EIMREIÐIN - veður í gegnum (moð)reykinn

fimmtudagur, 14. maí 2009

Ekki hættir

Það er með ólíkindum hve spillingin virðist vera inngróinn inn í íslenska fjármálaheiminn. Skilanefndirnar sem skipaðar voru af fulltrúum almennings, til þess að gæta hagsmuna almennings eru á kafi í spillingu og vafasömum vinnubrögðum. Var búið að ákveða að Framsóknarflokkurinn ætti að "eignast" Byr? Hvenær var það þá gert og hver ákvað það?

Það er eins og glæpónar hafi yfirtekið yfirráðasvæði annara glæpóna. Að tómarúm hafi myndast við fall bankanna sem glæpónar séu búnir að ráðstafa.

Þetta mál er með ólíkindum og þarf að skýra fyrir almenningi eins og skot. Enn og aftur virðast réttu mennirnir fá undarlega góða fyrirgreiðslu í bönkunum.

Spurning vaknar um hvort að viðreisn bankakerfisins sé mögulegt án aðkomu svindlandi plottara. Er virkileg ekki til heiðarlegt fólk í þetta verkefni? Fólk sem vinnur fyrir umbjóðendur sínar en ekki fyrir e-r vafasöm hagsmunaöfl.

Flokkar:

0 Comments:

Sendu inn athugasemd

Subscribe to Post Comments [Atom]



<< Heim