Stjórnin sprungin
Ef að framfer sem horfir að boðað verður til kostninga í maí, þá sitjum við samt með óhæft þing í 4 mánuði viðbót. -Það er óásættanlegt.
Krafa mótmælenda stendur enn sem fyrr þótt kröfunni um kostningar sé náð.
Uppbygging landsins er óhugsandi með gamla liðið á öllum póstum.
Krafa mótmælenda stendur enn sem fyrr þótt kröfunni um kostningar sé náð.
- Út með Davíð úr Seðlabankanum
- Út með Jónas úr FMR
Uppbygging landsins er óhugsandi með gamla liðið á öllum póstum.


2 Comments:
Stjórnin átti auðvitað aldrei að vera mynduð. Samansafn af ónothæfu liði sem vildi bara vera vinsælt og fljúga með útrásarséníunum. Fá svimandi dagpeninga í útlöndum, sitja í öryggisráðinu og leika voða merkilegt fólk. Síðan voru þau í einkabisness úti í bæ eins og Árni Matt og Lúðvík Bergvins. Ágúst Ólafur og Þorgerður Katrín vildu að aðrir fjölskyldumeðlimir sæju um bisnessin meðan þau gætu rætt um tilvonandi evrópuþingsæti sín. Geir og Ingibjörg skiptust á að hæla hvort öðru og virkuðu voða hamingjusöm. Hvað svo? Svínaríið hrundi og upphófust björgunaraðgerðir sem allar miðuðust að því að bjarga útrásarmönnum og láta litlu smáfuglana sem heitir þjóðin sitja uppi með tjónið. Ég neita að trúa því að heilvita fólk kjósi aftur þessa fáráðlinga. Guð blessi þig Teitur minn ég veit að þú ert góður drengur sem lenti í slæmum félagsskap.
By
Nafnlaus, At
21. janúar 2009 20:26
Takk fyrir hlý orð mér til handa. Ég er sannarlega góður félaskapur sem lenti í slæmum drengi.
By
Teitur Atlason, At
21. janúar 2009 20:29
Sendu inn athugasemd
Subscribe to Post Comments [Atom]
<< Heim