Brugðið.
Mér var verulega brugðið þegar ég sá fréttirnar af atburðum næturinnar. Mótmælendur sem hefuð átt að fagna sigri, tóku sig frekar til við að eyðileggja allt sem í vegi þeirra varð. Tveir lögreglumenn liggja alvarlega slasaðir eftir.
Þetta er ástæaðn fyrir því að mótmæli eru tiltölulega fátíð. Enginn veit hvað gerist. Oft, eins og nú á lokadögum mótmælanna, gerist það að ofbeldissjúkir auðnuleysingjar og greindarskertir glæpamenn stýra atburðarrásinni.
Þetta hefur bara þau áhrif að stuðningur við ríkisstjórnina eykst og samúð þverr með mótmælendum.
Forrystufólk mótmælanna ætu undireins að koma fram og fordæma þessa atburði og viðurkenna að þetta fór úr böndunum. Skítt með það þótt lögreglan hafi líka gengið of langt. Þetta er rugl sem verður að stoppa.

4 Comments:
sammála þetta gekk of langt, stoppum þessa brjálæðinga sem eru að eyðileggja fyrir hinum sem vilja mótmæla.þeir virðast ekki gera sér grein fyrir að fólkið í landinu þarf að borga allar skemdirnar sem þeir valda.Og að meiða fólk er eitthvað sem ég tek ekki þátt í.Eru þetta ekki einhverjir mótmælenda hópar sem hafa verið hér að mótmæla´álverum og öðrum , umhverfissinnar, maður spyr sig.Það er svo margt sem manni langar til að segja ,en stundum er betra að staldra við og segja ekki það sem maður sér eftir.
Áfram Ísland
By
Nafnlaus, At
22. janúar 2009 09:44
Hvet mótmælendur til að sýna stillingu, og taka smá pásu. Þetta er að koma. Ef umræðan fer að snúast um mótmælin, en ekki það sem er mótmælt, þá er þetta allt til einskis gert.
Ég mæli með að fólk taki sér frí frá mótmælum í dag og á morgun, og mæti til FRIÐSAMLEGRA mótmæla á Laugardag. Það er mikilvægt að taka ekki vettvang hins almenna borgara burt með látum og offorsi. Laugardagsmótmælin verða að vera friðsamleg.
By
bogi, At
22. janúar 2009 10:02
Ég var þarna til eitt í gærnótt og lang mest fór fyrir fagnaðarlátum og lítið um bein mótmæli. Innan um hundruð mótmælenda(fagnenda?) voru því miður 10-20 rotin epli sem skemmdu fyrir öllum hinum. Skömmu eftir miðnætti tóku þessi rotnu epli að rífa upp gangstéttahellur til að grýta lögregluna og er það óforsvaranlegt. Þorri mótmælenda skammaðist yfir þessu og margir reyndu að stöðva grjótkastið og lá oft við slagsmálum meðal mótmælenda.
Þrátt fyrir þetta finst mér ekki koma til greina að gera hlé á mótmælum fyrr en ríkisstjórnin er farin eða búið að boða til kosninga. Við friðsamlegu mótmælendurnir sem skiptum þúsundum þurfum að finna leið til að aðskilja okkur greinilegar frá ofbeldisfóki.
By
Nafnlaus, At
22. janúar 2009 10:38
Ég bendi á þessa leið, til aðgreiningar á friðsömum mótmælendum og óeirðaseggjum:
http://www.facebook.com/topic.php?uid=64832322664&topic=12980
By
Helena, At
22. janúar 2009 12:00
Sendu inn athugasemd
<< Heim