir sig nú að geta haft

skelfilegar afleiðingar. Ég hef setið í stjórn Kaupþings í 7 ár fyrir hönd lífeyrissjóðanna.

Í nóvember 2003 sætti ég gagnrýni fyrir setu mína í stjórninni en þá voru miklar umraeður í

þjóðfélaginu um samþykktir stjórnar bankans um háar launagreiðslur og kauprétti til yfirmanna hans. Ég sat hjá við atkvæðagreiðsluna í stjórn bankans um launakjörin og bókaði andstöðu mína þar sem fram kom að ég gaeti ekki stutt þessa ákvörðun. Síðan þá, í anda góðra

stjórnarhátta, hefur starfskjarastefna bankans og hlutabréfakaupréttir verið lögð fyrir aðalfundi


Flámæli og sunnlenska

Nágranni minn af Ásvallagötunni var alveg frábær. Við áttum skap saman þrátt fyrir að vera hálfgerðir sérvitringar báðir tveir. Hann var rúmum 40 árum eldri en ég. Alltaf þegar hann opnaði munninn lagði ég við hlustir því hann var flámæll. Allt föðurfólkið mitt var meira og minna fámælt en reyndi að venja sig af því þegar það þótti ófínt. ÉG minnist þess að einu sinni kom þessi ágæti nárganni minn upp til mín, bankaði á hurðina og spurði ósköp bljúgur:

"Elsku venur. Getur þú lánað okkur bolla af sekri".

Mér þóttu þetta óskaplega falleg orð.

Amma mín sem fædd var í Flatey talaði sérstakt mál. "Höndur" voru hendur. "Þær réttu upp höndur". Hún talaði líka alltaf um "sykrið" í hvorukyni. "Stakkett" var girðing og "fortö" var gangstétt. "Altan" voru svalir.

Amma mín í móðurættina talaði hinsvegar með sunnlensku. það þótti mér og bróðir mínum óskaplega fyndið og gerðum að henni stólpagrín. Hótuðum að stoppa hana upp þegar hún hrykki upp af og setja haminn á Þjóðmynjasafnið með skilti fyrir neðan sem á stæði: Síðasti Íslendingurinn sem talað sunnennsku.

-Það er afar langt síðan ég hef heyrt sunnlensku.

þriðjudagur, 11. nóvember 2008

Sorrý Sigurjón...

Ég birti færslu í gær það sem ég uppnefni Sigurjón Þ. Árnason. Mér þykir það miður að hafa kallað hann Sigurjón Digra. það dregur úr slagkrafti færsunnar. Hér birtist s.s betri útgáfa.

Leyniþjónusta Eimreiðarinnar hafði samband við mig og kom á framfæri lítilli bombu. Hún er þessi.

Í vikunni eftir að Sigurjóni Þ. Árnasyni Landsbankastjóra var vikið frá störfum fékk vefdeild og hönnunardeild Landsbankans verkefni.

Verkefnið var fólgið í því að búa til vefsíðu og lógó fyrir nýja ráðgjafafyrirtækið hans Sigurjóns. Nýja lógóið mun hafa hangið út um allt á markaðsdeildinni og vefhönnuðir unnu hörðum höndum að setja upp heimasíðu fyrir Sigurjón Þ Árnasonar. Athugði að á þessum tíma var Landsbankinn orðin að ríkisfyrirtæki og kraftar ríkistarfsmanna voru notaðir til þessa að Sigurjón Þ. Árnason þyrfti ekki að kaupa þessa þjónustu út í bæ.

Hér með er línan gefin fyrir fyrirtæki og einstaklinga sem þurfa á ókeypis vefhönnun og nýju lógói að halda. Farið bara í Landsbankann. Þar fáið þið þetta frítt.

Það er alltaf betra að sleppa uppnefnum og svoleiðis viji maður láta taka mark á sér. Þetta er augljóst og ég er hættur þessum ósið.

Sérkennileg bifreið.


Ég varð rafmangslaus í gærmorgun. Bíllinn startaði eins og venjulega en drap síðan á sér og fór ekki aftur í gang. Ég ræsti út konuna (enda er hún helvíti góð í því að ýta í gang) en hún gafst upp í lítilli brekku. Ég brá því á það ráð að láta bílinn renna afturábak og kikkstartaði honum þannig. Rúmmm. Fór í gang... En hann hlóð sig greinilega ekki en var samt í gangi. Ég snéri honum við í og létt hann renna áfram óg kikkstartaði honum þannig. Rúmmm.. Fór í gang og hlóð sig. Gengur eins og í sögu.

Það furðulega er að þetta hefur gerst áður. það er eins og hann hlaði sig ekki þegar maður lætur hann renna afturábak í gang en hleður sig þegar maður lætur hann renna á hefðbundin hátt í gang.

Getur einhver frætt mig um hverju þetta sætir?

Eitraður fiskur

Í athugsasemd við bloggfærslu í síðustu viku sagði ég frá ógeðfeldum fiski sem ég flaka og roðfletti stundum í vinnunni. Þetta eru lítil kvikyndi, alsettir eiturgöddum. Furðulega svipjótur en roðfagur. Roðið líkist því á hlýra nema blátt ástundum. Þetta mun vera herramansmatur.















Takk Pólland.


Mikið hefur verið skrifað um lán Færeyinga til handa Íslendingum. Tugþúsundir Íslendinga hafa skrifað undir þakkarskjal og er það vel. Mér þykir sæta furuð að Pólverjar skulu ekki njóta sannmælis á við Færeyinga því þeir ætla líka að lána okkur. Upphæðin er bara töluvert mikið hærri. Pólverjar er sú þjóð Evrópu sem hefur farið í gegnum hvað mestu hörmungartíma á 20 öldinni. Þeir eru þekktir fyrir kjark, áræði og ótrúlega seiglu. Pólverjar eiga alltaf heiðurssess í mínum huga og ég ber ótakmarkaða virðingu fyrir þessari þjóð. Þjóð sem nú réttir okkur hjálparhönd á okkar hörmungartímum. Íslendinar hafa verið svo lánsamir að Pólverjar hafa sest að á Íslandi undanfarin ár og margir hafa fest rætur á landinu bláa.

Til þessa fólks vil ég segja takk frá dýpstu hjartans rótum og hvet landa mína til þess að gera það sama. -Við munu ekki gleyma þessu.

mánudagur, 10. nóvember 2008

Bjarni Harðarson þarf ekki óvini.


Hann er sjálfum sér verstur. Ef til væri heimsmeistarmót í hálfvitaskap þá fengi þingmaðurinn Bjarni Harðarson fyrstu verðlaun. Ég er kjaftstopp.

Óhefðbundin notkun á kæli-sprey-i

Norrlands Guld er bjórtegund hér í Svíþjóð. Þetta brugghús tengir sig mikið við íþróttir. það var auglýsingaherferð í kringum EM og Ólympíuleikanna. Núna er verið að keyra þessa hérna. Helvíti fyndin auglýising þar sem kælisprey sem íþróttafólk notar er brúkað á óhefðbundin hátt.

Listahátíð Sjálfstæðisflokksins.


Ég varð hvumsa eins og fleiri þegar ég frétti af því að Inga Jóna Þórðardóttir hefði verið valin formaður stjórnar Listahátíða. Þeir sem völdu hana voru samflokksmenn hennar úr Sjálfstæðisflokknum. Nú er það svo að til er heill haugur af fólki sem hefur menntað sig sérstaklega til þess arna og dreymir um að fá tækifæri til þess að stýra svona verkefnum meðan Inga Jóna veit ekkert um list, listsköpun eða listafólk. Guðbergur Bergsson orðaði þetta svo vel þegar hann sagði að Sjálfstæðismenn hefuð engan áhuga á listamönnum nema dauðum listamönnum. Inga Jóna veit hinsvegar betur en flestir hvernig á að klifra upp metorðastigan í Sjálfstæðisflokknum. Og svo er hún náttúrulega eiginkona formanns Flokksins. -Hvað á íslenska þjóðin að þola þetta lengi? Einn eitt miljónastarfið fyrir Flokkinn.

Þessi ráðning kristallar meinsemd í íslensku samfélagi. Meinsemdina um að Flokkskírteini eru alltaf tekin fram fyrir prófskírteini. Þeir óhæfu fá alltaf lykilstöður meðan þeir hæfu þurfa að bukta sig fyrir Flokknum.

En þetta er ekki ástæða hugleiðingarinnar heldur símtal sem ég átti við vin minn. Ég sagði honum hálf titrandi röddu hvort þetta fólk hefði enga sómatilfinningu eða þvíumlíkt. Svarið kom mér nokkuð á óvart. Jú jú sagði viðmælandi minn. Þetta fólk hefur alveg sómatilfinningu. Það heldur bara að svona eigi samfélagið að virka. Flokksmenn halda í alvörunni að svona eigi hlutirnir að ganga fyrir sig. Að þetta sé leiðin til þess að fá "stöðu". Ekki hæfileikar, ekki eldmóður, ekki ástríða fyrir vinnuni. Heldur Heimdallur, SUS, Flokksþingsfulltrúi á Landsfundi..

Þetta er hverju orði sannara. Ég hvet fólk til að sniðganga þessa Listahátið Sjálfstæðisflokksins.

Landsbankinn látin borga

Leyniþjónusta Eimreiðarinnar hafði samband við mig og kom á framfæri lítilli bombu. Hún er þessi.

Í vikunni eftir að Sigurjóni digra Landsbankastjóra var vikið frá störfum fékk vefdeild og hönnunardeild Landsbankans verkefni.

Verkefnið var fólgið í því að búa til vefsíðu og lógó fyrir nýja ráðgjafafyrirtækið hans Sigurjóns. Nýja lógóið mun hafa hangið út um allt á markaðsdeildinni og vefhönnuðir unnu hörðum höndum að setja upp heimasíðu fyrir Sigurjón digra. Athugði að á þessum tíma var Landsbankinn orðin að ríkisfyrirtæki og kraftar ríkistarfsmanna voru notaðir til þessa að Sigurjón digri þyrfti ekki að kaupa þessa þjónustu út í bæ.

Hér með er línan gefin fyrir fyrirtæki og einstaklinga sem þurfa á ókeypis vefhönnun og nýju lógói að halda. Farið bara í Landsbankann. Þar fáið þið þetta frítt.

Aðstandendur Nýrra tíma

Hafið þið tekið eftir að í röðum aðstandenda Nýrra tíma eru horfin út Kolfinna Baldvinsdóttir og Snorri Ásmundsson.... Klikkið á myndina til að sjá stærri upplausn.

http://www.nyirtimar.com

Ég hvatti reyndar Snorra til að draga sig út úr þessu dæmi í lítilli bloggfærslu. Snorri er óvitlaus og líkist afa mínum óskaplega mikið. Það kemur málinu náttúrulega ekkert við.

Ofurbílasýning í miðri kreppu.

Oddur félagi minn og vinur hans Steinarr læknir Björnsson rifu mig upp úr aumingjaskap og heiladauða í dag. Drifu mig á sportbílasýningu í Svenska Massan. Þar var allt útatað í flottum bifreiðum. Mér fannst grænn Lamborghini Gallardo bera af.-Blæjubíll.

Dóttir mín 10 ára er
mikill aðdáandi ítalskara sportbíla og ég saknaði hennar mikið á þessari sýningu. Uppáhaldstegundin hennar er einmitt Lamborghini. Hún hefði örugglega verið sammála umér í uppáhalds. Ég er líka viss um að frændi minn MSK hefði ennþá þarna grátandi eins og smábarn ef hann hefði komið með okkur. Hérna eru nokkar myndir af þessari kreppusýning








































Því miður var einhver búin að kaupa draumabílinn minn......


laugardagur, 8. nóvember 2008

Kemst ekki heim

Veikur. Miði í súginn.

föstudagur, 7. nóvember 2008

Lárus Welding er lygari.

Nú þegar gruggið er aðeins farið að setja á þá ömurlegu atburðarás sem leiddi til gjalþrots bankanna kemur ýmislegt ógeðslegt í ljós.
  1. Hrunið var fyrirséð af öllum bönkunum.
  2. Stjórnvöldum var kunnugt um aðvífandi hrun
  3. VR var innvinklað inn í svikavef Kaupþings. Formaðurinn hefur afhjúpast sem gangster.
  4. Þjóðin er eins gjaldþrota og hugsast getur. Útilokað er að greiða skuldir bankanna þótt við værum öll af vilja gerð.
Eitt er það atriði sem ég vil að haldið sé til haga en það eru fifferíngar bankanna fyrir fjórðunguppgjörin sín. En þá stóðu allir bankarnir í því að gera "árás" á krónuna með það fyrir augum að fella hana og fegra þannig uppgjörin sín. Lárus Welding neitaði þessu staðfastlega í sjónvarpsfréttum. Lárus var að ljúga. Allir vita nú að bankarnir ástunduð þessar árásir á krónuna með miskunarlausum afleiðingum fyrir allann landslýð. Lárus er í dag einn hæst launaðasti starfsamaður ríkisins!

Sama liðið sem brenndi af okkur húsin, eru nú að róta í rústunum eftir verðmætum. Það er siðferðisleg nauðsyn að við Íslendingar losum okkur við brennuvargana úr bönkunum. Ef við gerum það ekki munu komandi kynslóðir dæma okkur sem rag-geitur og aumingja.

Búin að kaupa miða.

Ég ætla að sinna borgarlegri skyldu minni sem Íslendings. Ég ætla að koma heim til Íslands þess að vera viðstaddur mótmælin á laugardaginn.

Ég er ekkert alltof sammála aðstandendum þessa framtaks en það er bara allt í lagi. Það er málefnið sem skiptir máli. Þó að við séum ólík og lífsskoðanir okkar séu jafnvel gerólíkar, þá erum við allavega sammála um að það þurfi breytingar á Íslensku samfélgi. Bankatopparnir í félagi við Sjálfstæðisflokkinn eru búin að rústa samfélaginu okkar. Þetta verðum við að hindra með öllum ráðum tiltækum. Ég ætla ekki að láta það flækjast fyrir mér þótt sumir aðstandenda þessa átaks fari í taugarnar á mér. Taugarnar á mér geta bara átt sig. Málefnið er það sem semeinar.

Ég og Halli Heimdallur eigum að geta gengið í takt. Ég og Palli Punk eigum að geta gengið í takt. Meir að segja get ég gengið í takt við hann Ástþór Magnússon. Mér er það þvert um geð en fokkit. Ég ætla ekki að láta það eyðileggja fyrir mér að vera sammála þessum kjána.

Auðvitað er leiðinlegt þegar tappar eins og Ástþór eru eins og að "stela glæpnum" á þessari reiðibylgju, en svona tappar skjóta alltaf upp kollinum við svona aðstæður. Aðalatriðið er að þeir skipta ekki máli! Málefnið skiptir máli en ekki kjánar á borð við Ástþór og trukkavitleysingurinn.



Ég held að laugardagurinn verði sögulegur. -Ég er viss um það.

fimmtudagur, 6. nóvember 2008

VR í klónum á svindlurum.

Eftirfarandi bréf sendi lesandi Eimreiðarinnar á skrifstofu VR. Því hefur ekki ennþa verði svarað. Enda ekki skrýtið. Formaður VR Gunnar Páll Pálsson er jafnsekur og liðið sem setti landið á hausinn. Hann studdi þetta lið með ráð og dáð. Síðast en ekki síst, með peningum sjóðsfélaga VR sem treystu honum fyrir ævisparnaðinum.

Góðan daginn, sem félagi og greiðandi í lífeyrissjóðnum þætti vænt um að þið gætuð sent mér upplýsingar um fjárfestingar/hlutabréfakaup Lífeyrissjóðs VR í eftirtöldum félögum. Þá á ég við hvað var keypt og selt og á hvaða gengi og hvenær:
Exista
FL-Group
Baugur
Stoðir
DeCode
Kaupthing
Glitnir
Landsbankinn

Vanvirðing - Ranglæti

Nú skýrast línurnar í því skuggaspili sem átti sér stað rétt eftir fall Kaupþings. Þá reyndu Gunnar Páll Pálsson formaður VR í félagi við Sigurð Einarsson að klófesta hræið af Kaupþingi.

Nú er komið í ljós að formaður VR, verkalýðsfrömuðurinn sjálfur og sá sem að passa upp á peninga sjóðsfélaga VR var viðriðinn Kaupþingssukkið.

Ólíklegt er að Páll segi af sér. Topparnir gera það aldrei. -Ekki á Íslandi.

miðvikudagur, 5. nóvember 2008

Ósýnilegur þingmaður

Þingmaðurinn Kjartan Ólafsson hefur fengið sér liðsauka frá helsta plöggara landsins. Maðurinn bakvið Nylon-hópinn ætlar að reyna að poppa upp litlausasta þingmann landsins og jafnframt þann ósýnilegasta. Spurning hvort plöggari Íslands geti unnið það kraftaverk að blása lífi í ósýnilega þingmanninn.

Ósýnilegi þingmaðurinn hefur aldrei látið af sér kveða á pöllum Alþingis, né sett fram frumvörp svo vitað sé. Fáar myndir munu vera til af honum en Eimreiðin fékk sent í tölvupósti raddsýnishorn ósýnilega þingmannsins.

það er hér að finna

Þú getur troðið þessum helvítis tjakki.....

Ég þurfti að skipta yfir á vetrardekk um daginn. Ég var svo heppinn að sjá ódýran ALVÖRU tjakk til sölu í Bilia. Mér leiðast nefnilega óskaplega þessir míni-compact-tjakkar sem fylgja smábílum eins og mínum. Þetta er bara látuns-rusl sem þarf að snúa, stilla og pródúsera eftir kúnstarinnar reglum.

Vandfundin er sorglegri ömurð en að sjá fullorðna manneskju bjástra við að snúa upp látuns-tjakki í nöprum norðangaddi og slyddu. Þetta er eiginlega hámark giftuleysisins.

Ég keypti mér þessvegna almennilegan tjakk. Kostaði bara 200 skr. Hérna eru myndir af helvítis tjakkinum.

Persneskar þokkagyðjur


Ég tek alltaf almenningsvagna í vinnuna þessa dagana. Ingunn er að vinna í Mölndal og fær því bílinn. Ég vakna því alltaf klukkan 05:40 og næ strætó klukkan 06:04. Mættur í vinnuna klukkan 06:50. Gæti ekki verið betra.

Á leiðinni heim eru vagnarnir alltaf pakk fullir og það vakti athygli mína að viss menningarkimi er áberandi í sporvögnum Gautaborgar milli klukkan 17 og 18. Það eru unglinsstúlkur af persneskum meiði. Þær eru afkomendur Íranskra innflytjenda sem komu hingað til borgarinnar við byltinguna í Íran 1979. Þessar stúlkur eru margar ferlega líkar og mér finnst stundum að ég sé alltaf að hitta sömu stelpuna.

Margar hverjar eru afar glæsilegar. Nokkuð smávaxnar, stórbeinóttar, hörundið mokkabrúnt og hárið tinnusvart. Hnýtt í tagl ofarlega við höfðuð þannig að sést í grannann hálsinn. Stór augu og brún. Augnabrúnir eru skarpar og hvassar. Munnurinn lítill, tennurnar hvítar og varir þykkar. Þessar persnesku stúlkur eru mikið málaðar með dökkum augnalit og varalitaðar með fölbleiku. Oft er á höfðinu skræpótt derhúfa og taglið látið í gegnum húfubandið. Íþróttajakki, 4 númerum of stór. Spariskór, þröngar gallabuxur. -Alltaf að mála sig.

Ferlega gaman að heyra það þær tala saman á skánsku dauðans

Siðferði útrásarinnar.


Í klassískri siðfræði eru taldar til 4 höfuðdyggðir.
  1. VISKA
  2. RÉTTLÆTI
  3. HUGREKKI
  4. HÓFSEMI
Allt eru þetta dyggðir sem útrásarliðið hefur ekki til að bera. Ekki höfðu þeir nú viskuna, ekki réttlætið, ekki hugrekkið (hugsanlega fífldirfsku) og alls ekki hófsemina.

Þetta er nú meira liðið. Við dáðum þetta fólk og óttuðumst það.

-Ekki lengur.

Ég er að breytast í hnakkamellu.


Eins og lesendur Eimreiðarinnar vita sennilega þá er ég með útvarp eyrunum allan liðlangann helvítis daginn. Eina stöðin sem ég næ almennilega er R´B stöð. Það er ágætur morgunþátturinn þar og mikið stuð. Playlistinn á þessari stöð er frekar fátæklegur og ég held að það séu bara spiluð 10 lög allann daginn. Eitt af þeim er þetta hérna. No Air með Jordini Sparks og Chris Brown. (sem er víst eitthvað frægt fólk) Ég er með þetta lag á heilanum og það er eitthvað sem er að svínvirka þarna.



-Trausti vinur minn fussar nú og sveiar. Það er ég alveg viss um.

En það er gaman að uppgötva eitthvað nýtt. Ég satt best að segja hataði svona gaul aður fyrr og skildi bara ekki neitt í þessu væli. En núna skil ég vælið.

þriðjudagur, 4. nóvember 2008

Góðir Íslendingar

Vitið þið hvað er erfitt að flaka ýsu? Þessi ömurlegi fiskur er þeirrar nátturu að hann kæddur afar viðkvæmu keti sem haldið er saman af gríðarsterkri beinagrind. þetta þýðir að ef maður tekur of fast í skurðinum þá rifnar ýsan í sundur. Ef aftur á móti ef farið ef of linlega að og af nákvæmni, þá tætist ketið í sundur því beinin eru kyrfilega föst við þetta lausa kjöt. Ýsan er svo viðkvæm að ekki er unnt að roðflett í vél, heldur verður maður að beita hnífnum. Fiskurinn er þá flakaður á hefðbundin hátt en ekki skorin aflveg af. Flakið hangir við sporðinn. Siðan er flakið beinhreinsað og þar eftir roðflett. Ekki dugir að hafa of beittan hníf við roðflettinguna. Þá sker maður í sundur roðið og þá er maður í vandræðum. Heljarinnar kúnst satt best að segja.

Þetta er spurning um tilfinningu. Snöru handtökin eru best. Föst handtök og snör. Þannig rífur maður beinagarðinn úr en sker hann ekki. Það er happadrýgst.

Ég var að drepast úr bakverk í vinnunni í dag. Ég hreyfði mig eins og Frankenstein og gat ekki snúið hausnum. -Hrikalegt.

Ég vinn eins og skepna. vakna klukkan 6 og er í vinnunni til klukkan 5. Klukkutíma pása allan tíman. 15 mín fyrir hádegi og 45 mín klukkan 12. Ekkert eftir það. það er ekki laust við að maður sakni EJS ástundum.

mánudagur, 3. nóvember 2008

TILKYNNING . . . . . . . . . . . . . . .

Nú er ég á leiðinni heim til að taka þátt í byltingu.

Nú er komið nóg.

-Jessörí-bob.