EIMREIÐIN - veður í gegnum (moð)reykinn

miðvikudagur, 21. janúar 2009

Stoltur. Óendanlega stoltur

Ég er svo stoltur að því að vera Íslendingur í dag. Svo innilega þakkátur fyrir hugrekki landa minna á þessum hrikalegu tímum. Ég ætla að segja ykkur sögu ágæti lesendur mínir sem gerðist fyrir nokkrum vikum þegar ég var að flaka niður á höfn.

Ég var með bunka af þorski fyrir framan mig, illt í fingrunum og leið hrikalega illa á sálinni eftir allar þessar fréttir. Mér varð ljóst þarna á gúmmímottunni hve hrikalega landið mitt hafði verið leikið af óheiðarlegum viðskiptabarónum og óhæfum stjórnmálamönnum. Mér hefur reyndar oft liðið svona síðastliðna 100 daga. Ég grét meir að segja einu sinni þegar ég var að vaska upp á plastparketinu í eldhúsinu.

Vinnufélagi minn, hún Salay er mikill aðdáandi Sigur-rósar og spyr mig reglulega út í hljómsveitina og þessháttar. Salay er innflytjandi eins og ég en hefur búið hér í landi alla sína tíð. Hún er kaffibrún og afar glæsileg eins og margar konur sem eru að íröskum uppruna.

Þegar ég er þarna að flaka byrjar Salay að syngja. Hún sönglar meðan hún beitti hnífnum og ég fattaði ekki alveg strax að hún var að syngja á íslensku. Hún söng þessi orð sem stungu mig í hjartað eins og þúsund hrafntinnubrot á hljóðhraða. Þessi orð sem fylltu mig ofboðslegri heimþrá og ást til landsins míns. þessi orð sem hljómuðu svolítið einkennilega því ég veit að hún skildi þau ekki. Orð sem fylltu augum mín tárum enn og aftur. Orðin voru textabrot úr lagi með Sigur-rós. Hoppípolla.

"...Og ég fæ blóðnasir, en ég stend alltaf upp."

Það var rétt hjá henni þótt ég hafi ekki trúað því þá. Ég hélt að við gætum aldrei staðið upp. -Bara fengið blóðnasir. Núna trúi ég því. Við getum staðið upp.

-Við getum staðið upp

2 Comments:

  • Ertu í alvörunni stoltur Teitur?

    Varstu þarna í gær?

    Sástu hvað þarna fór fram?

    Ég er hrædd um að einhvers konar "confirmation bias" sé að byrgja fólki sýn.

    Ég sá þetta þannig að hópurinn sem hafði sig mest í frammi er eins langt frá því að vera "þjóðin" eins og mbl.is vill halda fram.

    Ég sá fólk sem hafði fátt annað að markmiði en að ögra lögreglunni.

    Ég sá fólk sem langaði í uppþot og gerði mikið til að espa mannskapinn upp.

    Auðvitað voru þetta ekki allir, en því miður allt of margir.

    Við erum ekki í stríði við lögregluna. Hennar hlutverk er skýrt. Og ég hef þá trú að hún sinni því eins vel og hægt er, við erfiðar aðstæður.

    Ég er jafnreið og allir. Ég vil ríkisstjórnina burt. Vil að forstjóri FME og Seðlabankastjórar víki. En ég hef EKKI trú á ofbeldi og kæri mig ekki um að fjölmiðlar og bloggarar landsins gefi sér að 1000 manns séu lýsandi fyrir þjóðina.

    Hugsaðu þig aðeins um áður en þú segist vera stoltur!

    By Blogger Helena, At 21. janúar 2009 10:02  

  • http://hjalli.com/2009/01/21/af-motmaelum/#comments

    By Blogger Helena, At 21. janúar 2009 10:06  

Sendu inn athugasemd

Subscribe to Post Comments [Atom]



<< Heim