EIMREIÐIN - veður í gegnum (moð)reykinn

miðvikudagur, 21. janúar 2009

Friðsöm mótmæli. -Svo sannarlega

Mér þykja það friðsöm mótmæli þegar allir mótmælendur sem einn yfirgefa svæðið og fara annað vegna jarðarfarar í næsta húsi. Allstaðar annarstaðar hefði jarðarförinni verið frestað en ekki mótmælunum.

Eitt og eitt egg í drossíuna hans Haarde er léttvægt í samanburði við brunarústirnar sem Sjálfstæðisflokkurinn skilur eftir sig. Léttvægt er eiginlega ekki orðið.

-Það er bara fyndið að líkja þessu saman.

Haare á bara að hætta og fara að Haardera á Klörubar á ofur-eftirlaununum frá fólkinu sem hann setti á kaldann klakann. -Þannig gerir hann okkur mest gagn.