EIMREIÐIN - veður í gegnum (moð)reykinn

fimmtudagur, 22. janúar 2009

Syndir Framsóknarflokksins.

Framsóknarflokkurinn er á góðri siglingu samkvæmt skoðanakönnunum.

Fók er ótrúlega fljótt að gleyma.

Hér er örlítil upprifjun.
Athugaðu að þetta er langt frá því að vera tæmandi listi:


Ertu búinn að gleyma þessu?:
  • Stuðningur Framsóknarflokksins við Íraksstríðið,
  • Ráðstöfun Aðalverktaka, handstýrt af Framsóknarmönnum.
  • Einavinavæðing Búnaðarbankans,
  • Finnur Ingólfsson viðskiptaráðherra, Seðlabankastjóri, milljarðamæringur,
  • Gift, milljarðar í þeim sjóði virðast hafa gufað upp.
  • Björn Ingi og þáttur hans í REI málinu.
  • Kærasta sonar Jónínu Bjartmarz.
  • Kögun*
  • Guðmundur Bjarnason hjá Íbúðalánasjóði.
  • Ólafur Örn Haraldsson hjá ratsjárstofnun.
  • Gísli Tryggvason talsmaður neytenda.
  • Haraldur Örn Ólafsson (sonur Ólafs í ratsjárstofnun) og aðra sem höfðu starfsheitið "skrifstofustjórar" í gamla iðnaðar- og viðskiptaráðuneytinu. Það voru uþb 6 fleiri skrifstofustjórar en skilgreindar voru skrifstofur til þess að stjórna.
  • Páll Gunnar Pálsson (sonur Höllustaðabóndans) forstjóri Fjármálaeftirlitsins og síðar Samkeppniseftirlitsins.

Og svo framvegis og svo framvegis og svo framvegis.

Vill fólk virkilega fá þetta lið í stjórn aftur?


*Þeir sem vilja kynna sér hvernig Gunnlaugur og fjölskylda keyptu Kögun á sínum tíma er bent á að lesa greinarflokk Agnesar Bragadóttur blaðamanns á Morgunblaðinu um málið. Hún skrifaði langan og fróðlegan greinarbálk um þetta.

8 Comments:

  • Þú steingleymdir "sléttfeita drengnum með pönnukökukinnarnar" sem nú er orðin varaformaður og aðkomu hans að Byrgishneykslinu.

    By Anonymous Nafnlaus, At 22. janúar 2009 19:00  

  • Það væri hægt að skrifa endalaust um spillinguna hjá þessu liði.

    Heldur fólk virkilega að sonur eins mesta spillingarkonungs í sögu Framsóknarflokksins sé nýtt blóð í flokknum?

    By Anonymous Nafnlaus, At 22. janúar 2009 19:45  

  • hvar er hægt að nálgast greinar Agnesar Braga?

    By Anonymous Nafnlaus, At 22. janúar 2009 20:43  

  • Samt streyma jafnaðarmenn yfir til þeirra segir það ekki dálitla sögu um spillinguna í Samfylkingunni?
    fólk vill ekki lengur láta handbendi Jóns Ásgeirs stjórna.
    Framsókn hreinsaði til og meðalaldur forystunnar er 33 ár en um 60 ár hjá Samfylkingunni. Hvort helduðu að höfði til unga fólksins?

    By Anonymous Nafnlaus, At 22. janúar 2009 21:04  

  • Framsókn hefur nokkrum sinnum "hreinsað til".
    T.d. þegar Finnur Ingólfs kom með nýjar og ferskar hugmyndir inn í flokkin. Sömuleiðis Björn Ingi. Svo ekki sé minnst á háttvirtan þingmann Norðausturlands, Birki J. Jónsson.

    By Anonymous Nafnlaus, At 22. janúar 2009 22:21  

  • "Árið 2003 rann út samningur við varnarliðið um afnot af Rockville og þá fóru embættismenn að leita að nýju húsnæði fyrir Byrgið. Birkir Jón Jónsson, þá aðstoðarmaður félagsmálaráðherra, vann að málinu. Hann ráðfærði sig við starfsmenn fjármálaráðuneytis sem lögðu til að ríkisstyrkir til meðferðarstöðva væru betur skilgreindir og mat lagt á starfsemi og árangur. Birkir svaraði þessu þannig að það væri „fín framtíðarmúsík". Hins vegar mætti engan tíma missa því hætt væri við að þá þjóni Byrgið ekki lengur þeim hópi fólks sem þar dvelji. Í bréfinu talar Birkir Jón einnig að kostnaðurinn við Byrgið sé ekki mikill. Hann segir: „Ef starfsemi Byrgisins á alfarið að fara eftir lögum um heilbrigðisþjónustu þá mun kostnaðurinn verða margalt hærri en nú er áætlað. "

    www.ruv.is

    By Anonymous Nafnlaus, At 22. janúar 2009 22:22  

  • Er möguleiki að synir og dætur háttsettra Framsóknamanna/kvenna séu vel menntuð og hæf til að gegna ábyrgðarstöðum í þjóðfélaginu?

    Eins slæm og þessi einkavinavæðing er, þá er það alveg jafnslæmt að líta framhjá hæfum einstaklingum útaf ætterni. Ættu börn Framsóknarfólks að líða fyrir hverjir foreldrar þeirra eru? Bara svona spekulering.

    By Blogger Sonja, At 22. janúar 2009 22:50  

  • Sonja spyr:
    "Er möguleiki að synir og dætur háttsettra Framsóknamanna/kvenna séu vel menntuð og hæf til að gegna ábyrgðarstöðum í þjóðfélaginu?"

    Svarið er nei.
    Það hefur reynslan og sagan sýnt ótal sinnum.

    Jon

    By Anonymous Nafnlaus, At 23. janúar 2009 00:47  

Sendu inn athugasemd



<< Heim