EIMREIÐIN - veður í gegnum (moð)reykinn

þriðjudagur, 20. janúar 2009

Mynd sem segir meira en 1000 orð.

Matthías Ásgeirsson tók þessa frábæru mynd í mótmælunum í dag. Myndin er af Kristjáni Möller þingmannni Samfylkingarinnar þar sem hann stendur keikur í glerbyggingu Alþingishússins. Ef grannt er skoðað má sjá fyrirlitlegt bros á andliti hans þar sem hann virðist hæðast að skrílnum sem hann þykist vera óhulltur fyrir. Far eftir snjóbolta er í rúðunni sem skýlir honum fyrir skotinu. Það sem mér finnst svo ljóðrænt við þessa mynd að það er örþunnt gler á milli hans og mótmælenda og ekki þarf nema áherslumun til þess að glerið skýli honum ekki neitt. Grjót hefði t.d hitt Möller fyrir og hann má þakka fyrir það að svo var ekki.

Hérna er þessi frábæra mynd Matthíasar Ásgeirssonar þar eru einnig að finna álíka góðar myndir og þessi sem ég sýni hér á Eimreiðinni. Það kæmi mér ekki á óvart að þessi mynd kæmi sterklega til greina sem besta fréttamynd ársins.

8 Comments:

  • kannski er hann bara svona ánægður fyrir hönd mótmælanda? Eða að lesa á mótmælendaskiltin sem mörg hver eru mjög góð, hnittin og hnitmiðuð eins og td helvítis fokking fokk?

    By Blogger Kristbjorg, At 20. janúar 2009 21:03  

  • Kannski sér hann þarna fyrir sér endalok stjórnar með sjöllunum. Aknnski er hann anarkisti sem gleðst yfir atganginum.

    By Anonymous Nafnlaus, At 20. janúar 2009 21:42  

  • Nei. Hann sér ekkert fyrir nein endalok.

    Möller heldur að stjórnmál snúist um að bora göt í fjöll.

    By Blogger Teitur Atlason, At 20. janúar 2009 21:44  

  • Þetta er klippt úr þessari mynd.

    Ég held að Kristján hafi veirð að glotta þegar mótmælendur hentu einhverju í átt að honum.

    By Anonymous Matti, At 20. janúar 2009 22:09  

  • Já það er fyndið þegar mótmælandi hendir í mann snjóbolta.

    By Blogger Teitur Atlason, At 20. janúar 2009 22:11  

  • Karlinn er feitur og almúginn magur. Samfylkingin er handbendi auðvaldsins

    By Anonymous Nafnlaus, At 20. janúar 2009 22:54  

  • Þetta er maðurinn sem vegna pólitísks frama síns kom á koppinn jarðgangnagerð um Héðinsfjörð fyrir fleiri þúsund miljónir bara svo hann væri öruggur með atkvæði heimamanna. Um þessi gögng munu aka kannski fimm til tíu bílar á dag. Maður spyr sig, hvað eru þingmenn og pólitíkusar tilbúnir að gera og eyða af almannafé svo þeir verði öruggir með þingsætið sitt?

    By Anonymous Nafnlaus, At 20. janúar 2009 23:43  

  • þessi möller er ein risaeðlan á þingi sem þarf að hundskast burt . viðbjóðslegt glottið á honum gerði mig mjög reiðan í dag.

    mjög reiðan

    By Anonymous Nafnlaus, At 21. janúar 2009 00:49  

Sendu inn athugasemd

Subscribe to Post Comments [Atom]



<< Heim