EIMREIÐIN - veður í gegnum (moð)reykinn

miðvikudagur, 21. janúar 2009

Geir í Kastljósinu.

Furðu var hann vesældarlegur hann Haarde í Kastljósinu rétt í þessu. Hann lyppaðist niður og skók sér eins og griðkona þegar hann fékk Spurninguna.

Af hverju er Davíð Oddson ennþá Seðlabankastjóri?




-Hann gat ekki svarað því.

5 Comments:

  • Steingrími gekk nú ekkert sérstaklega vel að svara sínum spurningum. Svör eins og "aðrar áherslur" eru varla miklar lausnir eða það kemur í ljós þegar við erum komnir í ríkisstjórn.

    By Anonymous Tómasha, At 21. janúar 2009 20:44  

  • Hvað með það að Steingrímur hefði verið slappur (sem hann var ekki) hvað með það? Breytir það eitthvað því að Haarde hafi verið slappur?

    Hvernig væri að færa umræðuna aðeins upp á hærra plan.

    Skilur þú ekki umræður? Ef ég tjái mig um frammistöðu Haadre þá er ég ekki að tala um frammistöðu Steingríms. Mér er alveg sama um hvenig hann stóð sig. Ég var að tjá mig um Haarde. Það kemur þessari færslu ekkert við hvað Steingrímur sagði eða sagði ekki. Það kemur málinu ekkert við hvort hann hafi verið með ljótt bindi í krummafót.

    -Skilur þú ekki rökræður?

    By Blogger Teitur Atlason, At 21. janúar 2009 20:51  

  • Bíddu hvaða rökræður eru í gangi? Þú bendir á að Geir sé slappur og ég benti á að Steingrímur hafi líka verið slappur.

    Hvað skilur þú ekki við það?

    By Anonymous Tómasha, At 21. janúar 2009 21:55  

  • Bloggfærslan fjallaði EKKI um Steingrím! Mér er skítsama hvort hann var í krummafót eða með ljótt bindi. Hvað hann sagði eða sagði ekki.

    By Blogger Teitur Atlason, At 21. janúar 2009 21:57  

  • óttalega ertu geðvondur Teitur minn mundu að fara með bænirnar þínar. Algóður guð mun hjálpa þér í Jesú nafni.

    By Anonymous Nafnlaus, At 22. janúar 2009 21:10  

Sendu inn athugasemd

Subscribe to Post Comments [Atom]



<< Heim