þriðjudagur, 30. desember 2008
Íslendingar eru kristinn þjóð
Færslan sjálf markar ákveðin vatnaskil í orðræðu milli ríkiskirkjuprestanna og þeirra sem vilja ríkiskirjufyrirkomulagið burt. Í fyrsta skiptið kemur nefnilega fram rökstuðningur fyrir fullyrðingunni að "Íslendingar eru kristinn þjóð". Þessi rökstuðningur kemur reyndar fram í athugasemd Baldurs í fjörugum umræðum sem spunnust í kringum færslu Baldurs Kristinssonar.
Mig langar að birta hérna þennan rökstuðning og svara honum eins og málið kemur mér fyrir sjónir.
- Íslendingar lögleiddu kristni fyrir 1000 árum og hafa ekki breytt því,
- hafa þjóðkirkju,
- kross í fána,
- sálm sem þjóðsöng,
- yfir 90% skírast,
- hærra hlutfall lætur bera sig undir sáluhlið,
- kristin messa vilulega í ríkisútvarpi, morgunbænir og kvöldbænir á sama stað ,
- landinu er skipti upp í pestaköll og sóknir,
- allir þeir sem keppast eftir forsetaembætti keppast við að lofa Guð,
- yfir 90% eru skráðir í kristna söfnuði,
- fjórir af hverjum fimm kunna faðirvorið,
- varla sá staður á landinu þar sem sést ekki til þriggja kirkna.
það sem athygli vekur er að ríkiskirkjupresturinn Baldur Kristinsson tiltekur hvergi rök sem snúa að trú þegnanna en týnir saman birtingarmyndir ríkiskirkjuátrúnaðarins. Hvergi er t.d minnst á hugmyndafræðilegar ástæður fyrir því hversvegna Íslendingar séu kristinn þjóð. Baldur Kristinsson kýs að minnast ekkert á trúarlífskönnun sem gerð var árið 2004 en í henni kom fram að minnihluti þjóðarinnar var kristinn í hefðbundum skilniningi.
Hafandi ástundað nám í guðfærðideild HÍ og lokið þaðan prófi (með 1.stu einkunn) er skilgreining á kristnum manni tiltölulega einföld. Samþykki einstaklingur trúarjátninguna þá er sá hinn sami kristinn. Samþykki viðkomandi ekki trúarjátninguna er viðkomandi ekki kristinn heldur eitthvað annað.
Það má einnig umorða trúarjátninguna og segja: Trúir þú á það að til hafi verið mannguð sem framdi kraftaverk, var krossfestur og flaug upp til himna eftir dauða sinn og mun dæma fólk (þegar það deyr) í paradísarvistar eða helvítisvistar. -Já eða nei.
Trúarjátningar eru einmitt settar til þess að setja kúrsinn. Þær eru því nákvæmlega tækið til þess að kveða á um hvort einstaklingur sé kristinn eða ekki. Þessu virðast ríkiskirkjuprestar skauta viljandi framhjá. Sumum ríkiskirkjuprestum virðist meir að segja vera sama hvort einstaklingar séu kristnir eða ekki. Aðalatriði sé að viðkomandi trúi á eitthvað. Neskirkjuprestur segir meir að segja að allt hrifnæmi sé af trúarlegum toga. Ef að einhver lesi ljóð eða skáldsögu sem virkar sterkt á viðkomandi, sé sá að næra "trú" sína. Baldur hefur fundið sína hillu í umburðarlyndinu, sem er bara gott. Mér stendur samt bara eiginlega á sama. Mér finnst kjánalegt að hafa ríkisstarfsmann á ofurlaunum við að vera umburðarlyndur.
Baldur Kristinnson segir einnig í færslu sinni að:
- "Það er í tísku að tala niður til starfa presta í bloggheimum. Það gera iðulega ungir kálfar með mikið fjör og mjóa leggi en litla reynslu af lífinu"
mánudagur, 29. desember 2008
3 bestu og 3 verstu bókatitlarnir
Ég tók þátt í samkvæmisleik í Fréttablaðinu í gær. Ég var beðin um að senda inn 3 bestu og 3 verstu bókatitlana fyrir þessi jól. Þetta sendi ég. Mín niðurstaða var allt önnur en hinna vitleysinganna og mínar tillögur vöktu litla athygli. Þó var minnst á Tvítólaveisluna og Lárus Pálsson leikara. Hérna koma 3 bestu og 3 verstu bókartitlarnir að mati Eimreiðarinnar
Bestu:
Ókei bæ tvö Hugleikur Dagsson Forlagði JPV útgáfa 5 stig
Frábær titill. Að gefa út bók sem heitir Ókei Bæ er náttúrulega tær snilld. Ókei bæ tvö er aðeins meiri snilld.
Tvítólaveislan Ófeigur Sigurðarsson Nýhil 3 stig
Grípandi titill svo ekki sé meira sagt. Mig drep-langar að lesa hvað gerist í partíi þar sem allir eru tvítóla.
lEineigði kötturinn kisi og ástandið Hugleikur Dagsson Forlagið JPV útgáfa 1 stig
Hugleikur skorar aftur. Titillinn segir ansi mikið. Fáránleikinn klessir á veruleikann á 245 km hraða.
Verstu:
Lárus Pálsson Leikari Þorvaldur Kristinsson Forlagið JPV útgáfa 5 stig
Þurrasti, en sjálfsagt heiðarlegasti bókartitill fyrir þessi jól. Fer ekki milli mála um hvað þessi bók er. Það grípur um sig ákveðin tómleiki við að sjá þennan titil. Sandur er sandur og möl er möl og þessi bók fjallar um Lárus Pálsson leikra. -Það er einhver sorg í þessu.
Hvar er systir mín? Eyrún Ýr Tryggvadóttir Salka 3 stig
Það er ekkert merkilegt hvar systur lesanda eru niðurkomnar. Þær geta verði hér og þar. Mín er t.d í Keflavík. Óáhugaverður titill svo ekki sé tekið dýpra í árinni.
það var gott að deyja. -Bók um fyrri líf Kleópatra Kristbjörg Skjaldborg ehf 1 stig
Titillinn gefur í skyn að einhver hafi dáið og sagt frá því. Það er eins og allir vita bara kjaftæði. Það eina sem lifnar aftur við eru tískubylgjur um eitthvað yfirnáttúrulegt. Ég spái því að kristallar komist í tisku á næsta ári og þá verður gefin út bókin "Kristallar gegn krabbameini". -Sveiattan!
sunnudagur, 28. desember 2008
Siv , Lúðvík og traustið
Þessi póstur hristi heldur betur upp í stjórnkerfinu því að þingmenn sáu ástæðu til að svara honum ýmist á þingpalli eða annarsstaðar. Siv Friðleifsdóttir sagði beint út að hún hefði aldrei fengið neitt lán að upphæð 75 míljónir.
Undir eðlilegum kringumstæðum þætti þetta nóg. Undir eðlilegum kringumstæðum væri nóg fyrir ærlegan þingmann að segja svona.
Það eru hinsvegar ekki eðlilegar kringumstæður í dag. Alþingismenn njóta einskis trausts. Yfirlýsing Sivjar breytir engu um hvort áburðurinn sé réttur eða rangur. Siv, eins og aðrir þingmenn nýtur ekki trausts. það er ekki nóg fyrir hana að segja; "It wasn't me".
Siv verður að sýna fram á það á einhvern hátt að 75 miljónir hafi ekki verið afskrifaðar af hennar nafni. Sama má segja um Lúðvík Bergvinsson. Hans hvítþvottur var klénn í meira lagi og loðinn eins og mottan á Tom Selleck. Svör hans eru ekki nógu skýr og ljóst að meira liggur að baki en orð hans gefa í skyn.
Sama sagan með Lúlla og Siv. Traustið er farið. Allt er véfengt nema til komi skotheldar afsakanir.
Þegar traustið er farið er mikið farið og lítið eftir. Þetta sannast vel þessa síðustu daga ársins.
laugardagur, 27. desember 2008
Pál Magnússon sem formann Framsóknar ! ! !
Hafi Framsóknarflokkurinn verið hækja[Sjálfstæðisflokksins], þá er Samfylkingin skækja.Það sem vekur athygli við þessa málefnalegu umræðu skósveins Finns Ingólfssonar þá felst óneitanlega ákveðin viðurkenning á hækjukenningunni sem Páll minnist á.
Ég vona svo sannarlega að Páll vinni formannslaginn í Framsókn. Það væri reyndar vont fyrir Framsóknarflokkinn en gott fyrir íslensk stjórmál yfir höfðuð. Með sigri Páls væri bófahegðun framsóknarflokksins algerlega skýr og án vífilengja. Páll var aðstoðarmaður Finns Ingólfssonar meðan sá sölsaði undir sig ríkiseigur og líka aðstoðarmaður Valgerðar Sverrisdóttur meðan sú lagði grunninn að einkavinavæðingu bankanna (og efnahagshruni landsins). Páll hefur því góða reynslu á því að vinna með óheiðarlegum stjórmálamönnum og kann betur en flestir þá list að stela eigum ríkisins.
Ég vona sannarlega að hann vinni. Eimreiðin styður hér með Pál Magnússon sem formann Framsóknarflokksins.
Hver laug því..
Hryllingur. Sannur hryllingur.
miðvikudagur, 24. desember 2008
....G L E Ð I L E G......J Ó L ..........
Hérna er mynd af henni Telmu Dögg, hundinum mínum fyrrverandi. Hún er hálfgerður Ólíver Twist hundanna þvi eftir að hafa dvalið í góðu yfirlæti hjá fjölskyldunni á Ásvallagötu, lenti hún í klónum á hálfgerðum sirkússtjóra á Selfossi sem vanrækti hana. Hún býr nú við ást og alúð í Vestmannaeyjum. Núverandi eigendur sendu okkur þessa mynd.
Telma Dögg er besta og fallegasta sál sem ég hef kynnst. Ég hugsa til hennar á hverjum degi.
þriðjudagur, 23. desember 2008
Maður ársins valinn
Maður ársins að mati Eimreiðarinnar er Vilhjálmur Bjarnason framkvæmdastjóri félags fjárfesta.
Aldrei ! -Ekki undir neinum kringumstæðum
Við Íslendingar erum í svipuaðri stöðu. Við stöndum frammi fyrir ónýtu stjórnkerfi, ótnýtu þingi, spilltum þingmönnum og ónýtu lýðræði. Innviðir stjórnkerfisins alls eru ormétnir inn að kviku. Viðnám stjórnvalda felst í því að sniðganga umbótakröfur og halda maskínuni/flokkakerfinu gangandi.
Við getum breytt þessu. Dæmin sanna að mótmæli virka (KPMG, Tryggvi Jónsson, Gísli Marteinn). Þau taka bara tíma. Massíf og reglubundin mótmæli hafa áhrif. Við getum krafist nýrra kosninga ef við bara ákveðum okkur. Um leið og við erum búin að ákveða okkur, erum við óstöðvandi. Þetta sagði Desmond Tutu, með unglingsglampa í áttræðum augunum. Ég fékk gæsahúð um allan líkamann og varð klökkur.
Það þarf að kjósa sem fyrst til þess að almenningur fái traust til stjórmálaflokkanna og geti umbunað eða refsað eftir reglum lýðræðisins.
Þannig og aðeins þannig fær þjóðin valdið í hendurnar sem hún hefur lánað núverandi stjórnvöldum tímabundið. Ljóst er að ef Samfylkining tekur sig ekki saman í andlitinu og slítur stjórnarsamstarfi við Sjálfstæðisflokk, mun hún fara sömu leið og Sjálfstæðisflokkur og Framsókn. Eins og ég hef bent á í þessu bloggi þarf ekki nema einn þingmann Samfylkingar til að fá þetta í gegn. Einn þingmann sem stekkur frá borði af þessu feigðarfleyi sem núverandi ríkisstjórn er. Einn þingmann sem tekur þátt í mótmælunum. Með því móti myndi sá hinn sami öðlast fylgi og njóta trausts! Ótrúlegir hlutir gætu hafist með einum þingmanni.
Betra samfélag, óspillt samfélag, gott samfélag er við sjóndeildarhringinn. Við meigum ekki missa sjónar af þessar draumsýn. Ef við gerum það erum við ekki manneskjur, heldur eitthvað annað. Það er nefnilega svo mannlegt að vilja réttlæti. Hinsvegar er líka mannlegt að sætta sig við órétt.
Það á aldrei að sætta sig við órétt. -Ekki undir nokkrum kringumstæðum.
Sauðsháttur
Þetta er afar alkahólískt. Allir að vona að pabbinn hætti að drekka en enginn þorir að segja það við hann og setja honum stólinn fyrir dyrnar. Nú heldur Gunnar Páll örugglega að hann "njóti trausts" og getur haldið áfram á ofurlaununum og afskrifað miljarðaskuldir banka-gamblaranna.
Það þarf bara einn til að segja stopp. Bara einn til að breyta öllu. Því miður hefur sannast að félagsmenn VR eru sauðir sem ganga sjálfviljugir til slátrunnar. Lítandi hvor á annan og hugsa, "Gerðist þetta virkilega"? Nú verður að spíta í lófana og undirbúa framboð gegn sitjandi formanni. það gengur ekki að hafa fjárhættuspilara sem formann VR. Fjárhættuspilara sem afskrifar skuldir félaga sinna þegar allt er komið í óefni.
mánudagur, 22. desember 2008
Eyddi færslu
Bara ein manneskja
Athygli vekur að vextir eru núll prósent í Bandaríkunum. Næsta skref er er verðhjöðnun. það mun vera ástand sem er öfug verðbólga. Allt lækkar. Líka kaupið.
Augljóst er að heimurinn er á hraðsiglingu inn í heimskreppu. Björgunaraðgerðapakkinn í Bandaríkjunujm mun kosta eina triljón bandaríkjadollara. Þúsund miljarða... Þessir peningar eru ekki til og verða því prentaðir með tilheyrandi gengishruni dollarans. Stærsta bóla efnahagssögunnar er að springa akkúrat núna. Bóla sem hefur verið að þenjast út í 10 ár.
Útlitið er svart.
Á Íslandi er það verra en annarsstaðar í Evrópu því við sitjum uppi með ónýtt þing, spillta stjórnsýslu og andlausa stjórmálamenn. Duglausa aula sem hugsa bara um eigin kjör.
Samt er svo frábært svið að skapast fyrir stórmenni á sviði stjórmálanna í dag. það þarf ekki nema EINN þingmann sem er í lagi. EINN þingmann sem segir hingað og ekki lengra. EINN þigmann með siðferðiskompásinn í lagi.
Ef bara EIN svona manneskja kemur fram á sjónarsviðið og virkjar almenning til dáða, þá getum við unnið okkur út úr þessu bein í baki en ekki eins og barðir þrælar.
Svona liggur þá í því....

Ég er ekki sérlega klár maður. Það er óvenju langur í mér fattarinn. Ég fatta samt ýmislegt þótt það taki langan tíma. Ég fattaði í gær svolítið merkilega staðreynd.
Ég hef verið duglegur að skrifa um flokksvæðingu samfélagsins í opinberri stjórnsýslu. Það er þegar flokkskírteini eru tekin fram yfir prófskírteini. Allir kannst við svoleiðis dæmi og þau eru regla frekar en undantekninig. Svo mjög kveður að þessari flokk(manna)væðingu að það kemur í fréttum ef ráðherra víkur undan þessari reglu. Það er s.s fréttnæmt ef flokksmaður fær ekki starf hjá hinu opinbera og hæfileikar þess sem ráðin var vegur þyngra en flokkshollustan.
Það sem ég fattaði var að það er praktísk nauðsyn fyrir stjórmálamenn að ráða vini sína, eða fólki sem þeir geta "treyst". Það er nefnilega svo að á fjögurra ára fresti eru prófkjör. Prófkjör eru gríðarlega dýr, jafnvel á mælikvarða ofurlaunaþega í röðum ráðherra. Hvað er þá betra en að fá greiðann endurgreiddan með ríkulegu framlagi hjá þeim sem maður er búin að redda vinnu?
Þetta er ekki flókið. Ráðherra ræður uþb 20 mans á einu kjörtímabili (5 á ári) í góðar stöður og biður þá svo um fjárstuðing þegar hin dýru prófkjör nálgast. 20 manns eiga auðvelt með að skaffa 10 - 20 miljónir í kosningabaráttuna og málinu er reddað. Þar með er næsta kjörtímab tryggt og hægt að styrkja ennfrekar stuðingsmannanetið með pólitískum ráðningum.
-Þetta fattaði ég í gær.
Framsóknarflokkurinn í skítamálum.
Þessir tveir drukku mikið saman og þóttust hafa himin höndum tekið þegar þeim áskotnaðist leiguíbúð fyrir lítið fé. Þeir hófu þá einhvern skrautlegasta búskap sem mér er kunnugt um að hafi verið stundaður hér á landi. Þeir drukku upp á hvern dag og sambýlingarnir nutu lífsins með bjór og rauðvínsþambi. Eftir u.þ.b 5 mánaða fyllerí var svo komið að íbúðin var orðin frekar ógeðsleg enda voru mikilvægari verkefni fyrir listamennina og fóstbræðurna en að taka til eftir sig. Þeir sem hafa séð inn í rónabæli vita hvað ég er að tala um. Svo gerast ákveðin vatnaskil í búskap þeirra fóstbræðra. Klósettið stíflast. Nú voru góð ráð dýr enda kunnu listamennirnir ekki á drullusokk þótt þeir væru það sjálfir. þeir migu þess í stað bara í baðið. Þegar þeir þurftu svo að kúka þá kúkuðuðu þeir bara líka í baðið. Leikar fóru svo að fóstbræðurnir voru búnir að kúa svo mikið í baðið og vaskinn og á gólfið að þeir lokuðu hurðinni á klósettinu og fóru ekki þangað aftur inn. Þeir notuðuð því bara annað svefniherbergið sem klósett. Kúkuðu bara á gólfið út í horni og migu inn í skáp. En Adam var ekki lengi í paradís. Þetta reyndist ekki góð lausn því að svefnherbergið fylltist líka af skít alveg eins og salernið. Nú eins og listamönnum sæmir þá tóku þessir tveir sig til og settust á rökstóla. Hvað skyldi gera í þessari stöðu. Niðurstaðan var ekki óvænt. Þeir fluttu dýnurnar sínar fram á gang og byrjuðu að skíta i eina herberginu sem var eftir. Eftir mánuð var það herbergi líka fullt af hlandi og skít. Nú var það slæmt. Ekkert klósett var lengur í íbúðinni. Listaskáldin góðu voru í vanda. Vanda sem þeir leystu með því að skila eigandanum lyklunum og flytja annað.
Þeir skitu sig út úr íbuðinni
Framsóknarflokkurinn er í áþekkum vanda og listaskáldin góðu. Þeir eru búinir að skíta sig út úr stjórmálum þökk sé náungum eins og Finni Ingólfssyni, Ólafi í Samskipum og Gunnlaugi M. Sigmundssyni. Valgerður Sverrisdóttir formaður Framsóknarflokksins segir sjálf að henni sé ekki stætt á frekari setu sem formaður flokksins vegna þessara skítamála sem hún sjálf var arkítektin af. Eftir stendur ónýtur flokkur, fullur af skitakarakterum.
Merkilegir hlutir gætu þó gerst. Ef að almennilegt fólk tekur sig til og hreinsar út skítinn eftir kúkalabbana, þá getur ýmislegt gerst. Nú eru teikn á lofti að slíkt gæti gerst þótt fulltrúar kúkalabbanna séu meðal þeirra sem keppast um formannsstólinn í Framsókn. Ber þar helst að nefna Pál Magnússon sem var aðstoðarmaður Finns Ingólfssonar meðan sá sölsaði undir sig ríkiseigur. Hann var einnig aðstoðarmaður Valgerðar Sverrisdóttur þegar hún lagði línurnar fyrir efnahagshrunið.
Nú verður spennandi að sjá hver verður ofan á í þeim leðjuslag en persónulega þá finnst mér að flokkmenn eigi barasta að leggja Framsóknarflokkin niður. Það er of mikil skítalykt af þessum flokki.
Það er ekki hægt.
Ég bara get það ekki.
Staðan er svo hræðileg að mér fallast hendur og úr mér tæmist allt loft, hjartað missir slag og heilinn á mér er eins og vafinn inn í ullarvoð. Ástæðurnar eru þessar helstar..
- Skuldir Íslands eru yfirþyrmandi. Skuldirnar eru komnar til vegna 30 til 40 manna hóps sem blindaðist í græðgistryllingi.
- Stjórnkerfi landsins er ónýtt. Alþingi er valdalaust. Ráðherraræði er þess í stað við lýði. Stjórmálaflokkarnir eru meira og minna ónýtir. Flestir stjórmálaflokkar notast við ranglátar prófkjörsreglur sem tryggir þeim mestan árangur sem mestum peningum eyða í auglýsingar. Þetta tryggir óeðlileg afskipti fyrirtækja að stjórmálamönnum. Stjórnkerfið er einnig afar rotið þegar kemur að stöðuveitingum en alltaf er valið eftir flokkskýrteinum frekar en prófskýrteinum. Þetta tryggir að "já-fólk" er í lykilstöðum.
- Fjölmiðlar eru ónýtir. Allir fjölmiðar eru á einn eða annan hátt tengdir auðmönnum eða stjórmálaflokkum. Fréttir eru ritskoðaðar og það sem er kanski algengara er að fréttamenn beita sjálfa sig ritskoðun. Fjalla ekki um "óþæglileg" mál sem kæmi hugsanlega við kauinn á eigendum fjölmiðilsins sem þeir vinna hja.
Það þarf að kjósa sem fyrst til þess að almenningur fái traust til stjórmálaflokkanna og geti umbunað eða refsað eftir reglum lýðræðisins.
Toblerón og trúverðugleiki
Nei!
Svíum fannst þetta ekki ómerkilegt. Þeir litu svo á að það væru meiri hagsmunir að ráðherra væri algerlega frí af áskökunum um að nota fé almennings til einkanota heldur en að það væri vafi á því að svona lagað viðgengist. Takið eftir. Það eru meiri hagsmunir að hafa óflekaða ráðherra en að vafi leiki á um heiðarleika þeirra.
Hinn kristaltæri veruleiki er sá að sænskir skattgreiðendur eiga ekki að borga toblerón fyrir ráðherra. Ráðherra getur bara keypt sér toblerón fyrir sína eigin peninga. Móna sagði af sér vegna þessa máls, en átti afturkvæmt og er sterkari nú en fyrr. Heiðarleiki borgar sig alltaf. Hann er reyndar ekki að finna meðal íslenskra stjórmálamanna og það er vont.
föstudagur, 19. desember 2008
fimmtudagur, 18. desember 2008
Af hverju er fólk svona reitt?
-Þessvegna
Endalaust yfirklór og afsakanir heyrast frá ráðamönnum og lykilfólki í samfélaginu. Innihaldslaust og dáleiðandi þvaður um það sem ekki skiptir máli eru orðið óþolandi. Stórmálamenn eru ítrekað staðnir að lygum og ítrekað krafsa yfir óheiðarleika sinn með vafasömum málflutningi.
-Það axlar enginn ábyrgð.
Steinin tók svo úr þegar ritstjóri DV beytti fyrir sig sömu trixum og þeir sem hann á að vera að hamra á. Það var sem olía á eldinn. það má segja að þá hafi sá höggið sem hlífa skyldi. Því miður fyrir DV þá ætlar Reynir Traustason ekki að segja af sér. Héðan í frá verða allar fréttir sem koma frá DV tortryggðar.
Jón Ólafsson athafnamaður
Hann er sennilega sá eini sem þó hefur hreinar hendur þegar kemur að bankahruninu.
Sérkennilegt ástarsamband
-Þau voru of góð fyrir hvort annað.
Mótmæli virka! - - - Mótmæli virka! : )
Fleiri sigrar hafa unnist gegn spillinunni. KPMG neyddist til að hætta rannsókn á KPMG. Fleiri sigrar munu koma í kjölfarið enda er almenningur á einu máli um að ekki sé boðlegt að brennuvargar séu í slökkviliðinu. Nú er bara spurning um hvort Tryggvi hafi eytt gögnum þessar 10 vikur sem hann hafði hjá Nýja Landsbankanum?
-Það má telja sennilegt.
Mótmælendur hafa verið frábærir og dugnaður þeirra og hugrekki ætti að vera okkur hinum til eftirbreytni. Þetta er fólk sem segir hingað og ekki lengra. Ólíkt okkur hinum, þá gerir það eitthvað í málinu.
Næstu skref eru óljós því af nógu er að taka.
Snjóbolti eða kúbein.
Tek ég ekki eftir að strákur á aldur við mig (þá var ég 22 árs) stendur upp og spyr fólkið sem varð fyrir barðinu á þessum leiðinlega manni hvort það ætli virkilega að láta þennan gaur komast upp með þetta? þau mölduðu í móinn og eyddu málinu. Þegar sporvagnin stoppaði næst tók strákurinn undir sig tilhlaup og sparkaði fulla fasistanum út úr sporvagninum. Meðan sá dustaði af sér rykið á gangstéttinni héldu allir farþegarnir í vagninum hurðunum lokuðum svo að fulli bjórþambarinn kæmist ekki inn. Þegar sporvagninn fór svo aftur af stað settist fólk í sín sæti.
Þetta fannst mér flott. Flott hjá unga manninum að segja stopp. Hingað og ekki lengra! -Glæsilegt móment þegar allir farþegarnir hindruðu fulla fasistanum inngöngu. Ógleymanlegt.
Þetta vantar í Íslendinga. Því miður.
Svona á þetta að vera. Við eigum ekki að sætta okkur við ósættanlegar aðstæður. VIð eigum að gera eitthvað. Annars erum við bara sauðir. Jarmandi sauðir á leiðinni í sláturhúsið hans Jóns Ásgeirs. Ég skil svo vel gremjuna í Mengellu þegar einhver sauður var að stæra sig af því að hafa kastað sjóbolta í hausinn á Jóni Ásgeiri. Snjóbolta gott fólk.
-Sjóbolta....
Hefði verið dugur í þessum strák þá hefði hann kastað kúbeini í hausinn á Jóni Ásgeiri. Kveikt svo í Range-inum hans og keyrt hann logandi inn í Stjórarráðið.
það er hin eðlilega breytni. -Það er hið rétta.
miðvikudagur, 17. desember 2008
Mengella er ljósið
-Þetta er komið.
Ef ég væri ekki hugleysinginn sem ég er, þá skrifaði ég eins og Mengella.
Svarið við gátunni

Þetta er hún Lína. Hún vinnur sem læknaritar í dag og tekur þátt í verkefnum hjá leikhópum
Svona lítur hún út í dag.
..með lepp fyrir auganu

Ég verð að játa á mig veikleika. Mér hafa alltaf fundist menn með lepp ótrúlega flottir. Þegar ég var krakki var Moshe Dayan alltaf í fréttum. Þá var hann utanríkismálaráðherra Ísraels. Dayan var aðalmaðurinn í báðum stríðunum við nágranna sína 1967 og 1973. Hann var með lepp sem huldi bera augnatóftina. Hann fékk skot í augað árið 1941 í sérsveitarverkefni í Líbanon.
Ætli það sé ekki tenginin við sjóræninga sem heillar mig svona við leppinn. Svo náttúrulega tenginin við Óðinn. Hann var með lepp að mér skilst.
Tveir vinir mínir eru ein-eigðir. Eru s.s með 2 augu samtals. Þeir tjá mér að kvennhylli þeirra hafi aukist stórum eftir að augað fór. Konur eru s.s vitlausar í ein-eygða menn. Þessir vinir mínir eru ekki með lepp en ég hvet þá til að redda sér slíkum aukahlut.
-Eins og Moshe Dayan
Annars er ég ekki einn um þennan lepp-veikleika. Ég sá að persónan Stauffenberg greifi sem Tom Cruise leikur er með lepp. Stauffenberg greifi var ekkert með lepp að mér skilst. Hollýwoodið bætti leppnum við til þess að auka áhrifinn.

Fæðingarhríðir
Við erum að horfa upp á fæðingarhríðir nýrra tíma. Tíma sem verða vonandi betri en þeir sem liðnir eru hjá. Umhverfisvernd er lykilatrðið þessa nýju tíma enda er umhverfisvernd ósamræmanleg lausbeisluðum kapítalisma. Það er alltaf ódýrara að sóa þrátt fyrir að allir vita að sóun er slæm.
Eftir 5 - 10 ár verður allt breytt. Það verður búið að framleiða síðasta Hummerjeppann. Toyota ætlar t.d að vera með tvinnvélar í öllum sínum bifreiðum frá árinu 2010. Hreinræktaður rafmagnsbíll verður settur á markað á sama tíma. (Prius, plug in hybrid). Ímyndið ykkur sparnaðinn við að þurfa ekki að kaupa bensín.
Sama á við um dagblöð. Ég held að þau séu risaeðlur sem ekki munu lifa af þessar hríðir. Framtíð fjölmiðla er ekki á pappír. Vönduð tímarit gætu stutt við netmiðla.
Verðmætamat mun breytast. Við munum passa okkur á efnahagsbólum og ég er viss um að hæft fólk verði ráðið í lykilstöður í opinberri þjónustu. Ekki afdankaðir og spilltir stjórmálamenn. Lýðræði verður virkara og opnara. Þjóðaratkvæðagreiðslur verða um stór mál.
Vonandi rætist úr þessu samfélagi sem er að fæðast.
þriðjudagur, 16. desember 2008
Þessi póstur er að sirkúlera um netið.
Landsbankamaðurinn sem var hnepptur í varðhald fyrir 100 miljóna
fjárdráttinn sé farinn að mala á fullu.
Davíð Oddson hefur þessi sönnunargögn, þetta er ein af leynibombum hans enhann er með gögnin um þetta mál og líka mál á fleiri þingmenn. Þess vegna mun hann fagna utanaðkomandi rannsókn.
Upplýsingar um braskið hans Lúðvíks sem á Fasteign ehf, Miðklett ehf og Eykt ehf - sem á nánast aðra hverja byggingu í Borgartúninu,
koma úr átt Davíðs, sem gerði slíkt hið sama við Þorgerði Katrínu á sínum
tíma í tengslum við Kaupþing í nóvember sl.
Lúðvík er ekki sá eini sem fékk sk. "mútu lán" hjá L.Í, lán með helmings
lægri vöxtum en gengur og gerist.
-Sif Friðleifs fékk líka 75 milljónir líka á vildarkjörum til að kaupa
hlutabréf í Decode - sem er líka verið að afskrifa
- Þorgils Óttar fékk Keflavíkurflugvöll á 11 miljarða en ásett verð
vallarins eru 50 miljarða á vildarkjörum frá L.Í en hann hefur aldrei þurft
að borga krónu af því og það er verið að afskrifa það líka.
Ég hef fengið þessar upplýsingar staðfestar og sannaðar en málið er að um
80 - 90% þingmanna eru innblandaðir inn í viðskipti af þessu tagi á einn eða annan hátt. Sigurjón Ólafsson er að vinna í þessum afskriftum á vegum Landsbankanum í Apóteksturninum í Austurstrætí og þá vinnu er hann að vinna augljóslega í felum með tætarana í fullum gangi.
Og svona í lokin er Björgvin G. með myntkörfulán upp á einhverja tugi
milljóna, borgar á aðra miljón af því á mánuði og mér skilst að KPMG hafi
verið að vinna að afskriftum fyrir hann þegar þeir voru stöðvaðir í
fyrradag, eitthvað hefur þó Sigurður G. lögfræðingur Glitnis og mágur
Björgvins fengið þegar afskrifað nú þegar.
Hef fengið það staðfest að uppýsingar af þessum toga hefur Davíð Oddson á
nánast allan þingheim og er því sallarólegur. þori þeir ekki að hrófla við honum og láti hann því frekar valta yfir sig á meðan þeir fá að láta tætarana ganga
Kreppubrandari.
- - - - Maður borgar honum fyrir pizzuna.
Græðum á daginn og grillum á kvöldin
Nú er fólk hinsvegar búið að missa vinnuna og ekki til peningar fyrir keti á grillið.
Komandi vikur munu leiða í ljós hvort þegnar landsins séu aumingjar eða fólk sem stendur upprétt.
Til áréttingar
-Enginn hefur verið látin axla ábyrgð.
-Enginn hefur verið ákærður
-Yfirhylming er hafin.
-Rán á eigum ríkisins stendur nú yfir.
Skókast.
Með skókasti felst ákveðin samstaða með Írak. Við Íslendingar brugðumst þessari hrjáðu þjóð með að styðja innrásina inn í landið. Fórum á lista hinna viljugu.
Það má aldrei gerast aftur.
Við þurfum hetjur.
Þetta þarf að gerast á Íslandi.
Almenningur hefur tekið við sér. Blaðamenn eru byrjaðir að taka við sér. Nú þarf viðskiptalífið, stjórnkerfið, verkalýðshreyfingin og stjórnmálamenn að fylgja ákalli tímans. Besta leiðin til þess að flýta þessari þróun er að efna til kosninga sem fyrst.
Þá og fyrst þá, getur viðsnúningurinn hafist.
KPMG og Arthur Andersen.
Mér var hugsað um þátt KPMG í svínaríinu í kringum FL-Group í þessu samhengi. KPMG löggilti öll viðskipti FL-Group athugasemdalaust. Allt ruglið í kringum Sterling flugfélagið sem selt var á pappírunum fyrir miljarðatugi, viðskipti sem einungis voru gerð til þess að auka eigið fé FL-Group. Þetta aukna "eigið fé" jók síðan veðrými félagsins. Það var hægt að slá meiri lán. Það sætir furðu að KPMG hafi sett stafnina sína á þessi viðskipti.
Það kæmi mér ekki á óvart ef KPMG færi sömu leið og Arthur Andersen.
mánudagur, 15. desember 2008
Hættum þessu rugli og kjósum.
Bófaflokkurinn myndi sennilega þurrkast út og það er vel. VG og Frjálslyndir myndu svo slást um 40% fylgisins.
Nú er sögulegt tækifæri. Við ættum að nýta það til fullnustu.
Kópavogsbúi sem kveður af. : )
Besta viðskiptablaðið á Íslandi er Frjáls Verslun. Blaðið er nauðsynlegt hverjum þeim sem vill fylgjast með. Greinarnar eru oftar en ekki ferlega áhugaverðar og upplýsandi. Eins og gengur þá verða stundum pínulítil mistök og sum hver svolítið sniðug. Ég rak augunn í þennan texta í nýjasta eintakinu af Frjálsri Verslun. En þar er áhugaverð grein um Dr. Björn Lárus Örvar sem er framkvæmdastjóri ORF LíftækniBlogggáttin
Blogggáttin mikilvægasti miðillinn á þessum örlagatímum.
-Þannig er það bara.
Bófaflokkurinn Framsókn
Formaður björgunarsveitarinnar sem á að sjá um Glitni er dæmdur Framsóknarsvindlari.
Framsóknarflokkurinn er alveg sér á parti hvað varðar gegnsæi í svindlinu því hann er svo lítill en með mikil áhrif innan kerfisins. Framsóknarflokkurinn er ekki stjórnmálaflokkur. Hann er bófaflokkur. Nokkur nöfn sem skýra sig sjálf
-Finnur Ingólfsson
-Ólafur í Samskipum
-Árni Tómasson
-Valgerður Sverrisdóttir
-Óskar Bergsson
-Jónína Bjartmars
Bankaleynd
Árni Tómasson formaður skilaefndar Glitnis var reyndar ekki að láta bankaleyndina þvælast fyrir sér þegar hann tók gögn úr Búnaðarbankanum (sem hann stýrði fyrir Framsóknarflokkinn) og afhenti samkeppnisaðila téðs fyrirtækis...!!
Árni Tómasson var dæmdur fyrir þetta fúsk af FME. Nú stýrir hann skilanefnd Glitnis.
-Er þetta ekki dæmigert?
Við erum ennþá að súpa seyðið af flokksvæðingu samfélagsins þar sem flokksskírteini eru tekin fram fyrir prófskírteini. Brennnuvargarnir eru að stýra uppbyggingunni. Er virkilega hörgull á heiðarlegu fólki? Ég held ekki. Skúrkarnir eru bara að ráðskast með allt heiðarlega fólkið, þeir halda því fjarri áhrifastöðum. Skúrkarnir geta ekki hugsað sér almennilegt samfélag.
-Þetta er óþolandi ástand
sunnudagur, 14. desember 2008
Sóley ver Þorleif.
Hún segir m.a:
- Ég er samt fullkomlega sannfærð um að Þorleifur hafi, þrátt fyrir hræðileg mistök, haft gott eitt í hyggju
Það er svo skrýtið að það þurfu að segja þetta ítrekað við stjórmálamenn. Endalaust þarf að útskýra eðlilegan gang hlutanna fyrir stjórmálamönnum. Allstaðar annarsstaðar þyrfti opinber starfsmaður þurft að segja af sér fyrir svona fúsk. þannig er það nú bara.
Nú er meir að segja ótrúlegt tækifæri fyrir Þorleif að gefa okkur þegnunum von um að einhver geti axlað ábyrgð. Með afsögn er ekki þar með sagt að Þorleifur þurfi að hætta afskiptum af stjórmálum. Hann kemur bara sterkari inn fyrir vikið og setur ómetanlegt fordæmi fyrir aðra stjórmálamenn.
Allir þurfa að axla ábyrgð. Það felst ábyrgð í öllum störfum. Öllum störfum!
-Líka stjórmálum.
-o-o-o-o-
P.s: Ég pósta þessu hérna því að það er lokað fyrir athugsemdir hjá Sóleyju.
Magnús Ármann
Er verið að rannsaka þessi dularfullu viðskipti hans við Landsbankann? Af hverju er þjóðin ekki upplýst um þessi mál?
laugardagur, 13. desember 2008
Ingibjörg Sólrún er frábær.
Ég er ánægður með formanninn.
Nú held ég að eitthvað fari að gerast. Það er löngu tímabært að einhver verði látnir sæta ábyrgð á hruninu. Seðlabankastjóri og FME til að byrja með.
-Síðan á að fara í viðræður við ESB eða kjósa. þetta er góð stefna.
Hið eitraða Evrópusamband.
Ekki hef ég a.m.k áhuga á því að bragða mannakjöt. Það er skylda í ríkum ESB ásamt brottkasti fiskafla. En til að bíta hausinn af skömminni eru þeim fiskum sem er sleppt aftur í hafið, píndir á grimmilegan hátt um borð, áður en þeim er sleppt.
Kynjamisrétti er þar afar útbreytt og kynbundi ofbeldi er landlægt. Ástæðan er sú að kynbundið ofbeldi er hluti af reglugerðum ESB. Það er hvatt til ofbeldis og viðurlög gegn þeim sem ekki taka þátt í því. ESB eru líka drápsóðir og í pípunum er að setja á stofn s.k Einzatsgrúppur sem drepa fólk.
ESB eru mestu mengarar í heiminum og hafa á stefnuskrá sinni að kæfa jörðina í eiturgufum.
Þessi frétt hérna er bara lýgi og áróður.
föstudagur, 12. desember 2008
Samhengi hlutanna?
-Er það mögulegt?
ÉG SAMDI LJÓÐ !!
Það er einhvervegin svona og heitir "Trauðla..". Athugið að orði trauðla sem kemur oft fyrir í ljóðinu mínu á að lesast afar þunglyndislega. Eins og úr gömlum neikvæðum kalli. Þetta er einskonar samtal milli tveggja þar sem spyrjandinn fær alltaf sama (ömurlega) svarið. Ég þakka Eiríki fyrir innblásturinn.
Mögulega?
-Trauðla..
Hugsanlega?
-Trauðla..
Tiltækt?
-Trauðla..
Kannski?
-Trauðla..
Smá séns?
-Trauðla..
Trauðla?
-Já. Trauðla.
Grafarræða nýfrjálshyggjunar eftir Greenspan
- The truth is most of the individual mistakes boil down to just one: a belief that markets are self-adjusting and that the role of government should be minimal. Looking back at that belief during hearings this fall on Capitol Hill, Alan Greenspan said out loud, “I have found a flaw.” Congressman Henry Waxman pushed him, responding, “In other words, you found that your view of the world, your ideology, was not right; it was not working.” “Absolutely, precisely,” Greenspan said. The embrace by America—and much of the rest of the world—of this flawed economic philosophy made it inevitable that we would eventually arrive at the place we are today.
-Ég hef fundið vitleysu í peningastefnunni segir Greenspan.
Aðspurður hver vitleysan var svarar hann aftur
-Hún virkar ekki
Þetta er grafarræða nýfrjálshyggjunnar. Stutt, beint að efninu og kristaltær
Óþolandi misskilningur
- DV skammast í Agli Helga: Bloggarar skamma DV: DV segir síðan "Má ekki gagnrýna Egil Helgason? Þarna er ekki verið að spyrja um hvort megi gagnrýna Egil. Heldur að gagnrýnin sé hugsanlega ómálefnaleg. Sumir stökkva alltaf í bann-gírinn. Dettur fólki virkilega í hug að einhver vilji banna gagnrýni?
Annað dæmi:
- Ráðherrar voru spurðir um hvernig þeim litist á mótmælin sem voru fyrir framan Ráðherrabústaðin. Allir svörurðu á sama lund. "Það er þeirra réttur að mótmæla". Það var aldrei verið að spyrja út í hvort mótmælendur hefðu réttinn til þess að mótmæla! Er sá réttur eitthvað í óvissu eða hvað? Duglausir fréttamenn létu sér þetta svar nægja. Spurningin var: Hvernig líst þér á mótmælin?
Annað dæmi:
- Oft þegar ríkiskirkjuprestar eru spurðir út í gagnrýni Vantrúar og Siðmenntar á ríkiskirkjuapparatið, þá hefst svarið oft og tíðum á þessum orðum: "Vantrú og Siðmennt hafa rétt á þessum skoðunum".
Svona retórík er alveg sér íslensk. Óþolandi og vitlaus. Spurningu er svarað út í hött og blaðamenn fatta það ekki. Þessi orðræða hefur staðið í veg fyrir almennilegri þjóðmálaumræðu svo lengi sem ég man. Einu sinni sungu Sjálfstæðismenn alltaf sama sönginn. "Má Davíð ekki hafa skoðun?", eftir að sá hafði sagt eitthvað sem stuðaði fólk. Spurningin var aldrei hvort Davíð mætti hafa skoðun.
-Fattiði þetta?
ESB jeppinn. (með skýringarmynd)
- Að skamma ESB-andstæðing fyrir þröngsýni þegar hann vill ekki fara í aðildarviðræður er álíka og að skamma mann sem ekki er með bílpróf fyrir að vilja ekki fara inn á bílasölu að prútta um kaupverð á jeppa, "bara til að sjá hverju hann nær fram".
- Það hvernig semjast myndi um þessi tilteknu tæknilegu atriði myndi auðvitað breyta miklu um afstöðu mjög margra Íslendinga með eða á móti. Þ.e. þeirra sem eru beggja blands í málinu. Fyrir hina, sem eru ósammála grunnforsendunni, skipta tæknilegar útfærslur hins vegar engu máli.
- Þess vegna er samlíkingin við jeppakaupin góð og gild. Það gæti verið ómaksins virði fyrir mann sem langar í bíl en á lítinn pening að prófa að líta við á bílasölunni og vonast til að detta í lukkupottinn. Sá sem kærir sig ekki um bíl hefur hins vegar ekkert þangað inn að gera.
Ef að ESB andstæðingar eru ekki með bílpróf og vilja ekkert vita neitt um ástand jeppans, mögulegt verð o.s.fr, þá er augljóst að viðræður milli þeira bílprófslausu og þeirra sem vilja vita meira um jeppann eru tilganslausar.
Með því að standa á móti viðræðum um jeppann eru þeir bílprófslausu að svipta þá áhugasömu réttinum að fá allar upplýsingar um jeppann. Hvað hann kostar, í hvaða ástandi hann er osfr.
Þetta er ákveðið form af ofbeldi.
Ef ég sleppi jeppalíkingunni og tala um veruleikann þá er auðvitað augljóst og nauðsynlegt að kjósa um aðild að ESB. Það verður þó aldrei gert nema að fari fram viðræður fyrst. Kannski eru andstæðingar ESB bara að reyna að tefja málið? Auðvitað ættu andstæðingar ESB að safna liði og huga að væntanlegri kosningabaráttu um ESB.
Göran Person og Davíð Oddson
- Göran Person nýtur virðingar og í mæli hans má finna djúpa samlíðan með fólki sem á erfitt.
- Davíð Oddson er fyrirlitinn og sagði eitt sinn að fólkið í biðröðum hjálparsamtaka væru snýkjudýr.
fimmtudagur, 11. desember 2008
Fréttir á stöð 2
-Þannig er það bara.
Moggann vantar nokkra áskrifendur.
-Það er slatti.
Ástandið á útlensku -Bjarni Brynjólfs fer á kostum
- Spurning um hvort það hafi einhver áhrif.
Yfir 100 þúsund manns....
Ég er ennþá að brosa að þessu. :)
Í tilfefni af mannréttindadeginum í gær mæli ég með vantrúargrein dagsins.
Rothögg á ríkiskirkjuna
Í úrskurðinum segir m.a
....það sem Jafnréttisstofa telur mikilvægast í þessu máli sem er að ekki er að sjá að það séu neinir hagsmunir, hvorki fyrir nýfætt barn né aðra, að það sé sjálfkrafa skráð í trúfélag, hvort sem það fylgir skráningu móður eða föður. Miklu eðlilegra, og í meira samræmi við jafnréttislög og anda þeirra laga, sem og jafnrétti og mannréttindi almennt, væri að forsjáraðilar tækju um það ákvörðun hvort, og þá hvenær skrá ætti barn í trúfélag. Samþykki beggja forsjáraðila ef þeir eru tveir, yrði þá að liggja fyrir til þess að barn yrði skráð í trúfélag þegar það er yngra en að því sé heimilt að sjá um slíkt á eigin forsendum.
Upphaf þessa máls er sérstakt. Málið kemst á borð jafnréttisstofu eftir að prestur á Akureyri skírði barn í óþökk forsjáraðila! Nú liggur úrskurður fyrir og næsta skref er að fá þessum ólögum breytt.
Óþverrinn ég.

Ég las frábæra færslu Hnakkusar þar sem hann segir frá því þegar hann var "fjar-heilaður". Ég hvet alla til að lesa Hnakkann. Þetta er yndislegt.
Ég játa það á mig að þegar ég var um þrítugt þá gerði ég áþekkan hrekk. Ég var eitthvað eirðarlaus og hafði líið að gera. Var að fletta í gegnum dagblað og sá auglýsingu frá "fjar-heilara" sem á afar hóværan hátt auglýsti að ef lesendur sendu henni fé, þá myndi hún "fjar-heila" viðkomandi. Fjarheilara-konan var svo óforskammuð að hún gaf upp reikningsnúmerið sitt í auglýsingunni og beið eftir peningunum.
Ég ákvað að senda henni fé og láta "fjar-heila" mig. Ekki var það átakalaust því að í auglýsingunni vantaði kennitölu fjar-heilarans. Ég hafði upp á kennitölunni með því að hringja í fjar-heilarann og segja henni frá því að ég hefði í hyggju að leggja inn fé á reikninginn hennar og fá fjar-heilun. það var auðfengið mál, en af röddu fjar-heilarans máttti ráða að ég væri fyrsta viðbragðið við auglýsingunni.
Ég hef nefnilega líka það sem flokka má sem dulræna hæfileika. Ég get eins og margir fengið á tilfinninguna hvernig viðmælanda mínum líður, með því að meta hvað viðkomandi segir, hvernig hann segir það og undir hvaða kringumstæðum viðmælandi minn segir hlutina. Raddstyrkur og raddbeyting segir heilmikið til um í hvernig skapi viðmælandi manns er svo dæmi sé tekið. Fjar-heilarinn var greinilega spennt yfir símtalinu við mig þótt spenningurinn væri niðurbældur. Sagði fátt og talaði eins og véfrétt en undir niðri mátti greina eftirvængu þess sem hefur unnið í happadrætti og er byrjaður að eyða í huganum.
Ég sendi henni því næst peninga í gegnum heimabankann minn og get bara ímyndað mér viðbrögð fjar-heilarans þegar hún sá upphæðina.
-Fimm krónur íslenskar....
miðvikudagur, 10. desember 2008
Daníel Freyr yfirgefur Samfylkinguna
Verkalýðshreyfingin þarf að vakna ! !
Við erum að horfa upp á gagnslausa ríkissjórn reyna að hafa stjórn á ástandinu með grátlegum árangri. Nú er hafin útsala á gjaldþrota fyrirtækjum til handa gömlu eigendumum. -Tapið lendir á almenningi. Augljósri yfirhylmingu á bókhaldsfiffum Glitnis var hrundið. Úlfarnir eru að rífa í sig landið okkar. Við erum að horfa upp á þetta á hverri klukkustund.
Nú er lag að efna til verkfalla til að knýja á stjórnvöld um kosningar. Nú er lag að boða til almennilegra funda. Nú er lag að sýna styrk okkar.
Nú er lag að vakna.
Samfylkingin er að fara á límingunum
Ég endurtek enginn.
Ég endurtek aftur ENGINN
...verið rekin vegna bankahrunsins. Helstefna Sjálfstæðisflokksins er enn á sínum stað (enda var stefan rétt skv Flokknum). Davíð Oddson og náhirðin í kringum hann er enn við kjötkatlana. Allt þetta er í skjóli Samfylkingarinnar sem getur með einni ákvörðun linað þjáningar þjóðarinnar.
Við verðum að fá að kjósa að nýju. -Það er krafan.
S I G U R ! ! ! - KPMG segir sig frá Glitnisrannsókn
Bloggheimar hafa logað vegna þessa ógeðfelda máls og í morgun hófust aðgerðir sem fólust i því að fólk sendi inn kvörtun vegna málsins til KPMG International. Ógerlegt er að segja hvort þessar aðgerðir hafa haft áhrif eða ekki. Það reyndi í rauninni aldrei á málið.
Nú er ég sannfærður um að almenningur getur haft áhrif í þeirrri hörmulegu stöðu sem íslenska þjóðin er í. Við getum stoppað spillingaröflin ef við erum bara nógu helvíti reið. Ef við bara segjum stopp. Þetta er ekki fyrsti sigurinn gegn spillingunni sem við höfum orðið vitni að. Fyrst var það ógeðfeld rannsókn Björns Bjarnasonar sem var stöðvuð, síðan gerðist í rauninni óhugsandi atburður þegar mótmælanda var sleppt úr fangelsi eftir mótmæli við lögreglustöðina, og nú sjáum við þriðja sigurinn í höfn. KPMG segir sig frá rannsókn á sjálfum sér.
Nú þarf bara að halda sama dampi og hver veit nema við sjáum fram á nýjar kosningar fyrr en síðar. Það er krafan. Þannig og aðeins þannig er hægt að gera upp bankahrunið á almennilegan hátt.
Ríkisstjórnin lofaði okkur að öllum steinum yrði snúið við í rannsókn á bankahruninu. Hún sveik það. Augljós tilraun var gerð til yfirhylmingar.
-o-o-o-o-
Þó það sé kannski óvenjulegt að þakka fólki fyrir að vinna vinnuna sína vil ég hrósa Kastljósinu á RÚV fyrir þáttinn í gær. Hann skýrði á greinargóðan hátt frá málinu án vífilengja. Kastljós hefur það sem mörgum vantar. -Traust. Það er ekki hægt að kaupa sér traust. Það er áunnið á löngum tíma.
Ég er einnig þess fullviss að ef ekki væri fyrir bloggið þá væri KPMG ennþá að rannsaka KPMG. Sullenberger hóf umræðuna í athugasemdakarfinu hjá Agli Helga sem hélt málinu heitu, Illugi Jökulsson, Friðrik Skúlason, Ólína Þorvarðardóttir, Andrés Jónsson, Vésteinn Gauti Hauksson, Jónas Krisjánsson, Lára Halla, Baldin Jónsson og fleiri og fleiri héldu málinu logandi.
Tapararnir í þessu máli eru KPMG sem hverfur nú með skottið milli lappanna frá málinu. Björgvin G. Sigurðsson viðskiptamálaráðherra sem vissi ekki af málinu, vissi síðan af málinu og varð tvísaga. Framganga hans er ekki til þess að auka vegsemd hans. Skilanefnd Glitnis eru héreftir grunsamlegir svo ekki sé tekið dýpra til orða. Formaður skilanefndar Glitnis Árni Hauksson er dæmdur viðskiptasvindlari af FME árið 2003. Svona fólk er óhæft til að stýra mikilvægustu rannsóknarnefnd frá upphafi lýðveldisins. Árni Hauksson og Ársæll Hafsteinson verða að víkja úr skilanefnd Glitnis.
KPMG rannsakar KPMG 2.
Ekki er líklegt að KPMG finni nokkuð athugavert við störf sín fyrir FL-Group og fleiri skúffufyrirtæki á vegum Glitnis og tendgra aðlila.
Lúðvík Bergvinsson þingmaður Samfylkingarinnar sér ekkert að þessu háttalagi. Viðskiptaráðherrann Björgvin G. Sigurðsson er tvísaga í málnu, segist ekki hafa vitað að KPMG ætti að taka að sér verkið, en segir nú að hann vissi um aðkomum KPMG en ekki vitað af hagsmunatengslum málsaðila.
Þegar farið var af stað í það verkefni að rannaska bankahrunið var alltaf sagt að öllum steinum yrði velt við og allt málið skoðað. Þetta er því miður ósatt. Greinilegt er að yfirhylming er hafin. Skýrsla frá KPMG er ónýt fyrirfram. Tilboð KPMG að annar endurskoðandi verði fenginn til að endurskoða endurskoðunina er í besta falli brosleg. Auðséð er að sú endurskoðun yrið afar takmörkuð enda er verið að rannsaka gögn sem hinn "grunaði" leggur fram.
Gögnin sem hinn "grunaði" leggur EKKI fram eru auðvitað þau gögn sem ætti að rannsaka. Þar liggur hundurinn grafinn. Fyrir utan þá augljósu staðreynd að loksins þegar skýrsla KPMG kemur í dagsljósið verður hún alltaf tortryggð. En svoleiðis hvítbþottur dugar ekki í þessu tilfelli. Algert traust verður að ríkja um skýrslur um ástæður bankahrunsins.
Ég endurtek! Algert traust verður að ríkja um ástæður bankahrunsins.
þriðjudagur, 9. desember 2008
KPMG rannsakar KPMG. -Nú er komið nóg..
Svo segir mér hugur að KPMG finni ekkert aðfinnsluvert við endurskoðun KPMG á FL-Group og skúffufyrirtækjunum sem notuð voru til að fegra bókhaldið. Hvernig var aftur með 8 miljarða rekstarkostnaðinn á einu ári. KPMG skrifaði upp á hann.
Að Lúðvík sé á þessari skoðun vekur upp óþæglilegar spurningar. Að hann sjái ekki þá hróplegu hagsmunatengingar (KPMG rannsakar KPMG auk fjölskyldutengsla) gerir hann annað hvort að kjána eða strengjabrúðu.
-o-o-o-o-
Þegar ég horfði á þennan Kastjós þátt verkjaði allann. Ég var með óbragð í munninum og þurfti að gera hlé glápinu meðan ég gékk um og áttaði mig á því að Ísland er eins og sjúklingur. Fárveikur sjúlkingur með vessandi graftarklýli á líkamanum. Ísland þjáist og stjórmálamennirir ýmist stuðla að þjáningunni ellegar horfa aðgerðarlausir á. Enginn vill lækna Ísland. Nema kanski íbúar landsins. Stjórmálamennirir eru strengjabrúður brennuvarganna.
-Við verðum að gera eitthvað.
Speki Bjarna Harðarssonar
Hvað ef hér hefði verið evra!?
Framsóknarflokkurinn kynnti merka skýrslu um gjaldmiðilsmál þjóðarinnar, ítarlegt plagg. Engum blandast hugur um að okkar agnarsmáa og fljótandi króna er ekki gallalaus, hvorki fyrir heimilin né fyrirtækin sem keppa í ólgusjó heimsviðskipta.
Af skýrslu þessari má ýmsa lærdóma draga en kannski þann merkastan að ástandið væri hér fjári skítt ef við hefðum nú glapist á að taka upp evru fyrir svosem áratug síðan.
Þá hefðum við aldrei farið í gegnum netbólukreppuna í byrjun aldarinnar nema með gjaldþrotum. Sem hefðu svo kallað á atvinnuleysi.
Kreppan sem skall á í vetur leið hefði kallað fram hrinu gjaldþrota, verulegt atvinnuleysi og næsta víst að einhver bankanna væri þá farinn veg allra vega. Sem og orðspor okkar og traust í alþjóðlegu fjármálaumhverfi. Kreppan væri okkur því miklu erfiðari en hún þó er - en það hefði ekki orðið gengisfelling launa með sama hætti og orðið hefur. [leturbreyting min T.A]
Og það væri örugglega minni froða í hagkerfinu í dag ef við hefðum haft evru sl. áratug en hagvöxturinn hefði líka verið umtalsvert minni og atvinnuleysið töluvert. Sem hefði svo aftur gert okkur mun verr í stakk búin til að mæta þeim stórsjó sem nú ríður yfir alla heimsbyggðina.
Og auðvitað hefði gengið sveiflast - gagnvart dollara til dæmis með tilheyrandi hörmungum fyrir áliðnaðinn í landinu.
Þeir sem halda að þetta sé einfalt og gangi út á patentlausnir ættu að hugsa um eitthvað annað,- eitthvað þar sem patent raunverulega virka!
Í biðröðinni hjá Mæðrastyrksnefnd
Ég vil að sem flestir lesi hana.
Flott jólaskreyting
Hið eitraða Evrópusamband.
-Þetta er afar hvimleitt
Andstæðingar ESB eru líka á móti því að viðræður um mögulega aðild sé tekin upp. Það er óskiljanlegt því að aðeins með viðræðum liggja kostirnir fyrir. þá er hægt að skjóta málinu út af borðinu ellegar kjósa um það í þjóðaratkvæðagreiðslu.
Ég hef t.d ekki skoðað kosti þess og galla fyrir íslenskt samfélag því að umræðan hefur aldrei farið fram. Skoðun mín er einungis byggð á reynslu minni af því að búa í landi sem er í Evrópusambandinu og því að fylgjast með erlendum fjölmiðlum. Ég er í rauninni ekki búin að mynda mér skoðun á málinu. Umræðan hefur aldrei farið fram.
Ég hvet lesendur til að kíkja á bloggið hans Illuga Jökulsonar og sjá þar dæmi um hvaða aðferðum andstæðingar ESB beita til að þæfa umræðuna. Illugi skrifaði opið bréf til Katrínar Jakobsdóttur og fékk meir að segja svar.
Eins og mig grunaði þá voru svörin við spurningum Illuga í skötulíki og eru ekki í rauninni svör við spurningunum heldur málþóf.
Við Íslendingar eigum bágt. Þjónarnir okkar, alþingismenn og ráðherra hafa alla tíð hugsað um eigin hag frekar en hag þjóðarinnar. Þeir hafa meir að segja svipt okkur þvi að hér þrífist eðlileg þjóðfélagsumræða. Annað hvort er þetta gert af illum hvötum eða heimsku.
-Ég veit ekki hvort er skárra.
Gereyðingarvopn
Þeir félagarnir minna mig á Kjarnorkusprengjurnar sem sprengdar voru í Japan árið 1945. Davíð Oddson er okkar Hiroshima meðan Árni er okkar Nagasaki.
Báðir tveir sitja sem fastast og telja að enginn sprengja hafi sprungið. Að þeir hafi gert allt rétt, að stefnan hafi verið rétt og ef eitthvað hafi gerst þá er það útlendingum að kenna.
-Það er gersamlega óþolandi að hafa þessi gereyðingarvopn á framfæri skattgreiðenda.
mánudagur, 8. desember 2008
Nú er ég sannfærður. ESB er málið.
-Hún segir að ESB sé of kapítalískt apparat.
Þetta var einmitt það sem vantaði upp á til að sænnfæra mig um ágæti ESB.
-Sjálfstæðisflokkurinn segir nefnilega að ESB sé of sósíalískt apparat.
Þegar þessir andstæðu pólar í stjórnmálum sammælast um einhverja skoðun, en á þveröfugum forsendum, hlýtur skoðunin að vera góð.
Eitur !

Ég dekk ekki áfengi. Hef ekki bragðað dropa síðan ég setti tappann í flöskuna áramótin 2000 - 2001. -Ein besta ákvörðun sem ég hef tekið.
Ég var að tala við vinkonu mína sem var að kvarta yfir því að hún fékk sér aðeins of mikið s.l laugardag, drakk aðeins of mörg glös af rauðvíni í góðra vina hópi. Hún var drullu timbruð allan sunnudaginn og var ekki alveg búin að jafna sig í hádeginu í dag.
Þá fór ég að spá. Ef að einhver drekkur óþekktan vökva sem hefur sambærileg áhrif á líkamann og áfengi, þá myndi hinn sami fara beint á spítala. Læknirfræðileg greining gæti verið eftirfarandi:
Áfengi er svo mikið eitur að undrum sætir að fólk leggur sér þetta sull sér til munns.
"Sjúklingur kom inn á bráðamóttökuna með eitrunaráhrif. Viðkomandi var greinilega ruglaður og valtur á fótum. Sjúklingurinn var lagður inn til öryggis. Eitrunaráhrif vökvans eru enn í líkama viðkomandi, þótt 2 dagar séu liðinir frá inntöku".
Nú segjum við STOPP ! ! !
Þetta er eins og að láta glæpamann rannsaka eigin glæp.
Þetta liggur svo flatt við að mér blöskar sú framhleypni að láta detta sér þetta í hug! Sú staðreynd sýnir einungis að maðkur er í mysunni. Glæpónarnir eru tilbúnir að tegja sig svona langt út í ljósið því augljóst er að þeir hafa eitthvað að fela.
Nú þarf bara að finna leiðir til þess að koma stjórnvöldum í skilning um að þessi vinnubrögð ganga ekki. Fjölpóstar, mótmæli, skyndiverkföll? -Hugmyndabankinn er opin.
Skýrsla frá KPMG um Glitni er fyrirfram ónýt vegna hagsmunatengsla. Enginn mun taka mark á neinu plaggi um hrunið ef minnsti vafi leikur á spillingu. Heppilegast væri að fá útlendinga til að skoða þetta.
Samhengislaus þjóð.
Þetta verður allt að sjálfsögðu ókeypis.
Mikið væri sniðugt að sambærilegt verkefni færi af stað á Íslandi. Tiltölulega auðvelt er að skanna allt efni þótt það taki að sjálfsögðu nokkurn tíma. Í tilfelli Google er notast við vélar. Bók, blaði eða tímarit er sett í skönnunarvél og vélin flettir hverri síðu fyrir sig og skannar.
Svona verkefni er ekki bara gott af því leiti að hægt er að grúska í gömlum blöðum heima hjá sér (í stað þess að fara á Þjóðarbókhlöðuna) heldur færir þetta fortíðina nær okkur. Setur hlutina í samhengi. En helsti akkílesar hæll íslensku þjóðarinnar er eins og allir vita samhengisleysi.
sunnudagur, 7. desember 2008
Skóveinn skúrksins
Framtíð Framsóknarflokksins veltur á því hvort hann skynji kall kjósenda eftir breytingum í íslenskum stjórnmálum. Segja verður skilið við samtryggingu stjórnmálanna og ógagnsæ vinnubrögð. Rannsókn á efnahagshruni síðustu vikna þarf að ná aftur til þeirra ára sem bankarnir voru einkavæddir enda Framsóknarflokknum mikilvægt að allt verði upplýst í því ferli.
Páll ætti að hætta þessum orðalengingum og segja bara sjálfur frá því hvernig Framsóknarflokkurinn með Finn í fararbroddi sölsaði undir sig Búnaðarbankann. Það er óvenju stutt í upplýsingarnar sem Páll Magnússon er að óska eftir.
Nú er mér nákvæmlega sama hvern Framsóknarmenn kjósa sér sem formann. Ég kýs ekki þennan flokk. Framsóknarmenn ættu hinsvegar að hafa það í huga að fylgishrun síðustu missera er ekki tilviljun. Ekki óútskýanlegt. Ekki óvænt. Framsóknarflokkurinn líður fyrir það fölskvalausa þjófræði sem hann hefur ástunað alla tíð. Framsóknarflokkurinn er ekki stjórmálaflokkur í eiginlegum skilningi heldur hagsmunasamtök þeirra sem sölsað hafa undir sig ríkiseigur. Það er alveg sama hversu mikið frambjóðendur eru fótósjoppaðir og það er alveg sama hversu dýrum fötum þeir klæðast.
-Fólk veit að þjófur er jafnmikill þjófur þótt hann sé í Armani jakkafötum.
Ótrúlega flottur bíll
Á þessum krepputímum er við hæfi að segja frá dýrum og flottum bílum. Nýjasti WV Scirocco er einmitt dæmi um slíkan bíl.Mér hafa alltaf þótt Scirocco bílarnir era flottari en sporttýpurnar frá Golf. Nú er einhverskonar fulkomnun náð. Flottari bíll er vandfundinn
Allt um Scirocco hér.
laugardagur, 6. desember 2008
Vinsamlega smitist af þessum vírus...
Ég er að sjáfsögðu ekki einn um þetta. Dæmi um ofanritað eru óteljandi. Í fljótu bragði man ég eftir bloggi Baldurs McQueen sem afhjúpaði lygaþvælu Davíðs Oddsonar eftir að sá hafði sagst "aldrei hafa skilið þessa útrásarmenn". Annað er þegar Matthías Ásgeirsson kom auga á sögufalsanir Guðna Ágústssonar þegar sá hafði fegrað ræðu fyrir alþingistíðindi. Nokkuð sem brýtur þingsköp og er í rauninni svívirðing við eðlileg vinnubrögð alþingismanna.
Ég birti einu sinni á blogginu mínu færslu í kjölfarið á því að samgöngumálanefnd alþingis gisti á hóteli í Reykjavík fyrir einn skitinn fund. Í færslunni gerði ég grein fyrir hvar samgöngumálanefndarfólk bjó og reiknaði út fjarlægð fá heimli viðkomandi. Þessi færsla skilaði sér inní allnokkur blogg og fréttatíma. Mér finnst þetta alltaf svolítið gaman. Gaman þegar skrifin mín hafa áhrif. það er hægt að búa til öldur með því að pikka á lyklaborð.
Margir bloggarar eru áhrifameiri ég og eru ómissandi þáttur hverjum þeim sem vill fá skýra mynd af þjóðfelagsástandinu. Lára Hanna er sér á báti. Hún heldur til haga allskonar ummælum stjórmálamanna og ber saman við orðræðu dagsins. Oft eru nokkurra vikna gömul ummæli stjórnmálamanna í hróplegu ósamræmi við orð þeirra í dag. Oft afhjúpast alger tækifærismennska og tilraunir til sögufölsunnar. Það má segja að hún noti orð þeirra sjálfra gegn þeim sjálfum. Jónas Kristjánsson Illugi Jökulsson og Egill Helgason eru ferlega öflugir allir þrír . Egill hófstilltari meðan Jónas og Illugi eru lausbeislaðri. Baldur McQueen og Maurildismenn eru einnig ómetanlegir fyrir þjóðmálaumræðuna.
Nýlega varð ég var við hugmyndasmit sem ég vil meina að konan mín eigi upphafið af. Hún var að fjargviðrast yfir því að Sjálfstæðisflokkurinn stærði sig í sífellu um gott efnahagsástand s.l 15 ár. Tóku s.s ábyrgð á góðu efnahagsástandi. En eftir hrunið þá skyndilega bera þeir enga ábyrgð á því hvernig fór. Ég bloggaði litla færslu um þennan góða vinkil. Nokkrum dögum síðar birtist áþekk bloggfærsla hjá þekktum bloggara og blaðagrein í Fréttablaðinu eftir stjórnmálafræðing.
Þó að þetta hafi verið útúrdúr þá held ég að veruleiki stjórmálamannsins sé algerlega breyttur þökk sé netinu, googl-inu og blogginu. Stjórmálamenn margir hverjir gera sér nú meira og meira grein fyrir því að hvert orð þeirra, hver aðgerð og yfirlýsing fer beinustu leið á netið. Guðni Ágústsson fattaði það bara ekki og reyndi að falsa eigin orð. Davíð Oddson fattar þessa staðreynd heldur ekki og reynir að ljúga sig út úr vandræðunum sem hann ber ábyrgð á.
Það eru komnir nýjir tímar. Betri tímar. Auðvitað var það tæknin sem bætir samfélagið en ekki sjálfssprottin siðferðiskennd stjórmálamanna. Ég held að það sé ágæt regla að vantreysta alltaf stjórmálamönnum. Skoða hverja einustu færslu, hverja einustu aðgerð og hvert einast orð sem frá þeim kemur. Það á að ríkja hæfilegt vantraust frá þjóð til þings. Ástæðan er sú að við erum mannleg. Svo mannleg.
Ég man ekki eftir einu einasta tilfelli þar sem hagsmunir þjóðarinnar hafa verið teknir fram fyrir hagsmuni flokkana. Alltaf skal flokkapot þvælast fyrir hverri einustu ákvörðum sem tekni er á alþingi. Aldrei í þingræðissögu Íslands hefur þingmaður sagt af sér vegna þjóðarhagsmuna. Ég man hinsvegar eftir því þegar Ellert Schram lét eftir þingsæti sitt til þess að róa eigin flokk.
Alþingismenn eru þjónar. Þeir eru valdir tímabundið til opinberar þjónustu. Við þegnarnir gleymum því bara. Alþingismenn eru löngu búnir að gleyma þjónustuhlutverki sínu og líta á sig sem stjórendur. Það er himinn og haf þarna á milli. Alþingismenn hafa verið í hlutverki þjónanna sem ræna eldhúsið sem þeir vinna í. Þeir líta á matinn í ísskápnum sem sinn eigin. Sumir, eins og Finnur Ingólfsson fyrrverandi viðskiptaráðherra og seðlabankastjóri veðsetti eldhúsið, skyldi okkur eftir í skítnum og varð miljarðamæringur. Aldrei hafa aðgerðir hans verið rannsakaðar og verða sennilega aldrei rannsakaðar.
Nú vil ég endilega koma að einum vírus. Vírusnum sem hefur þá verkan að gaurar eins og Finnur Ingólfson komist aldrei í opinberar valdastöður aftur. Ég smita sem flest af þeim vírus sem öskrar á okkur að við krefjumst þess að búa við almennilegt lýðræði. Að hagsmunir flokkanna komi hvergi nærri ákvörðunum sem varða þjóðarhag. Að prófskírteini séu hærra metin en flokkskírteini.
Þessi vírus hefur tekið sér bólfestu í öllum löndum í kringum okkur. Bandaríkjunum og Evrópu. Við höfum því miður sloppið við þennan vírus vegna legu landsins og af ótta við útlendinga.
-Núna verðum við að smitast.



