Krónan sem treystandi er á.
Sænska reiðhjólaversksmiðjan Kronan framleiðir klassísk reiðhjól. Hjólin eru afar einföld að gerð og hönnunin er eldgömul og hefur staðist tímans tönn. Ekkert 10 gíra-gums. Bara einfald og gott hjól. 3 gírar og til í 3 útgáfum. Karlahjól, kvenmanshjól og "unisex". Reiðhjólið er smíðað eftir teikningum fyrir sænska herinn. Herhjólin voru ódrepandi og einhver sniðugur fékk þá hugmynd að endurvekja framleiðsluna.
Mér þykja þessi hjól flott. Þau endast heilu kynslóðirnar. Auðvelt að gera við og viðhalda.


9 Comments:
Eru þau dýr? Væri hægt að senda nokkur hingað heim til prufu?
Mig vantar gott hjól.
By
Lára Hanna, At
20. maí 2009 19:23
Kronan er mjög þungt reiðhjól. Mæli ekki með því.
By
Mossmann, At
20. maí 2009 20:53
Þungt og gott. -Eins og Volvo.
Ég fullyrði hinsvegar að þessi reiðhjól eru ódrepandi. það er fullt af fyrstu kynslóðar hjólum hér á götunum. Hjólum sem eru amk 20-30 ára gömul. Þau eru að seljast notuð á 2000 til 3500 skr sem er mikið hærra verð en ný (drasl) hjól sem seld eru í stórmörkuðum.
-Ég held að þetta sé smá cult-thing hér í Svíþjóð.
By
Teitur Atlason, At
20. maí 2009 20:57
Eitthvað virðist þetta mismunandi eftir landshlutum. Hér í Lundi er Monark allsráðandi. Georg nokkur Bjarnfreðarson á svoleiðis.
Hafa alla eiginleika Kronan en eru þar ofaná falleg og ódýrari.
Ódýr eru þessi hjól ekki. Kosta ný 3500 sek.
Hjólamenningin gríðarlega framarleg hérna. Til marks um þetta var framið vopnað bankarán hérna í haust og flýðu þjófarnir á hjólum. Þótti þetta til marks um að þeir væru heimamenn.
By
Nafnlaus, At
20. maí 2009 22:02
Áskotnaðist Raleigh hjól, frábært hjól engir gírar en maður steig það upp brekkur eða teymdi.Gömlu hjæolin standa fyrir sínu.
By
Nafnlaus, At
21. maí 2009 00:37
Þeir sem vilja kíkja á notuð hjól í Svíþjóð er bent á að tékka á blocket.se. þar er allt milli himins og jarðar.
By
Teitur Atlason, At
21. maí 2009 07:30
Ágæta Lára Hanna. Ég get kippt með mér einu hjóli þegar ég kem í júli.
Tékkaðu á þessu. Kronan.com og blocket.se.
By
Teitur Atlason, At
21. maí 2009 07:32
Haldið ykkur við konung hjólanna - Batavus
By
Nafnlaus, At
21. maí 2009 16:29
Kronan er klassísk hönnun sem fer ekki úr tísku.
Monark er einnig elegant merki og framleitt af fyrirtækinu CyclEurope sem framleiðir einnig Bianchi, Crescent og DBS. Fyrirtækið á Stokkhólmsbúinn Salvatore Grimaldi (ca 65 ára), sem er innflytjandi en hefur náð undraverðum árangri í Svíaríki með sitt viðskiptaveldi.
By
Einar, At
21. maí 2009 21:26
Sendu inn athugasemd
Subscribe to Post Comments [Atom]
<< Heim